Náttúrufræðingurinn - 1991, Blaðsíða 81
auglýsingateiknari. Trúnaðarmaður
dómnefndarinnar var Sigurður S.
Snorrason. Alls tóku 44 þátt í sam-
keppninni en margir sendu fleiri en
eina tillögu. Nefndin var einróma
sammála um að verðlauna tillögu að
merki frá Kristínu Arngrímsdóttur.
Höfundur skýrir merkið svo að í bak-
grunni sé þríhyrningur sem geti
táknað fjall en þríhyrningur er einnig
tákn sköpunarinnar. Upp í þríhyrn-
inginn vaxa tvö kímblöð, tákn grósk-
unnar.
Hinn 1. október var öllum félögum
og velunnurum boðið til afmælishátíð-
ar að Hótel Loftleiðum í Reykjavík og
voru þar m.a. viðstödd Forseti Islands
frú Vigdís Finnbogadóttir og mennta-
málaráðherra Svavar Gestsson. Fund-
arstjóri var Unnsteinn Stefánsson
prófessor. Dagskráin hófst með
ávarpi menntamálaráðherra en síðan
flutti formaður félagsins hátíðarræðu
þar sem hann rakti m.a. sögu félagsins
og starf. Pá voru Kristínu Arngríms-
dóttur veitt verðlaun, 100.000 kr. fyrir
tillögu að merki félagsins. Lýst var
kjöri Hjálmars R. Bárðarsonar sem
kjörfélaga og þriggja nýrra heiðursfé-
laga, Axels Kaabers, Einars B. Páls-
sonar og Ingólfs Einarssonar. Voru
þeir sæmdir barmprjóni úr gulli með
hinu nýja merki félagsins. Aðrir heið-
urs- og kjörfélagar voru einnig boðnir
til hátíðarinnar en aðeins tveir áttu
kost á að koma. Það voru þeir Stein-
dór Steindórsson frá Hlöðum og Guð-
brandur Magnússon og voru þeir
einnig sæmdir barmprjóni. Að lokinni
afliendingu barmmerkja, sá Oddur
Sigurðsson um litskyggnusýningu sem
hann nefndi „Stórt og smátt í náttúru
íslands“. Par sýndi hann fyrirbæri
náttúrunnar, allt frá því stærsta sem
sjá má á gervitunglamyndum niður í
smávaxin skordýr. Síðastur sagði svo
forstöðumaður Heureka vísindasafns-
ins í Vanda í Finnlandi, dr. Hannu
Miettinen, frá þessu stórglæsilega
safni og sýndi myndir. Að dagskrá
lokinni bauð félagið upp á veitingar í
Víkingasal og þáðu þær um 240
manns.
Félagin bárust góðar gjafir í tilefni
afmælisins. Ferðafélag íslands gaf ár-
bækur sínar frá upphafi og Jöklarann-
sóknafélag Islands tímaritið Jökul,
einnig frá upphafi. Að auki hafa Vís-
indaráð, Iðnaðarráðuneyti, Mennta-
málaráðuneyti og Búnaðarbanki Is-
lands styrkt útgáfu Mývatnsbókarinn-
ar.
Póstur og sími gáfu einnig út frí-
merki í tilefni afmælisins. A frímerk-
inu er mynd af Stefáni Stefánssyni,
sem að öðrum ólöstuðum má telja að-
alhvatamann að stofnun félagsins. 1
bakgrunni sést eyrarrós.
75