Náttúrufræðingurinn - 1991, Blaðsíða 77
Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Skýrsla um
Hið íslenska náttúrufræðifélag
fyrir árið 1989
FÉLAGAR
í árslok 1989 voru skráðir félagar og
kaupendur að Náttúrufræðingnum alls
1870. Þar af voru 6 heiðursfélagar, 5
kjörfélagar og 26 ævifélagar. Innan-
lands voru 1624 almennir félagar og
143 stofnanir keyptu Náttúrufræðing-
inn. Félagar og stofnanir erlendis voru
alls 66. A árinu fækkaði félagsmönn-
um um 106 en það er nánast sama tala
og fyrir fjölgun félaga árið 1988.
STJÓRN OG STARFSMENN
Síðastliðið ár var stjórn Hins ís-
lenska náttúrufræðifélags þannig skip-
uð: formaður var Þóra Ellen Þórhalls-
dóttir, varaformaður Hreggviður
Norðdahl, gjaldkeri Ingólfur Einars-
son, ritari Björg Þorleifsdóttir og
meðstjórnandi Sigurður S. Snorrason.
Einar Egilsson og Gyða Helgadóttir
sátu í varastjórn. Endurskoðendur
voru Magnús Arnason og Sveinn Ól-
afsson en varaendurskoðandi Þór Jak-
obsson. Ritsjóri Náttúrufræðingsins
var Páll Imsland. Erling Ólafsson sá
um félagatalið eins og áður. Fulltrúi
félagsins í dýraverndarnefnd var Sig-
urður H. Richter en í fuglafriðunar-
nefnd sat Agnar Ingólfsson. I stjórn
Minningarsjóðs Eggerts Ólafssonar
sátu Guðmundur Eggertsson (formað-
ur), Sólmundur Einarsson (ritari) og
Ingólfur Davíðsson. Ingólfur hefur
óskað eftir að hætta störfum og mun
Agnar Ingólfsson koma í hans stað.
Varamaður var Óskar Ingimarsson.
Einar Egilsson var oddviti áhugahóps
um byggingu náttúrufræðihúss. Full-
trúar félagsins á aðalfundi Landvernd-
ar voru Hreggviður Norðdahl og Þóra
Ellen Þórhallsdóttir.
Ingveldur Róbertsdóttir var ráðin
til starfa fyrir félagið í alls tvo mánuði
(hálft starf frá maí til ágúst). Hún sá
um að auglýsa og skipuleggja ferðir og
skrá þátttakendur. Félagið hefur hing-
að til fengið afnot af síma Náttúru-
fræðistofnunar en fékk eigin síma sl.
maí. Gerður var samningur við Stein-
þór Ingvason í Iskortum um dreifingu
á veggspjöldum.
A árinu voru haldnir 9 stjórnar-
fundir.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins fyrir árið 1989
var haldinn laugardaginn 24. febrúar
1990 í stofu 202 í Odda, hugvísinda-
húsi Háskólans. Fundarstjóri var Elsa
G. Vilmundardóttir en fundarritari
Þór Jakobsson. Dagskrá var með
hefðbundnum hætti; formaður flutti
skýrslu stjórnar og gjaldkeri gerði
Náttúrufræðingurinn 61 (1), bls. 71-80, 1991.
71