Fréttablaðið - 18.06.2009, Side 40

Fréttablaðið - 18.06.2009, Side 40
36 18. júní 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Strandgötu 43 | Hafnarfirði Sími 565 5454 Undankeppni EM 2010 Ísland-Makedónía 34-26 (17-13) Mörk Íslands (skot): Alexander Petersson 10 (13), Guðjón Valur Sigurðsson 6/1 (7/1), Róbert Gunn- arsson 5 (6), Þórir Ólafsson 4 (5), Sigurbergur Sveinsson 3 (8), Heiðmar Felixson 2 (5), Vignir Svavarsson 1 (2), Snorri Steinn Guðjónsson 1 (1), Ingimundur Ingimundarson 1 (1), Ragnar Óskarsson 1 (2). Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 21/2 (47/4) 47%. Hraðaupphlaup: 11 (Þórir 3, Guðjón 3, Alexander 2, Ingimundur, Róbert, Vignir). Fiskuð víti: 1 (Alexander). Utan vallar: 12 mín. ÚRSLIT Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var bæði hrærður og stoltur eftir að íslenska landsliðið hafði tryggt sér sæti á EM í Austur- ríki. Meiðslum hrjáð lið hans sýndi enn og aftur glansleik í gær. „Það er mjög þungu fargi af mér létt enda voru skrefin erfið inn í klefa eftir leikinn gegn Norðmönnum síðasta sunnudag. Dagarnir sem fóru í hönd voru erfiðir enda þurfum við aftur að ná vopnum okkar. Við kortlögðum svo Makedóníumenn enn eina ferðina og það tókst frábærlega,“ sagði Guðmundur. „Við vorum með svör í vörninni við öllu sem þeir voru að gera. Sóknarleikurinn var öflugur, fjölbreyttur og beittur. Hraðaupphlaupin góð og markvarslan frábær. Maður getur varla fundið neitt að leik okkar að þessu sinni. Þetta var einn af þessum leikjum þar sem menn eru mættir til að sinna sínum skyldum og miklu meira en það. Það var magnað að sjá hvernig við tókum Lazarov úr sambandi og undirbúningurinn skilaði sínu,“ sagði þjálfarinn, sem vildi sérstaklega hrósa áhorfendum. „Þetta var frábær dagur og áhorfendur gjörsamlega stórkostlegir. Ég vil sérstaklega þakka þeim fyrir þeirra magnaða framlag. Þeir bjuggu til ótrúlega stemningu í þessum leik með okkur.“ Ísland er nú í baráttu við Noreg um efsta sæti riðilsins, sem er mik- ilvægt upp á að komast í efsta styrkleikaflokk þegar verður dregið í riðla á mótið. Þessi stóri sigur hjálpar mikið til þar og Guðmundur viður- kenndi að hafa mikið spáð í það á tímabili. Guðmundur hefur unnið sannkallað þrekvirki með því að koma þessu liði á EM og láta það nær undantekninga- laust spila vel þó svo að hver stór- stjarnan á fætur annarri hafi fallið úr leik vegna meiðsla. „Ég er sáttur við að hafa komið hingað með gjörbreytt lið. Ég hef þurft að kalla inn menn sem hafa ekki verið í landslið- inu áður eða ekki verið lengi í landslið- inu. Það hafa allir staðið sig frábærlega, sem er mjög jákvætt. Ég er ákaflega stoltur af þessum árangri og þakklátur leikmönnunum sem hafa lagt sig alla fram.“ GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON: HEFUR UNNIÐ ÞREKVIRKI MEÐ ÞVÍ AÐ KOMA ÍSLENSKA LIÐINU Á EM Er ákaflega stoltur af þessum árangri > Sverre á leið til Grosswallstadt Flest bendir til þess að landsliðsmaðurinn Sverre Andreas Jakobsson muni á næstu dögum skrifa undir tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Grosswallstadt. Með liðinu leikur annar Íslendingur, Einar Hólmgeirsson. Sverre staðfesti við Fréttablaðið að aðeins ætti eftir að ganga frá smáatriðum. „Ég er eiginlega kominn með annan fótinn til félagsins,“ sagði Sverre, sem lék með HK í vetur eftir að hafa komið heim úr atvinnu- mennsku með Gummersbach. Gross- wallstadt vildi upphaflega fá Sverre til liðs við sig næsta sumar en snerist svo hugur og vill semja við hann strax. Eftir að hafa vegið og metið málið ákváðu Sverre og fjölskylda að stökkva á tilboðið og flytja aftur út. HANDBOLTI „Þetta var bara mjög venjulegt. Ég skora alltaf tíu mörk í leik,“ sagði brosmildur Alexander Petersson sem fór á kostum í íslenska liðinu í gær en hann er nýkominn af stað eftir löng meiðsli. „Ég var bara vel stemmdur, grimmur og hungraður í að standa mig vel. Ég skemmti mér líka vel. Það er gaman að vera kominn aftur og ég nýt mín virki- lega vel með liðinu,“ sagði Alex- ander og bætti við að Makedón- arnir hefðu hreinlega gefist upp þegar þeir sáu að þeir áttu ekki lengur möguleika gegn frábæru íslensku liði í gær. - hbg Alexander Petersson: Skemmti mér mjög vel ALEXANDER Var illviðráðanlegur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HANDBOLTI Strákarnir okkar tryggðu sér þáttökuréttinn á EM í Austurríki með glæsibrag í gær þegar þeir pökkuðu Makedónum saman í Höllinni, 34-26. Það var þjóðhátíðarstemning í Höllinni sem skilaði sér til strákanna sem léku við hvurn sinn fingur. Fyrri hálfleikur var virkilega vel leikinn af hálfu íslenska liðs- ins. Björgvin byrjaði strax að verja og varði eina ellefu bolta í hálfleiknum. Þar af fimm í röð frá stórskyttu Makedónanna, Kiril Lazarov. Inn í þeim pakka voru tvö víti, takk fyrir. Sóknarleikurinn var leikinn af yfirvegun þar sem Ragnar Óskars- son stýrði leik liðsins af myndar- skap. Alexander Petersson fór hreinlega hamförum og skoraði í sex fyrstu skotum sínum ásamt því að fiska eitt víti. Sigurbergur Sveinsson hristi af sér vonbrigði síðasta leiks, kom grimmur til leiks og sýndi mikinn karakter. Íslendingar voru lengstum skrefi á undan og eftir því sem leið á hálfleikinn breikkaði bilið. Mest náði íslenska liðið fjögurra marka forskoti og héldu margir að Ísland myndi kafsigla Makedóna á tíma- bili. Í stað þess að brotna, eins og gerist oft hjá Makedónum, sýndu þeir karakter með því að halda sér inn í leiknum en staða íslenska liðs- ins í leikhléi engu að síður nokkuð þægileg, 17-13. Það var smá basl á íslenska lið- inu í upphafi síðari hálfleiks en síðan tók liðið öll völd á vellinum og hreinlega keyrði yfir Make- dóna, sem áttu nákvæmlega engin svör og brotnuðu loksins. Þá var Snorri Steinn kominn á miðjuna og í kjölfarið fékk Róbert eitthvað að gera á línunni en hann skoraði fimm góð mörk í hálfleiknum. Varnarleikurinn var algerlega frábær, Björgvin Páll enn í bana- stuði og hraðaupphlaupin komu á færibandi og öll enduðu þau í net- inu hjá Makedónum, sem stóðu steinrunnir og horfðu á. Þjálfari þeirra hafði ekki einu sinni vit á því að taka leikhlé þegar Ísland var að klára leikinn. Ísland náði mest tólf marka forskoti í hálfleiknum, 30-18, en niðurstaðan var átta marka sigur, 34-26. Frábær úrslit og magnaður leikur hjá strákunum okkur. Það var nánast engan veikan blett að finna í gær á leik íslenska liðsins sem var betra liðið allan tímann. Björgvin Páll fór á kost- um í markinu og var aðdáunarvert að sjá hann niðurlægja eina bestu skyttu heims. Vörnin var mögnuð fyrir framan hann þar sem ekki var veikan hlekk að finna. Sóknar- leikurinn var vel skipulagður og menn léku skynsamlega. Íslenska liðið átti alltaf svör og allir lögðu sín lóð á vogarskálarnar. Alexander bar þó af og gríðar- legur styrkur fyrir liðið að fá hann aftur í þessa leiki. Það er lyginni líkast að hann sé tiltölulega nýkominn af stað eftir langvarandi meiðsli. Meiddur Guðjón Valur skilaði sínu sem fyrr og Þórir var sterkur í hinu horninu. Róbert kom upp í síðari hálfleik og miðjumenn- irnir Ragnar og Snorri spiluðu báðir vel. Sigurbergur var flottur í fyrri hálfleik en náði því miður ekki að fylgja því eftir í þeim síð- ari. Heiðmar átti svo ágætis inn- komu. Við þennan leik verður þó ekki skilið án þess að hrósa sérstaklega þjálfara liðsins, Guðmundi Guð- mundssyni. Þessi frábæri, harð- duglegi og útsjónarsami þjálfari hefur unnið enn eitt þrekvirkið með landsliðinu með því að koma því á EM. Hann hefur unnið við einstaklega erfiðar aðstæður í þessari undankeppni og leyst þær aðstæður óaðfinnanlega. Guðmundur hefur misst út lykil- menn fyrir hvern leik en hefur undantekningalaust tekist að vinna frábærlega úr því sem hann er með í höndunum. Hann undirbýr lið sitt af kostgæfni fyrir hvern leik og fær leikmenn til þess að hafa trú á verkefninu og gera það sem fyrir þá er lagt. Uppskeran er frábær. Liðið er komið á EM og vinnur líklega riðilinn, sem er magnaður árangur miðað við forföllin í liðinu. Ísland á orðið stóran hóp af samkeppnis- hæfum landsliðsmönnum og það verður enginn hægðarleikur fyrir Guðmund að velja hópinn sem fer til Austurríkis í janúar. henry@frettabladid.is Strákarnir okkar á EM með stæl Strákarnir okkar gulltryggðu farseðil sinn á EM í Austurríki í gær er þeir sýndu stórleik og rúlluðu auð- veldlega yfir Makedóna. Björgvin Páll fór hamförum í markinu og Alexander var ótrúlegur í sókninni. ÞJÓÐHÁTÍÐARSTEMNING Róbert Gunnarsson fagnar hér einu af fimm mörkum sínum í gær fyrir framan frábæra áhorfendur sem troðfylltu Laugardalshöllina í gær og létu vel í sér heyra. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HANDBOLTI Björgvin Páll Gústavs- son átti sannkallaðan stjörnuleik í marki Íslands í gær. Byrjaði strax að verja eins og berserkur og sló hvergi af. Sérstaklega gekk honum vel að verja frá stórskyttunni Kiril Lazarov, sem klúðraði fimm fyrstu skotum sínum gegn Björgvini og þar af tveim úr vítum. Björgvin var hreinlega með Lazarov í vas- anum allan leikinn. „Ég lá yfir myndböndum af honum allt kvöldið fyrir leik enda heimsklassamaður sem varð að stoppa. Við gerðum bara grín að honum og hann var eins og tíu ára strákur í höndunum á okkur. Þegar ég ver fyrstu skotin frá honum þá missir hann sjálfstraustið. Maður hélt að svona kallar væru með meira sjálfstraust en þetta. Hann þorði varla að skjóta á markið eftir það,“ sagði Björgvin Páll boru- brattur og átti innistæðu fyrir því. „Það var annars geðveikt að spila hérna í þessum leik. Ég var bara með gæsahúð frá því að ég labbaði inn á völlinn. Áhorfendur eru venjulega eins og áttundi maðurinn en þeir voru eins og tveir leikmenn í dag. Stemningin var slík og geðhræringin sem kemur í svona stemningu fleytir manni tíu prósentum lengra en venjulega,“ sagði Björgvin Páll kátur en hann dansaði mikið á fjöl- um Laugardalshallar í gær. - hbg Björgvin Páll Gústavsson niðurlægði stórskyttuna Kiril Lazarov sem kom vart boltanum framhjá Björgvini: Lazarov var bara eins og tíu ára strákur STÓRKOSTLEGUR Björgvin Páll Gústavsson átti algjöran glansleik í íslenska markinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.