Fréttablaðið - 03.07.2009, Síða 16
16 3. júlí 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 11 Velta: 23,2 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
234 +0,00% 743 +X,XX%
MESTA HÆKKUN
MAREL +0,37%
MESTA LÆKKUN
ÖSSUR -1,30%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,20 +0,00% ... Atlantic
Airways 159,00 0,00% ... Atlantic Petroleum 475,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,17 +0,00% ... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,50 +0,00% ... Føroya Banki 122,00 +0,00% ... Icelandair Group
4,75 +0,00% ... Marel Food Systems 54,60 +0,37% ... Össur 114,00
-1,30%
Bláa lónið er opið alla daga frá kl. 08.00–21.00 • Sími 420 8800 • www.bluelagoon.is
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands ákvað í gær að halda stýri-
vöxtum óbreyttum í tólf prósentu-
stigum og vöxtum á viðskipta-
reikningum fjármálafyrirtækja
í 9,5 prósentustigum. Í tilkynn-
ingu nefndarinnar kemur fram
að bakgrunnur ákvörðunarinnar
sé að gengi krónunnar hafi verið
umtalsvert lægra á tímabilinu en
nefndin taldi viðunandi í mars.
Ákvörðunin var í samræmi við
væntingar greinenda sem gerðu
ráð fyrir óbreyttum stýrivöxtum.
Í greinargerð peningastefnu-
nefndar segir að frá síðustu stýri-
vaxtaákvörðun hafi töluvert miðað
áleiðis í stjórn efnahagsmála.
Bent er á að langtímaáætlun um
aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármál-
um og endurskipulagningu fjár-
málakerfisins hafi miðað áleiðis
auk þess sem fjármögnun stærstu
bankanna verði lokið um miðjan
júlí. Í greinargerð nefndarinnar
er þó lýst áhyggjum af þróun
gengis krónunnar og verðbólgu
undan farið. Krónan hefur veikst
um þrjú prósent og vísitala neyslu-
verðs hækkaði meira en væntingar
stóðu til bæði í maí og júní. „Það
gæti falið í sér hækkun vaxta kalli
aðstæður á slíkt,“ segir í greinar-
gerðinni.
Umræður um gjaldeyrishöft
og hugsanleg viðskipti fyrir-
tækja erlendis með krónur hafa
verið talsvert í umræðunni síð-
ustu vikur. Seðlabankinn kallaði
stærstu útflutningsfyrirtækin á
sinn fund nýlega til að fara yfir
gjaldeyrisviðskipti þeirra. Svein
Harald Øygard seðlabankastjóri
sagði að megintilgangur haftanna
væri að tryggja að vöruskipti
hefðu mest áhrif á gengi krón-
unnar í stað fjármagnshreyfinga
milli landa. Hann taldi mikilvægt
að munur á gengi krónunnar hjá
Seðlabanka Íslands og á erlendu
mörkuðum væri að minnka svo
það væri hvati fyrir fyrirtæki að
skipta sínum gjaldeyri á Íslandi.
Munur á opinberu gengi krónunnar
og á erlendum markaði er umtals-
verður og hefur ekki minnkað frá
síðustu vaxtaákvörðun.
Árstíðarleiðrétt verðbólga undan-
farna þrjá mánuði mældist 9,5 pró-
sent, eða 6,3 prósent án áhrifa af
skattahækkunum. Þórarinn G. Pét-
ursson, aðalhagfræðingur Seðla-
bankans, sagði á blaðamanna-
fundi í gær að bankinn brygðist
ekki beint við skattabreytingum
hins opinbera. Bankinn horfði þó
á hvort slíkar breytingar hefðu
áhrif á aðra þætti sem gætu stuðl-
að að verðhækkunum.
bta@frettabladid.is
Óbreyttir stýrivextir nú
en hækkun hugsanleg
Stýrivextir óbreyttir í 12 prósentustigum. Veiking krónunnar og verðbólga yfir
væntingum helstu ástæður. Stýrivextir gætu hækkað ef krónan styrkist ekki
eða verðbólga eykst frekar. Ákvörðunin í samræmi við væntingar greinenda.
BLAÐAMANNAFUNDUR VEGNA STÝRIVAXTAÁKVÖRÐUNAR Þórarinn G. Pétursson aðal-
hagfræðingur, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Svein Harald Øygard
seðlabankastjóri ræða við blaðamenn eftir að hafa tilkynnt að stýrivextir bankans
verði óbreyttir að sinni. Næsta stýrivaxtaákvörðun er 13. ágúst næstkomandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég átti von á því að Seðlabankinn
myndi sýna meiri kjark og lækka
vextina,“ segir Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, um þá ákvörðun
Seðlabankans að halda stýrivöxt-
um óbreyttum.
Vilhjálmur segir að svo virðist
sem Seðlabankinn horfi fyrst og
fremst á hvernig
gengi krónunnar
þróist. „Megin-
orsökin fyrir
henni er einmitt
gjaldeyrishöftin.
Það er haldið
afar illa á því
máli af hálfu
bankans, og
þessi ákvörð-
un bankans er
í raun bara fall-
einkunn yfir honum sjálfum,“ segir
Vilhjálmur, sem kveður mann-
kynssöguna sýna að verðlagshöft
af þessu tagi virki ekki. „Núna
2009 reynir Seðlabanki Íslands að
afsanna þetta með gjaldeyrishöft-
unum en það tekst ekki að breyta
þessu lögmáli.“
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur ASÍ, segir ákvörðun Seðla-
bankans vera ákveðin vonbrigði
en þó ekki koma á óvart miðað við
fyrri yfirlýsingar bankans og veiks
gengis krónunnar að undanförnu.
Að sögn Ólafs Darra hefur að
undan förnu verið reynt að efla tiltrú
í hagkerfinu og leggja þannig grunn
að lækkun stýrivaxta. „Ákvarðanir
sem beðið hefur verið eftir í ríkis-
fjármálum hafa verið teknar og það
er breið samstaða um að taka á þeim
miklu vandamálum sem við stönd-
um frammi fyrir með gerð stöðug-
leikasáttmálans. Þar settu aðilar
vinnumarkaðarins það markmið
að stýrivextir verði komnir undir
tíu prósent 1. nóvember og ég trúi
því að það gerist enda lykillinn að
því að koma hjólum efnahagslífsins
í gang aftur.“ - gar
Höft munu aldrei virka
ÓLAFUR DARRI
ANDRASON