Fréttablaðið - 18.06.2009, Síða 16

Fréttablaðið - 18.06.2009, Síða 16
16 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna Útgjöldin Lausasöluverð helgarblaðs DV í maí. Heimild: Hagstofa Íslands. „Mín bestu kaup hljóta að hafa verið íbúðin mín,“ segir Lilja Nótt Þórarinsdóttir, nýútskrifuð leikkona, spurð um bestu og verstu kaupin í gegnum tíðina. Lilja keypti íbúðina árið 2005, skömmu áður en fasteignamarkaðurinn skellti sér á fullt skeið og prísar sig sæla yfir því í dag. „Hún var vissulega ekki ókeypis, en hækkaði um fimm milljónir á hálfu öðru ári, þannig að maður má sjálfsagt teljast heppinn miðað við það sem á eftir fylgdi.“ Verstu kaupin segir Lilja Nótt hafa verið kókdós, sem hún var prettuð til að kaupa á suðrænni sólarströnd. „Það kom upp að mér kona með fötu og bauð mér að kaupa kók. Þegar ég ætlaði að gera það kom í ljós að hún var ekki með neitt kók í fötunni, heldur hljóp bara upp á strand- barinn og keypti kókdós þar og seldi mér hana svo á fimmföldu verði!“ NEYTANDINN: LILJA NÓTT ÞÓRARINSDÓTTIR LEIKKONA Keypti kókdós í sekknum LILJA NÓTT ÞÓRARINSDÓTTIR Prísar sig sæla yfir að hafa keypt íbúð rétt fyrir fasteigna- bóluna. Íbúðin hækkaði um fimm milljónir á hálfu öðru ári. ÚTIVIST Íslendingar hafa löngum verið þekktir fyrir hveri og aðra náttúrulega baðstaði en í seinni tíð hafa glæsilegar sundlaugar risið um allt land. Sundlaugarnar eru mikið aðdráttarafl og á sumrin sækja þær stór hópur erlendra og íslenskra ferðamanna. Aðgangseyrir í sundlaugarnar er mjög mismunandi en sam- kvæmt úttekt Fréttablaðsins er ódýrast fyrir fullorðinn að fara í sund í Garðabæjarlaug en dýrast í Dalvíkurlaug. Verð fyrir börn á skólaaldri er frá 100 krónum til 150 krónur en margar sundlaug- ar bjóða upp á frían aðgangseyri fyrir börn. Þá er frítt fyrir börn undir sex ára aldri í öllum sund- laugum. Verð á leigu á sundfötum og handklæði er frá 250 krónum til 350 krónur og er sú þjónusta í boði hjá öllum stærri sundlaugum en þar er einnig hægt að nálgast veitingar. Síðari ár hefur áhersla verið lögð á að gera sundlaugarnar öruggari. Börn eru oft í fyrirrúmi og reynt að gera laugarnar sem mest spenn- andi. Stórar vatnsrennibrautir eru mjög vinsælar og þær er nú að finna hjá mörgum sundlaugum alls staðar á landinu. Vatnsleikjagarðurinn Vatna- veröld í Keflavík býður upp á alls konar afþreyingu fyrir yngstu börnin og svo var Álftaneslaug að opna fyrstu öldulaug á Íslandi, ásamt því að hafa lengstu vatns- rennibraut landsins. Síðasta haust var svo opnuð ein stærsta sundmiðstöð landsins með fimm- tíu metra innilaug að Ásvöllum í Hafnarfirði. Þá getur líka verið skemmti- legt að brjóta út af vananum og prófa heitar laugar eins og Poll- inn á Tálknafirði en þar er ókeyp- is fyrir alla. Bláa lónið er hins vegar lang- dýrasti baðstaður Íslands enda í algerri sérstöðu. Þar kostar 3.200 krónur fyrir fullorðinn og 1.200 krónur fyrir unglinga en frítt er fyrir börn. Hægt er að nálgast fleiri upplýs- ingar um staðsetningar sundlauga og hvera, afgreiðslutíma og fleira á www.sundlaugar.is. heidur@frettabladid Ódýrast að fara í sund í Garðabæ Sundlaugar fullorðnir börn Álftaneslaug 360 120 Ásvallalaug 300 100 Borgarneslaug 360 177 Bláa lónið 3.200 frítt Djúpavogslaug 350 150 Egilsstaðalaug 300 150 Garðabæjarlaug 230 110 Grindavík 300 frítt Hólmavíkurlaug 370 150 Laugardalslaug 360 110 Laugarskarð 270 100 Lágafellslaug 360 110 Patreksfjarðarlaug 300 150 Salalaug 280 120 Stykkishólmslaug 310 140 Sundhöllin Selfossi 370 frítt Sundlaug Akureyrar 410 100 Sundlaug Dalvíkur 450 frítt Vatnaveröld Keflavík 250 frítt Í SUNDI Að njóta lífsins í sundi er ein vinsælasta afþreying Íslendinga, sérstaklega á sumrin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is Gildir út júní 2009 15% afsláttur VOLTAREN 11,6 mg/g Gel, 50 g. 15% afsláttur NICOTINELL munnsogstöflur. ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 4 64 75 0 6 /0 9 Bílahreinsivörur Þú sparar 4.590.- TILBOÐ 2.990.-PAKKI 2Verð áður 7.580.- Hringdu í síma ef blaðið berst ekki „Sítrónur eru snilld. Ég sker þær í helm- inga langsum og nudda á baðherbergis- flísar til að ná kalki og brúnu ógeði af. Svo má nota safann í ljóst hár og ég set hann líka stundum framan í mig því það er svo frískandi. Við vondri lykt í þvottavél má skella ediki í þvottaefnishólfið og þvo einn suðuþvott með tómri vél – eða illa lyktandi þvotti. Svo er hugmynda- auðgi í eldhúsinu til að spara: Það er ótrúlegt hvað má gera góðan mat úr því sem er til ef maður festir sig ekki í að elda eftir uppskriftum.“ GÓÐ HÚSRÁÐ FRÍSKANDI SÍTRÓNUR ■ Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, notar sítrónur í ýmislegt og lumar á ýmsum húsráðum. ´97 ´99 ´01 ´03 ´05 ´07 ´09 150 200 170 190 220 365 548

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.