Náttúrufræðingurinn - 1991, Blaðsíða 60
grunninu austan við land. Sum þess-
ara frávika hafa verið sjófarendum við
landið kunn lengi, jafnvel frá því á 18.
öld.
SEGULS VIÐSMÆLIN G AR 1990-91
Á árunum 1990-91, eftir að fyrr-
nefnd yfirlitskort af segulsviðsfrávik-
um voru frágengin, hafa frekari mæl-
ingar Raunvísindastofnunar Háskól-
ans á segulsviði úr lofti einkum beinst
að tveim atriðum. Annarsvegar er röð
segulfrávika á landgrunninu sunnan
og suðaustan við landið, en þau liggja
nokkru innar en sú landgrunnsbrún
sem er vel þekkt af sjókortum. Mæli-
línur til þessara rannsókna ná um 120
km út frá landinu (2. mynd), austan
við mælingar sem gerðar voru á sjó
1973. Hins vegar hefur verið mælt út
af Faxaflóa og Snæfellsnesi, einkum
til þess að kanna hvernig aflöng segul-
sviðsfrávik yfir úthafinu hér suðvestur
af, samsíða Mið-Atlantshafshryggn-
um, teygja sig upp á landgrunnið og
inn á landið. Samhliða hefur verið
unnið að því að endurbæta tölvubún-
að og forrit til úrvinnslu segulsviðs-
mælinganna, því að með mismunandi
framsetningu má leggja áherslu á mis-
munandi atriði í þessu gagnasafni (4.
mynd).
LOKAORÐ
Rannsóknir Þorbjörns Sigurgeirs-
sonar á segulsviðinu yfir íslandi voru
mikið afrek, og hafa niðurstöður
þeirra veitt ýmsar athyglisverðar
upplýsingar um jarðfræði landsins.
Mælingar af þessu tagi, og úrvinnsla
þeirra, eru þó mun skemmra á veg
komnar hér en hjá flestum nágranna-
þjóðunum, sem hafa úr meira fé til
slíkra rannsókna að spila en við ís-
lendingar. I sumum löndum eru jafn-
vel til segulsviðskort af stórum svæð-
um með 100 m línubili og margfalt
meiri mælinákvæmni en hér. Ekki er
áætlað að sinni að fljúga aftur yfir
landið allt, heldur verður lögð áhersla
á að þétta mælingarnar þar sem helst
þykir ástæða til, og bæta við línum á
landgrunninu. Einnig verður reynt að
reikna út líkön af orsökum þeirra frá-
vika, sem helst eru til þess fallin, með
hliðsjón af öðrum gögnum um jarð-
lagabyggingu á viðkomandi svæðum
ef til eru.
ÞAKKIR
Segulsviðsmælingarnar voru styrktar af
Rannsóknasjóði Háskóla Islands og Vís-
indasjóði. Við þökkum flugmönnunum
Stefáni Sæmundssyni og Úlfari Hennings-
syni fyrir samvinnu við mælingar 1985-86
og 1990-91 og Flugradíói sf. fyrir aðstoð.
Marteini Sverrissyni, rafmagnsverkfræð-
ingi, þökkum við sérstaklega fyrir þátt
hans í undirbúningi, framkvæmd og úr-
vinnslu mælinganna 1985-86.
HEIMILDIR
Geirfinnur Jónsson, Leó Kristjánsson &
Marteinn Sverrisson 1991. Magnetic sur-
veys of Iceland. Tectonophysics 189,
229-247.
Leó Kristjánsson 1984. Bergsegulmælingar
- nytsöm tækni við jarðfræðikortlagn-
ingu. Náttúrufrœðingurinn 54, 119-130.
Leó Kristjánsson, Geirfinnur Jónsson &
Marteinn Sverrisson 1989. Magnetic
Surveys at the Science Institute. Fjölrit-
uð skýrsla RH01.89, Raunvísindastofn-
un Háskólans. 40 bls. og kort.
Þorsteinn I. Sigfússon (ritstj.) 1987. í hlut-
arins eðli. Afmælisrit til heiðurs Þor-
birni Sigurgeirssyni prófessor. Menning-
arsjóður, Reykjavík, 433 bls. og tvö
kort.
54