Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1991, Blaðsíða 42

Náttúrufræðingurinn - 1991, Blaðsíða 42
Tvær af skræklóunum sem sáust hér komu fram á óvenjulegum tíma (des- ember og mars) samanborið við flesta aðra flækingsfugla, þ.á m. aðra norð- ur-ameríska flækinga og vaðfugla sem flestir hafa sést að haustlagi. Skrækló- ur sem flækst hafa til annarra landa í V-Evrópu sjást flestar á tímabilinu nóvember-mars, þ.e. á þeim tíma sem skræklóur eru yfirleitt á vetrarstöðv- um. Skræklóur hrekjast oft norður með austurströnd N-Ameríku, allt til Nýfundnalands, þegar óveður geysa síðla hausts og á vetrum. Þær eru mun seinna á ferðinni á haustin en aðrir norður-amerískir vaðfuglar, snúa snemma til sumarheimkynna og búa því við ótryggari veðráttu á fartíma en aðrir vaðfuglar. Skræklóum er því hættara við hrakningum, þrátt fyrir fremur stutt ferðalög og þó að farleið- ir þeirra liggi flestar yfir landi. Fjalllóa (Charadrius morinellus) Varpútbreiðsla fjalllóu er sérkenni- lega slitrótt og að mestu bundin við hæstu fjallgarða í Evrópu og Asíu. Samfelld útbreiðsla er einungis í Skandinavíu og nokkrum fjallgörðum í Sovétríkjunum. Fjalllóur hafa orpið í NV-AIaska og eru sennilega árvissir varpfuglar þar. Litlir einangraðir stofnar verpa í Skotlandi (520 pör áætluð 1987; Spencer ofl. 1989) og á nokkrum stöðum á meginlandi Evr- ópu, m.a. við sjávarmál í Hollandi. Fjalllóu hefur fækkað sums staðar, m.a. á Bretlandseyjum og þar er eggjasöfnun og skotveiði fyrr á tímum kennt um. Þá hefur útbreiðsla hennar sums staðar dregist saman af óþekkt- um ástæðum, t.d. í Póllandi og Tékkóslóvakíu. Stöku fuglar hafa orp- ið utan reglubundinna heimkynna, þ.á m. á farleiðum í Evrópu og á Sval- barða. Fjalllóur eru gæfir fuglar og það ber fremur lítið á þeim. Þær kunna því að verpa víðar en hingað til hefur verið talið. Varpkjörlendi fjalllóu er yfirleitt norðan eða ofan skógarmarka, á fremur blautu og hrjóstrugu landi. Ut- an varptíma halda fjalllóur sig aðal- lega í þurrlendi, þar á meðal á gresj- um og akurlendi, en eru sjaldséðar í votlendi. Fæðan er aðallega tvívængj- ur, bjöllur og köngurlær. Katifuglarn- ir sjá að mestu um ungauppeldi og kvenfuglarnir yfirgefa varpstöðvarnar þegar um miðjan júlí, karlfuglar um mánaðamót júlí-ágúst og ungarnir litlu síðar. Fjalllóur sem verpa í S-Noregi (Hardangervidda) verja ekki óðul. Varptíminn þar stendur lengi yfír (einn og hálfan mánuð), kvenfuglar keppa um maka allan tímann og stunda fjölveri, þ.e. parast við fleiri en einn karlfugl (Kálás & Byrkjedal 1984). Það þarf því ekki að koma á óvart að fjalllóa er eina lóutegundin þar sem kvenfuglar skarta litskrúðugri búningum en karlfuglar. Fjalllóur eru algjörir farfuglar og hafa vetursetu á Spáni (fáir fuglar), í N-Afríku og Mið-Austurlöndum. Far- leiðir þeirra eru ekki skýrt markaðar, en þær hafa viðkomu á fáum og oft hefðbundnum stöðum á leið sinni. Þar sem fremur fáir fuglar sjást á þessum viðkomustöðum samanborið við áæti- aðan varpstofn, telja menn að flestar fjalllóur fljúgi nær viðstöðulaust milli sumar- og vetrarheimkynna. Flestir þeir fuglar sem sjást í Evr- ópu utan varpstöðva og reglubund- inna viðkomustaða eru ungfuglar á fyrsta hausti. Þeir sjást aðallega frá miðjum ágúsl til loka september og stöku fuglar í október. Vorfarið hefst í febrúar-mars og fara fuglarnir um V- Evrópu frá miðjum apríl fram í miðj- an maí. 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.