Skinfaxi - 01.10.2003, Blaðsíða 25
íþróttaháskólinn í Sönderborg
þolfimi (aerobic),blak, fótbolta og alhliða
íþróttir. Eitt kom okkur mjög á óvart og það
var metnaður skólayfirvalda til að láta okkur
fara út að hlaupa. Við hlaupum tvisvar
sinnum í viku minnst 5 km en allt að 26 km.
Markmið skólans var að senda sem flesta í
Maraþonið sem haldið var í Kaupmanna-
höfn 18.maí s.l. Um fjórðungur nemenda
tók þátt í Maraþoninu og ekki lét ég mig nú
vanta. En í skólanum á ekki bara að virkja
líkamann því að kennararnir huga einnig
vel að heilasellunum. Umræðufög eru
ákaflega skemmtilegur hluti af stunda-
skránni. Tímarnir ganga út á að við komum
saman í hópum og rökræðum skemmtileg
málefni fram og aftur. Umræðuefnin eru
heimspekilegs- stjórnmálalegs-, siðferði-
legs-, sálfræðilegs- og íþróttalegs eðlis. Að
lokum er skylda að velja hin svokölluðu
,,værkstedsfög“ þar sem við getum valið
milli þess að læra t.d. nudd, myndlist, fyrstu
hjálp, gítarspil, dans, hljómsveitaræfingar,
leiklist, lífeðlisfræði o.fl. Ofangreindu til
viðbótar er dans- og söngkennsla einu
sinni í viku sem allir taka virkan þátt í og
hafa gaman af.
Á mánudögum og fimmtudögum er
morgunstund þar sem allir mæta í fyrir-
lestrarsalinn eftir morgunmat og syngja
saman tvö lög áður en við tökumst á við
amstur dagsins. Til að byrja með fannst
mér þessi stund og söngtímarnir svolítið
hallærislegir, þ.e. að standa þarna og
syngja hástöfum á dönsku, en núna lít ég
allt öðrum augum á þá og hlakka jafnvel til
að mæta! Söngurinn fær fólk til að vakna
og kemur því í gott skap.
Á miðvikudögum er haldin kvöldvaka þar
sem við komum öll saman og gerum
eitthvað skemmtilegt og gæðum okkur á
köku í leiðinni. Gangarnir skiptast á með að
skipuleggja helgarnar og sjá um þær.
Á laugardögum og sunnudögum getum við
valið úr allskonar íþróttaiðkun sem fólk frá
viðkomandi gangi stendur fyrir, s.s. sund,
fótbolti, klettaklifur, aerobic o.s.frv. og á
laugardagskvöldum er alltaf veisla sem
byrjar með góðum mat og endar svo med
tjútti og tralli langt fram eftir nóttu.
Til frönsku Alpanna í skíðaferð
Við lok fyrstu annar héldu nemendur og
kennarar skólans af stað í tíu daga
skíðaferðalag til frönsku Alpanna; „Lex
Deux Alpes“. Við mættum árla morguns
upp í fjall og renndum okkur á fleygiferð
niður fjallshlíðarnar. Við gátum valið milli
100 brekka og fórum alveg upp í 3500
metra hæð þar sem útsýnið var ólýsanlegt.
Á kvöldin kom svo þreyttur hópurinn saman
og hélt kvöldvöku þar sem sungið var við
gítarspil, spjallað og dansað. Þetta var
sannkölluð ævintýraferð og tvímælalaust
einn af hápunktum skólaársins.
íþróttamót íþróttaháskóla Danmerkur
í lok annarrar annar var haldið iþróttamót
um allt landið þar sem saman komu allir
íþróttaháskólar Danmerkur og kepptu í
hinum ýmsu íþróttagreinum. Þar sem
sundið kitlar alltaf fór ég með sundliðinu til
Viborgar og sé ekki eftir þeirri ákvörðun
minni þar sem sundlið skólans vann allar
greinar á mótinu með nokkrum yfirburðum.
Þriðja og síðasta önnin er ákaflega
skemmtileg þar sem sumarið býður upp á
enn fleiri möguleika til íþróttaiðkunar. Okkur
var gert að velja aftur aðalfag eitt þar sem
og hægt var að velja um strandarblak,
„Showdance“(funk, hip-hop og salsa),
siglingar, seglbretti og þríþraut sem ég
jafnframt valdi. í aðalfagi tvö var hægt að
velja um kajak, tennis, seglbretti, alhliða
íþróttir og aftur siglingar.
Lærir mannleg samskipti
Öðruvísi og ítarlegri reynsla í heimi iþrótt-
anna er ekki það eina sem við lærum á dvöl
okkar hérna í íþróttaháskólanum. Mannleg
samskipti við nemendur og kennara
skólans er sá þáttur í lífi mínu hér sem ég
tel mig læra mest af. í skólanum eru saman
komnir um 85 krakkar frá Danmörku,
Færeyjum, Noregi, Kína, Póllandi, Búlgaríu
og íslandi sem búa þétt saman í hálft ár
eins og ein stór fjölskylda. Eins og gengur
líkar manni misvel við samferðarmenn sína
en okkar verkefni er að læra að lifa saman
í sátt og samlyndi, taka tillit hvert til annars
og forðast að hugsa eingöngu um eigin
hag. Ég hef lært að vera þakklátur litrófi
mannlífsins og þess kraftaverks að við
erum ekki öll eins.
Vill hvetja alla til að skella sér í
íþróttaháskólann í Sönderborg
Þegar kom að heimför var erfitt að kveðja
alla þá góðu vini sem við höfðum ræktað
vináttu við undanfarna mánuði en lífið
heldur áfram og brátt fellur það aftur í sitt
fyrra horf; vinna, borða og sofa. Ég vil
hvetja alla þá sem kost hafa á að grípa
tækifærið og skella sér út í skóla sem
þennan. Lífsreynsla þessi í þennan stutta
tíma er ómetanleg og verður mér dýrmætt
veganesti um alla ókomna framtíð. Ég vil
enn og aftur þakka UMFÍ fyrir frábæran
stuðning og gott framlag.
Virðingarfyilst,
Sigurður Guðmundsson
Munið landsmót UMFÍ á
Sauðárkróki 8. -11. júlí 2004
LANDSMÓT
UMFÍ