Skinfaxi - 01.10.2003, Page 31
Ungmennafélagar á heimslóðum að nýju
Á min rök verður
ekki hlustað
„Mínar kröfur gagnvart liðinu er að við bæt-
um okkar leik stöðugt. Eftir að hafa verið í
7 ár samfleytt í Þýskalandi þá kom
aðstöðuleysið í Garðabæ mér mikið á óvart
og ástandið hjá handknattleiksdeild Stjörn-
unnar. Þegar ég fór frá félaginu til Þýska-
lands var þetta
prýðilegt og vænt-
ingar samkvæmt
því. í dag er þetta að
mestu óreiða og
skipulagsleysi sem á
ekki að eiga sér stað
í bæjarfélagi eins og
Garðabæ. Þetta
hljómar sem væl, en
það sorglega er að
þetta eru staðreynd-
ir. Ég þarf því að
vera að eyða miklum
tíma í þessi mál í
staðinn fyrir að láta
strákana nýta það
sem ég hef upp á að
bjóða að fullu."
Hvernig líst þér
annars á íslensku
deildina og þetta nýja fyrirkomulag - er
eitthvað sem kemur þér á óvart við
íslensku deildina?
,,ÖII mín rök um það hvernig mér lítist á
þetta nýja fyrirkomulag verður ekki hlustað
á þannig að ég ætla ekkert að fara að eyða
tíma í að ræða það. Skipulagið þetta tfma-
bilið er eins og það er og ég ætla bara að
gefa því tækifæri."
Það eru til margir ungir og
efnilegir sóknarleikmenn á
íslandi en þeir flaska vel
flestir á vörninni. Það sem
ég hef séð af markvörslu
þá finnst mér hún vera að
batna og er það gleðiefni
fyrir íslenskan
handknattleik.
Nú er sagt að þýska deildin sé sú
sterkasta í heimi - kemur þú með góðan
grunn þaðan hvað varðar þjálfun?
,,Það er engin spurning að þýska deildin er
góður grunnur. Þar eru flestir af bestu
handknattleiksmönnum og -þjálfurum
heims. Ég var þess aðnjótandi að hafa
mjög hæfa þjálfara sem kenndu mér mikið
og vil ég sérstaklega nefna Velimir Þetkovic
sem varð til þess að ég vildi taka það að
mér að verða þjálfari."
Er mikill styrkleikamunur á milli íslen-
sku og þýsku deildarinna?
,,Já, það er mikil styrkleikamunur á deild-
unum. Það felst aðalega í vörn og mark-
vörslu. Það eru til margir ungir og efnilegir
sóknarleikmenn á íslandi en þeir flaska vel
flestir á vörninni. Það sem ég hef séð af
markvörslu þá finnst mér hún vera að
batna og er það gleðiefni fyrir íslenskan
handknattleik. Síðan get ég ekki gleymt
gamla og góða aganum. Þá er ég ekki að
tala um tuð í dómara, því þar er agi til
staðar, heldur aga í leiknum sjálfum.
Atvinnumannaferlinum lokiö
Hvernig er meö meiðslin hjá þér - er
handboltaferillinn búinn eða ætlar þú að
spila með Stjörnunni í vetur?
,,Það er á hreinu að minn atvinnumanna-
ferill er búinn. Hvort ég kem til með að spila
sem áhugamaður með Stjörnunni verður
að koma í Ijós ég get ekkert sagt til um það
á þessu stigi málsins. Ég er að byggja mig
upp og ef það gengur vel kemur vel til
greina að spila.“
Þú fékkst annan ungmennafélaga, Gúst-
af Bjarnason sem lék á sínum tíma með
UMF Selfossi, en í Þýskalandi undanfar-
in ár til liðs við þig sem spilandi aðstoð-
arþjálfara. Hvernig er að hafa hann sér
við hlið?
,,Það er mjög gott að hafa hann við hliðina
á sér. Við fengum líka Sigurjón bróðir hans
til að aðstoða okkur og Gunnar Einarsson
til að sjá um andlegann undirbúning sem er
geysilega mikilvægur. Þarna erum við
komnir með mjög góðan hóp af mönnum til
að hjálpa strákunum til
að verða framtíðar
landsliðsmenn."
Vinna ekki leikina
upp á sitt einsdæmi
Gústi er byrjaður að
spila eftir langvar-
andi meiðsli. Má ekki
búast við Stjörnunni
töluvert sterkari þeg-
ar þið verðið báðir
komnir á fullt?
,,Ef við komumst á
fullt. Það er ekki enn
vitað með mig en ég á
von á að við munum
koma til með að styrk-
ja hópinn. Við vinnum
þó ekki leikina upp á
okkar eins dæmi það
gerir liðið í heild sinn
og eru þá allir taldir
með sem koma að
þessu, stjórn, þjálfarar og leikmenn."
Nú varstu að leika með landsliðinu og
lékst geysilega vel á HM í janúar í ár. Nú
er úrslitakeppni EM í janúar 2004 og
Olympíuleikarnir næsta sumar - ætlarðu
að gefa áfram kost á þér í landsliðið?
Svo lengi sem ég hef
getuna og landsliös-
þjálfarinn velur mig til að
leika mun ég gefa kost á
mér í íslenska landsliðið í
handknattleik. Það að
keppa á móti þeim bestu í
sinni íþrótt er draumurinn
,,Svo lengi sem ég hef getuna og
landsliðsþjálfarinn velur mig til að leika mun
ég gefa kost á mér í íslenska landsliðið í
handknattleik. Það að keppa á móti þeim
bestu í sinni íþrótt er draumurinn."
Munið landsmót UMFÍ á
Sauðárkróki IXI \3004 LANOBMDT UMFl
8.-11. júlí 2004