Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 18.06.2009, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 18. júní 2009 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 18. júní 2009 ➜ Tónleikar 20.00 Á Kima Kvöldi #4 á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu koma fram Retro Stefson, Skakkamanage, Klive, Mikael Lind, <3 Svanhvít og Reykja- vík!. Húsið verður opnað kl. 20. 22.00 KK heldur tónleika ásamt Jóni Ólafssyni og Þorleifi Guðjónssyni á Græna Hattinum við Hafnarstræti 96 á Akureyri. Húsið verður opnað kl. 20. ➜ Göngur 20.00 Gísli Helgason sagnfræðingur leiðir göngu um nokkra af helstu brunastaði miðborgarinnar og fjallar um byggðaþróun Kvosarinnar með hliðsjón af eldsvoðum síðustu 100 ára. Lagt verður af stað frá Grófinni (sundið milli Tryggvagötu 15 og 17) Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Á Keldum á Rangárvöllum gefst fólki tækifæri til að skoða „Gamla bæinn“, bæjar- og útihús frá fyrri tíð. Bærinn er af elstu gerð torfhúsa og timburgrind hans er með fornu smíða- lagi. Opið alla daga kl. 10-17. ➜ Menningardagskrá 101 Tokyo, japönsk menningardagskrá í Norræna húsinu við Sturlugötu 5. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 20.00 Prófessor Masaaki Mori frá Zokei-háskólanum flytur erindu um japanskar teiknimyndir (anime) með áherslu á verk nemenda sinna. ➜ Bækur 16.00 Vignir Árnason les upp úr þekktum skáldverkum á Bóka- safni Kópavogs við Hamraborg 6. Allir vel- komnir og aðgangur ókeypis. ➜ Torfhús ➜ Sýningar Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu hafa verið opnaðar þrjár nýjar sýningar. Það eru bókbandssýningarnar „Norrænt bókband 2009“ og „Sauðskinn Saffían og shirtingur“ auk þess sem opnuð hefur verið sýning á málverkum eftir Huldu Vilhjálmsdóttur. Opið alla daga kl. 11-17. Erla Þorleifsdóttir og Stefán Bjarna- son hafa opnað sýningu í sal Félags- þjónustunnar að Hæðargarði 31. Opið alla virka daga kl. 14-17. Aðgangur er ókeypis. ➜ Síðustu forvöð Á sunnudaginn lýkur sýningum Jónínu Guðnadóttur og Guðnýjar Guðmunds- dóttur í Hafnarborg við Strandgötu í Hafnarfirði. Opið alla daga nema þriðju- daga kl. 11-17, fimmtudaga til kl. 21. Aðgangur er ókeypis. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is *Streymi á erlendri tónlist um ADSL internetþjónustu flokkast sem erlent niðurhal, nánar á Tónlist.is. **Viðskiptavinir í GSM áskrift, Mínu Frelsi eða ADSL internetþjónustu. Takmarkaður fjöldi áskrifta. Í sumar býður Síminn viðskiptavinum sínum Sumaráskrift* að Tónlist.is fyrir 0 kr. aukalega.** Þar geta þeir hlustað á uppáhaldslögin sín í símanum eða tölvunni eins oft og þeir vilja. Þú færð ekki bara uppáhaldslagið þitt, heldur 2,5 milljónir íslenskra- og erlendra laga til við-bótar. Farðu á siminn.is, skráðu þig og njóttu þess að hlusta hvar og hvenær sem er. Milljónir laga í símann og tölvuna án þess að borga krónu aukalega! Það er Skráðu þig á siminn.is HVAÐ GERIR TIGER WOODS Í ÁR? Í FYRRA SIGRAÐI HANN EFTIR BRÁÐABANA Í KVÖLD KL. 20:00 Á MORGUN KL. 20:00 Á LAUGARDAG KL. 19:00 Á SUNNUDAG KL. 17:30 US OPEN HEFST Í KVÖLD

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.