Fréttablaðið - 18.06.2009, Page 36
32 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Sumarið hefur í för með sér aukinn straum erlendra ferðamanna hingað til lands. Víða
má sjá dúðaða ferðalanga með bakpoka um öxl arka upp og niður Laugaveginn, rýna
inn um verslunarglugga og taka myndir. En hvað ætli ferðafólkið viti mikið um land og
þjóð? Fréttablaðið ákvað að fara á stúfana og hitti fyrir nokkra ferðamenn á förnum vegi.
Meðal þess sem blaðamaður komst að var að það eru ekki aðeins Íslendingar sem kunna
að meta íslenskar pylsur. - sm
Íslendingasögur og pylsur
VINIRNIR STEFAN DIENSTAG, SARAH FREYER OG EDWARD PAVONE ætla að dvelja
á Íslandi í þrjár vikur. Þremenningarnir eru öll frá New York og er þetta fyrsta heimsókn þeirra til landsins. Aðspurð segj-
ast þau lítið vita um land og þjóð en að þau hafi búist við að verðlag hér væri lægra en raun ber vitni. „Við bjuggumst
við að sjá fleiri ketti á flakki um göturnar og pylsurnar koma skemmtilega á óvart, þær eru mjög góðar,“ segir Edward.
Vegg listaverkin sem prýða sum húsin í miðborginni þótti þeim lífga mikið upp á umhverfið. „Þetta eru mjög flott verk, en
kannski finnst heimafólkinu þetta ekkert spennandi?“ spyrja þau blaðamann, sem segir mörg þessara verka vera nokkuð
umdeild. Þegar kom að því að sýna þremenningunum myndirnar af þjóðþekktu einstaklingunum okkar könnuðust þau
ekki við neinn, en sögðust muna eftir að hafa heyrt um svanakjólinn hennar Bjarkar.
TOVE BUSKAS OG TOMAS WALDEGREN FRÁ SVÍÞJÓÐ
segjast hafa mikinn áhuga á íslensku víkingasögunum og að sá áhugi sé ástæð-
an fyrir Íslandsheimsókninni. Aðspurð segja þau fátt hafa komið sér á óvart
við Ísland, „Reykjavík er þó mun stærri en ég bjóst við. Hún er lágreist en vel
dreifð,“ segir Tove. Þau segjast hafa fylgst með fréttum af bankahruninu og að
bjartsýni og glaðværð landsmanna komi þeim nokkuð á óvart. „Sænska krónan
tekur líka svona dýfur mjög reglulega og ég er fullviss um að Íslendingar munu
standast þennan mótbyr,“ segir Thomas um ástandið. Tove og Tomas könnuðust
hvorki við Björgólf Thor né forseta landsins, Ólaf Ragnar, en þekktu söngkonuna
Björk á augabragði.
HJÓNIN UDO OG EVA
NIEDRICH komu hingað til
lands frá Þýskalandi. Þau segjast
lítið þekkja til landsins og því
hafi fátt komið þeim á óvart. Þau
höfðu þó heyrt af bankahruninu.
„Ætli Íslendingar séu ekki sú
þjóð sem hefur farið verst út úr
þessari heimskreppu, ef marka má
fréttirnar,“ segir Udo. Hjónin dvelja
aðeins í rúman sólarhring í borg-
inni, en þau komu hingað með
skemmtiferðaskipinu Aida. Þegar
þau voru spurð út í myndirnar
af þjóðþekktu einstaklingunum
þekkti Udo aðeins Davíð Oddsson
en mundi ekki nafnið.
„Maður hefði eflaust haft
meira upp úr þessu 2007,“
segir Ingólfur Þórarinsson,
betur þekktur sem Ingó úr
Veðurguðunum, um lag sem
hljómsveitin seldi í auglýsingu
Húsasmiðjunnar. Lagið heitir
Nóttin er liðin og hljómar
bæði í sjónvarps- og útvarps-
auglýsingum fyrirtækisins.
„Þegar við vorum að vinna
lagið í stúdíóinu fannst Axel
Árnasyni, upptökustjóran-
um okkar, það rosalega hent-
ugt í auglýsingar. Það er mjög
sumarlegt og hann var viss
um að það væri fullt af fyrir-
tækjum sem gætu notað það.
Hann kom því svo á auglýs-
ingastofu og ég fékk bara SMS
viku seinna um að Húsasmiðj-
an vildi lagið,“ útskýrir Ingó,
en í auglýsingunni má meðal
annars sjá krakka leika sér og
fólk smíða úti á verönd.
Aðspurður segir Ingó tón-
listina vera fullt starf, en
auk þess að koma fram við
hin ýmsu tækifæri er hann
að leggja lokahönd á fyrstu
plötu Veðurguðanna, sem er
væntanleg í byrjun júlí. „Það
er bara verið að skrifa þakkar-
listann, annars er allt klárt.
Platan heitir Góðar stundir
og inniheldur tólf lög, en á
henni verða meðal annars þau
lög sem hafa verið í spilun og
Eurovision-lagið sem ég söng.“
- ag
Veðurguðir seldu lag í auglýsingu
FYRSTA PLATAN Á LEIÐINNI Ingó er um það bil að leggja lokahönd á
fyrstu plötu Veðurguðanna, sem er væntanleg í byrjun júlí og nefnist
Góðar stundir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
SA
Gaz Coombes og Danny Goffrey
úr bresku hljómsveitinni Super-
grass hafa stofnað nýja hljóm-
sveit með upptökustjóranum
Nigel Godrich, sem hefur unnið
náið með Radiohead. Sveitin
nefnist The Hot Rats og hyggur
á útgáfu sinnar fyrstu plötu í
ágúst. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem þeir Gaz og Danny stofna
hljómsveit því þegar bassaleik-
arinn Mick Quinn meiddist fyrir
tveimur árum stofnuðu þeir
dúettinn Diamond Hoo Ha Men
sem hélt nokkra tónleika við
góðar undirtektir. Supergrass er
þó ekki dauð úr öllum æðum því í
sumar spilar hún á tónlistarhátíð-
unum í Glastonbury og Reading.
Stofna nýja
hljómsveit
GAZ COOMBES Gaz og Danny Goffrey hafa
stofnað hljómsveit með Nigel Godrich.
> FÓLK
Söngvarinn Peter Andre,
sem er fyrrverandi eigin-
maður kynbombunnar
Jordan, hefur ákveðið að
leika í nýrri Bollywood-
mynd. Peter mun ekki þurfa
að undirbúa sig sérstaklega
fyrir hlutverkið því hann
mun leika söngvara í
myndinni.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500