Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.07.2009, Qupperneq 2
2 4. júlí 2009 LAUGARDAGUR Víkingur, verðurðu ekki bara með víkingahjálm við píanóið? „Jú, ég á einmitt víkingahjálm sem ég hef lengi ætlað mér að nota við píanóleik. Núna er gullna tækifærið.“ Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari spilar á vígslutónleikum nýja tónlistar- og ráðstefnuhússins á mánudag. Gestum verða afhentir hjálmar, stígvél og varúðar- gallar við innganginn í öryggisskyni, enda húsið vart fokhelt. VIÐSKIPTI Sumarið 2006 höfðu 22 stjórnendur og lykil- starfsmenn Kaupþings fengið samtals tæplega 23,5 milljarða króna að láni frá bankanum til að kaupa hlutabréf í bankanum. Þetta kemur fram í lánabók bankans sem DV birti upplýsingar úr í gær. Enginn starfsmannanna 22 er starfandi hjá Nýja Kaupþingi. Sá síðasti til að hætta var Helgi Sigurðs- son, yfirlögfræðingur bankans. Hann hætti í vik- unni eftir að DV upplýsti að hann hefði fengið 445 milljóna króna lán til hlutabréfakaupa sumarið 2006. Hæstu lánin fengu Sigurður Einarsson, fyrrver- andi stjórnarformaður, og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri. Skuld þeirra við Kaupþing sumarið 2006 var samtals tæplega 5,4 milljarðar króna. Þegar bankarnir hrundu í október í fyrra námu skuldir 130 starfsmanna við bankann, sem voru til komnar vegna hlutabréfakaupa í bankanum, sam- tals rúmlega 47 milljörðum króna. Stjórn bankans ákvað 25. september síðastliðinn að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna, sem við fall bankans námu rúmlega tíu milljörðum króna. Það hefur þó enn ekki verið gert. Einn af fyrrverandi hluthöfum bankans hefur kært þá ákvörðun til sérstaks saksóknara vegna banka- hrunsins. - bj Upplýsingar um háar lánveitingar til lykilstarfsmanna Kaupþings í lánabókum: 22 starfsmenn fengu 23,5 milljarða FENGU MILLJARÐA Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Ein- arsson skulduðu Kaupþingi um 5,4 milljarða sumarið 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. Maðurinn sem lést í flugslysinu í Vopnafirði í fyrrakvöld hét Hafþór Hafsteins- son. Hafþór var 43 ára, fæddur 3. janúar 1966, til heimilis að Skrúðási 9 í Garðabæ. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Hafþór var fyrrverandi for- stjóri flugfélagsins Atlanta og hafði undanfarin misseri gegnt stjórnarformennsku í félaginu Avion Aircraft Trad- ing. Lést í flugslysi í Vopnafirði DÓMSMÁL Hæstiréttur stað- festi í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að húsleit efna- hagsbrotadeild- ar Ríkislög- reglustjóra á heimili Hann- esar Smárason- ar hefði verið lögmæt. Hannes fór fram á að hús- leit á heimili hans, sem gerð var 3. júní, yrði úrskurðuð ólögmæt, og að hald- lagning gagna sömuleiðis. Hæstiréttur telur skilyrði fyrir húsleit og haldlagningu gagna hafa verið uppfyllt, enda Hann- es grunaður um refsiverða hátt- semi. Þar sem Hannes hafi ekki gert kröfur um að haldlagning á ákveðnum hluta gagna sem aflað var yrði dæmd ólögmæt sé kröfu hans hafnað. - bj Hæstiréttur staðfestir úrskurð: Lögmæt húsleit hjá Hannesi HANNES SMÁRASON REYKJAVÍKURBORG „Þetta er stórmál fyrir Grafarvogsbúa,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri um nýjan samning um aukna notkun Reykjavíkurborgar á Egilshöll. Samningnum sem samþykktur var í borgarráði á fimmtudag og er til eins árs er ætlað að tryggja áfram- haldandi rekstur Egilshallar sem var kominn í þrot í höndum dóttur- félags Nýsis, Borgarhallarinnar hf. Höllin er nú í höndum Landsbank- ans. Borgin greiðir 172 milljón- ir króna fyrir viðbótarleiguna. Sú upphæð er í raun inneign borgar- innar hjá Borgarhöllinni vegna van- greiddra fasteignaskatta upp á 145 milljónir og ógreiddra 27 milljóna króna afborgana af lóðarkaupum. Hanna Birna segir mikið óöryggi hafa verið með rekstur Egilshallar auk þess sem frágangur í og við húsið hafa verið óviðunandi. „Menn hafa verið að kvarta undan aðgengi en nú verður það lagað,“ segir borgar stjóri. Meðal þess sem samningum er ætlað að festa í sessi er íþrótta- starfsemi fyrir börn og unglinga og frístundaheimili fyrir fötluð grunnskólabörn. Þess utan flytur Ungmennafélagið Fjölnir hluta sinn- ar starfsemi í Egilshöll en á móti sleppur borgin undan fyrri samn- ingi um aðra uppbyggingu fyrir íþróttafélagið. Nýta á húsið betur fyrir knattspyrnuæfingar, skauta, fimleika, bardagaíþróttir og frjáls- ar íþróttir. Fulltrúar minnihlutans í borgar- ráði gerðu ýmsar athugasemdir við samninginn. „Borgarstjórnar- flokkur F-listans varar við því að háum fjárhæðum sé varið úr vasa almennings til að leiðrétta óráðsíu einkaaðila,“ bókaði áheyrnarfulltrú- inn Ólafur F. Magnússon. Dagur B. Eggertsson og Björk Vilhelmsdóttir, borgarráðsfulltrú- ar Samfylkingar, og Þorleifur Gunn- laugsson úr Vinstri grænum sögð- ust gera fyrirvara við að fjárhag Reykjavíkur væri best borgið með því að „festast inni í stórhækkuðum húsaleigusamningi við Egilshöll til eins árs“. Á móti sögðu fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks að niðurstaðan væri hagfelld fyrir borgina. Að auki væri gert ráð fyrir því að síðar á þessu ári verði farið yfir rekstur og afnot af Egils- höllinni til næstu ára. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna lögðu síðan til að skoðuð yrði reynsla borgarinnar og ann- arra sveitarfélaga af verkefnum í einkaframkvæmd og svokölluð- um félagaframkvæmdum. „Þannig verði leitast við að leggja mat á heildarkostnað vegna framkvæmda í einkaframkvæmd annarsvegar og eiginframkvæmd borgarinnar hins- vegar,“ sagði í tillögu minnihlutans sem borgarráð samþykkti. gar@frettabladid.is Borgin bjargar rekstri sökkvandi Egilshallar Óvissu er eytt með 172 milljóna króna viðbótarleigusamningi um afnot af Egils- höll, segir borgarstjóri. Almenningur borgar óráðsíu einkaðila, segir Ólafur F. Magnússon. Borgarráð samþykkti að kanna reynsluna af einkaframkvæmdum. ÍRAN Réttað verður yfir tveimur starfsmönnum breska sendiráðs- ins í Teheran í Íran, sem voru handteknir í síðustu viku. Starfs- mennirnir voru sakaðir um aðild að mótmælum vegna forsetakosn- inganna í Íran í síðasta mánuði. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Níu starfsmenn í sendiráðinu voru handteknir og sakaðir um að skipuleggja mótmælin, sem yfirvöld líta á sem ólögleg. Að sögn fulltrúa breskra stjórnvalda hefur öllum starfsmönnunum verið sleppt, utan þeirra tveggja sem réttað verður yfir. Þeir munu vera íranskir ríkisborgarar. - kg Mótmælin í Íran: Réttað yfir starfsmönnum DÓMSMÁL Skipaður verður sérstak- ur ríkissaksóknari sem taka mun við öllum störfum ríkissaksóknara sem tengjast á einhvern hátt banka- hruninu, verði frumvarp dómsmála- ráðherra sem rætt var á Alþingi í gær að lögum. Samkvæmt frumvarpinu mun Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari vegna bankahruns- ins, heyra undir sérstakan ríkis- saksóknara. Þar með er ætlunin að taka alveg fyrir aðkomu Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara að málum tengdum bankahruninu, en hann hefur lýst sig vanhæfan í þeim málum vegna starfa sonar síns sem annar forstjóra Exista. Í frumvarpinu er einnig lagt til að embætti sérstaks saksóknara verði „stóreflt“ frá því sem nú er. Bætt verður við þremur saksókn- urum, sem heyra munu undir sér- stakan saksóknara. Þeir munu hafa sjálfstætt ákæruvald og taka sjálf- ir ákvarðanir um ákærur. Verði frumvarpið að lögum munu útgjöld ríkisins hækka um 43 milljónir króna á ári, samkvæmt fjárlaga- skrifstofu fjármálaráðuneytisins. Ragna Árnadóttir dómsmálaráð- herra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Í máli ráðherra kom fram að hugmyndir væru uppi um að fjölga verulega í starfsliði sér- staks saksóknara. Í stað um tuttugu starfsmanna nú verði þeir 36 tals- ins; fjórir saksóknarar, fjórtán lög- fræðingar, tólf lögreglumenn og fjórir endurskoðendur, auk tveggja annarra starfsmanna. - bj Alþingi fjallar um styrkingu embættis sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins: Skipa saksóknara í stað Valtýs STYRKING Hugsanlegt er að starfs- mönnum sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins verði fjölgað í 36. HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR ÓLAFUR F. MAGNÚSSON ÞORLEIFUR GUNNLAUGSSON DAGUR B. EGGERTSSON EGILSHÖLL Aðkoman að þessu stóra fjölnotahúsi hefur lengi verið gestum þess þyrnir í augum. Bæta á úr þessu fyrir haustið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is VIÐSKIPTI Útilokað er að starfs- menn Kaupþings þurfi að greiða tekjuskatt vegna niðurfelling- ar persónulegra ábyrða. Þetta er mat skattasérfræðinga sem Kaupþing hefur ráðfært sig við. Helgi Sigurðsson fyrrverandi lögfræðingur hjá Nýja Kaupþingi greinir frá þessu í aðsendri grein sem birt er í Fréttablaðinu í dag. Helgi segir að skattgreiðslur hljóti meðal annars að taka mið af auðgun starfsmanna og því endurgjaldi sem fólst í sölubanni hlutabréfa í Kaupþingi. Hann segir að bannið hafi komið í veg fyrir að starfsmenn hafi getað forðað sér frá tjóni. -bþa / sjá síðu 20 Hlutabréfalán Kaupþings: Útiloka borgun tekjuskatts BANDARÍKIN, AP Sarah Palin, fyrr- verandi varaforsetaefni banda- ríska Repúblikanaflokksins, til- kynnti í gær að hún hygðist hætta sem ríkis- stjóri Alaska í lok júlí. Ákvörð- un Palin þykir koma á óvart og benda til þess að hún hygg- ist einbeita sér að því að hljóta útnefningu repúblíkana í forseta- kosningunum árið 2012. Palin sagði í gær að þar sem hún hefði ákveðið að gefa ekki kost á sér sem ríkisstjóri í kosningum árið 2010 væri það best fyrir íbúa Alaska að hún viki strax. Sean Parnell, sem verið hefur aðstoðarríkisstjóri Alaska, mun gegna ríkisstjóraembættinu fram að kosningum. - bj Palin hættir sem ríkisstjóri: Orðuð við for- setaframboð SARAH PALIN SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.