Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
34%
74%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið er með 117%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
FIMMTUDAGUR
18. júní 2009 — 143. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Hann er nú kannski ekkert sér-staklega sumarlegur en kengu ð
skemmtilegr ð
Tveir eftirlætishlutirnir mínir í augnablikinuInga María Leifsdóttir, kynningarstjóri Íslensku óperunnar, heldur mikið upp á Hjálpræðisherinn og
keypti þar gervipels fyrir fáeinum árum. Hann er í uppáhaldi ásamt gullkrossi sem hú f
Inga María Leifsdóttir í gervipelsinum sem hún keypti hjá Hjálpræðishernum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓRÚTSALA
Kjóll
Áður 8.950 kr. Nú 5.500 kr.
Skór
Áður 7.700 kr. Nú 4.900 kr.
GÖMUL TÚPUSJÓNVÖRP munu vafalaust brátt verða eftirsóttur
antíkvarningur enda hætt að fást víðast hvar. Hendið því ekki sjónvarpinu
þegar þið hyggist endurnýja viðtækið. Það er eflaust hægt að selja það, til
að mynda á sölusíðum á netinu.
VEÐRIÐ Í DAG
INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR
Keypti gervipels hjá
Hjálpræðishernum
• tíska • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Skarar fram úr
Fyrirtækið 66° Norður
hlýtur Apex-verðlaunin
frá Polartec fyrir
framúrskarandi
hönnun þriðja
árið í röð.
TÍMAMÓT 22
Úr Eurovision í bíó
Baldvin Z leikstýrir sinni fyrstu
kvikmynd.
FÓLK 42
DAGVAKTIN GEFUR AF SÉR
Hótel Bjarkalundur
blómstrar
Morðvopnið vinsælt myndefni
FÓLK 42
SIGURÐUR KAISER
Sækir um embætti
þjóðleikhússtjóra
Vill leikhúsið til fólksins í landinu.
FÓLK 42
Eiga eftir að finna
styttunum stað
Hjónakornin Sigurður
Pálsson og Kristín
Jóhannesdóttir eiga
tvær Grímur í
Mávahlíðinni.
FÓLK 34
LÉTTIR TIL V-LANDS Í dag verða
norðan 5-10 m/s en 8-13 NA-til
síðdegis. Dálítil rigning NA-lands
fram eftir degi en léttir til á vestur-
helmingi landsins eftir hádegi. Hiti
víðast 6-15 stig, svalast nyrðra.
VEÐUR 4
12
8 7
9
15
EFNAHAGSMÁL „Ég ætla ekki að fara að nota
gleðimælikvarðann á þetta. Það eru hrika-
lega erfiðar ákvarðanir fram undan sem
eru íþyngjandi fyrir fólk að mörgu leyti,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands.
Hann hafði verið spurður hvort hann
væri ánægður með þær tillögur sem for-
ystumenn ríkisstjórnarninnar kynntu aðil-
um vinnumarkaðar ins í gær.
„150 milljarða breyting á afkomu ríkis-
sjóðs kemur auðvitað við okkur öll,“ segir
hann.
Nú þegar ríkis stjórnin sé að ná ríkis fjár-
málunum fyrir horn minnir Gylfi á áhersl-
ur ASÍ um að verja hag þeirra verst stöddu
og að ýmis ákvæði um greiðsluaðlögun
verði endurskoðuð.
Hann nefnir sérstaklega að tekið skuli
á greiðsluaðlögunar vanda ungs fólks, sem
keypti sína fyrstu íbúð dýru verði, þegar
bólan var sem stærst. - kóþ
Ríkisstjórnin mun stefna á að kynna niðurskurð í ríkisfjármálum í dag:
Hrikalega erfiðar ákvarðanir
GYLFI
ARNBJÖRNSSON
Hvað gerir
Tiger?
Opna bandaríska
meistaramótið í
golfi hefst í dag
og allra augu
eru á Tiger
Woods.
ÍÞRÓTTIR 38
HANDBOLTI Íslenska lands-
liðið vann öruggan sigur á
Makedóníu, 34-26, í troðfullri
Laugardalshöll í gær.
Landsliðið hefur þar með
tryggt sér farseðilinn í loka-
keppni Evrópumótsins sem
fram fer í Austurríki í janúar
á næsta ári. Þetta er magnaður
árangur hjá liðinu, sem hefur
orðið fyrir miklum forföllum
alla undankeppnina en Guð-
mundi Guðmundssyni, hefur
alltaf tekist að púsla saman
frábæru liði. - hbg / nánar á síðu 36
Ísland lagði Makedóníu:
Landsliðið á
leið á EM
SAMEINAÐIR STÖNDUM VÉR Íslensku
strákarnir sýndu glansleik í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ANDA BLÁSIÐ Í BRJÓST Um fimmtíu þúsund manns voru við hátíðarhöldin í miðbæ Reykjavíkur í gær sem voru að mörgu leyti
litrík eins og þessi mynd ber með sér. Fjórmenningarnir blésu af krafti í hljóðfæri sín og ekki var amalegt að hafa fánann fyrir
aftan sig til að blása sér anda í brjóst. Sjá síðu 2 og 12 FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðherra
segir alvanalegt að nota enskan
rétt í milliríkjasamningum. „Það
er alveg fráleit túlkun að eignir
ríkisins almennt eða auðlindir séu
að veði. Þetta er bara hefðbundið
ákvæði,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra.
Greint var frá því í fréttum RÚV
að deilur við Hollendinga vegna
Icesave-samningsins yrðu leystar
fyrir breskum dómstólum, nema
Hollendingar færu fram á annað.
Þá myndu Hollendingar geta
gengið að eignum íslenska ríkis-
ins að því leyti sem stjórnarskráin
leyfði, gæti ríkið ekki staðið við
samninginn. Aðrir fyrirvarar munu
ekki vera um rétt Hollendinga til
íslenskra eigna.
Lagaprófessorar sem blaðið tal-
aði við í gær sögðu að við fyrstu
sýn gæfi fréttin til kynna að með
samningunum yrði talsvert afsal á
rétti ríkisins til að hafa yfirráð yfir
sínum eignum og dómsvald í eigin
málum.
Stefán Már Stefánsson, lagapróf-
essor við Háskóla Íslands, segist
setja spurningarmerki við þetta.
„Mér finnst þessi aðför á hendur
ríki svolítið sérkennileg. Ég kannast
ekki við að hægt sé að kyrrsetja eða
gera fjárnám í einstökum eignum
ríkja,“ segir Stefán.
Steingrímur minnir á að í samn-
ingnum sé „endurupptökuákvæði,
ef greiðslubyrðin reynist um megn.
Það er alls ekki gert ráð fyrir að til
vanefna komi fyrr en að undan-
gengnum slíkum hlutum“.
Indriði H. Þorláksson, nefndar-
maður í Icesave-nefndinni, segir
að Íslendingar hafi farið fram á
að íslenskur dómstóll skæri úr um
deilumál, en venjan sé í slíkum
samningum að lánveitendaríkið
hafi lögsögu um ágreiningsmál.
Þetta segir Stefán Már að sé
„sjálfsagt ekki fjarri lagi [þegar um
eðlilegar fjárhæðir er að ræða].
„En ég er ekki alveg jafn sann-
færður þegar um er að ræða lán
sem eru kannski margföld fjár-
lög ríkisins. Þá er um leið verið að
semja um hluta fullveldisréttarins
yfir í aðra lögsögu. Það hljómar
svolítið skringilega.“ Um milliríkja-
deilur kunni að gilda aðrar reglur.
Steingrímur hvetur fólk til
að anda rólega og hlaupa ekki á
sig. Samningurinn verði vonandi
aðgengilegur í heild sinni innan
skamms. - kóþ
Ráðherra segir fráleitt að
eignir ríkisins séu að veði
Fjármálaráðherra telur að Íslendingar lendi tæpast í vanskilum með Icesave-lánið enda sé endurupptöku-
ákvæði í samningunum. Prófessor í lögum segir fullveldisrétt kunna að fara yfir í aðra lögsögu.