Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 4
4 4. júlí 2009 LAUGARDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 32° 28° 31° 26° 23° 27° 24° 26° 26° 25° 22° 30° 28° 34° 23° 28° 23° 19° Á MORGUN Víða 3-8 m/s en 8-15 allra syðst. MÁNUDAGUR 3-8 m/s. 17 14 18 14 15 24 6 7 8 6 4 6 5 8 10 13 622 17 22 18 17 15 17 19 18 14 15 17 12 12 11 13 13 1823 21 ÚRKOMULÍTIÐ Á MORGUN Norð- austurlandið hefur vinninginn í veðr- inu þessa helgina en þrátt fyrir vætu sunnan- og vestan- lands í dag er hlýtt og vindur yfi rleitt fremur hægur. Það styttir hins vegar víðast upp á morgun og líkur á góðum sólarköfl um eftir hádegi um allt land. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður í fullum gangi! Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822 www.polarnopyret.is Útsalan GENGIÐ 03.07.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 229,0491 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,37 126,97 206,12 207,12 176,76 177,74 23,737 23,875 19,612 19,728 16,151 16,245 1,3165 1,3243 195,1 196,26 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR EFNAHAGSMÁL „Það verður að klára þetta. Öðruvísi komumst við ekki í samband við erlenda fjár- magnsmarkaði sem endurreisnin byggir á,“ segir Vilhjálmur Egils- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann færir, ásamt öðrum forsvarsmönnum atvinnu- lífsins og verkalýðsforystunnar, sömu rök og Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra fyrir samþykkt frumvarps um ríkis- ábyrgð vegna Icesave-samning- anna. Steingrímur sagði við fyrstu umræðu frumvarpsins á mið- vikudag að yrði frumvarpið fellt myndi allt annað stranda á því. „Þá kemur október aftur,“ sagði Steingrímur. Áfram var tekist á um Icesave- samningana á Alþingi í gær, annan daginn í röð. Að því loknu var frumvarpinu vísað til fjár- laganefndar, sem kom saman síð- degis til að fara yfir hvaða gesti nefndin skyldi fá á sinn fund vegna málsins og hverjum málið skyldi sent til umsagnar. Búist er við því að fyrstu gestirnir komi fyrir nefndina á mánudag. Fjárlaganefnd mun hafa yfir- umsjón með vinnunni við frum- varpið en ákveðnum hlutum þess mun verða vísað til efna- hags- og skattanefndar og utan- ríkismálanefndar. Áætlað er að það þurfi rúma viku í nefndum áður en það verður tekið til annarrar umræðu á Alþingi. Vilhjálmur segir lyktir máls- ins alltaf hafa verið skilyrði fyrir aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins (AGS) og annarra þjóða að lánveitingum. „Ég tel ekki að með því að hafna samningnum sé hægt að fá annan betri í framtíðinni.“ Vilhjálmur segir að innstreymi erlends fjármagns sé lykilatriði til að koma atvinnulífinu í gang og öll uppbygging næstu ára hvíli á því. „Án aðgangs að slíku láns- fé búum við til kreppu sem mun standa yfir svo árum skiptir.“ „Gleymum því aldrei að mis- tök stjórnmálamanna eru núna að lenda á okkur – þjóðinni,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, for- seti Alþýðusambandsins. Hann segir að í því ljósi sé holur hljóm- ur í málflutningi stjórnarandstöð- unnar þessa dagana. „Mér sýnist, í þeirri stöðu sem við erum í, að samningarnir geri okkur betur kleift en á horfðist að leysa úr þessu erfiða máli. Staðan er sú að ef þjóðin ætlar í þessa deilu með því að fella þessa samninga og setja allt málið í upp- nám aftur er verið að taka áhættu sem ekki er þess virði að taka.“ Helgi Magnús son, formaður Sam- taka iðnaðar- ins, segir málið í heild sinni skelfilegt fyrir Íslendinga. Hann er ósáttur við hvernig að samn- ingunum var staðið og hefði kosið að færustu sérfræðingar hefðu verið valdir til viðræðn- anna við Breta og Hollendinga í stað þess að láta fyrrverandi stjórnmálamann leiða samninga- nefnd Íslands á móti þaulvönum sérfræðingum mótaðilanna. „Ég hefði að sjálfsögðu viljað sjá mun sanngjarnari vexti eins og marg- ir hafa bent á. En nú liggur þessi samningur svona á borðinu og það þarf að taka afstöðu. Ég öfunda alþingismenn ekki af því að þurfa að leiða þetta erfiða mál til lykta en ég er þeirrar skoðunar að við eigum engan annan kost en að samþykkja samninginn og ljúka málinu. Íslendingar standa við skuldbindingar sínar og ég óttast afleiðingar þess ef Alþingi fell- ir samninginn. Þá tæki við enn meiri óvissa í íslensku efnahags- lífi en nú er. Nóg er nú samt.“ Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að stjórn sam- takanna hafi ekki ályktað form- lega um málið en það hafi verið rætt. „Ég heyri ekki betur en að allir stjórnarmenn okkar séu þeirrar skoðunar að við eigum um ekkert annað að velja en að samþykkja þennan samning, eins dapurt og það nú er.“ svavar@frettabladid.is Alþingi á aðeins einn kost Forsvarsmenn atvinnulífsins sem og verkalýðsforystunnar taka undir rök fjármálaráðherra um nauðsyn þess að frumvarp hans um Icesave-samningana verði samþykkt. Uppbyggingin fram undan sé því háð. „Ég tel ekki að með því að hafna samningn- um sé hægt að fá annan betri í framtíðinni.“ VILHJÁLMUR EGILSSON „… við eigum um ekkert annað að velja en að samþykkja þenn- an samning, eins dapurt og það nú er.“ ANDRÉS MAGNÚSSON „… ég óttast afleiðingar þess ef Alþingi fellir samninginn. Þá tæki við enn meiri óvissa í íslensku efna- hagslífi en nú er.“ HELGI MAGNÚSSON „Gleymum því aldrei að mistök stjórnmála- manna eru núna að lenda á okkur – þjóðinni.“ GYLFI ARNBJÖRNSSON Ranglega var farið með nafn umboðs- manns Alþingis í blaðinu í gær. Umboðsmaður Alþingis heitir Róbert Spanó. LEIÐRÉTTING KJARAMÁL „Það er skilningur minn að slitastjórnin hafi fulla heimild til að greiða út laun,“ segir Gylfi Magnússon. Um 100 starfsmenn SPRON fengu ekki greidd laun 1. júlí. Taldi slita- stjórn að ekki væri hægt að greiða út laun þar sem fyrirtæk- ið hefði aldrei farið í greiðslu- stöðvun. „Við sjáum ekki að það sé nein þörf á lagabreytingum en við höfum hins vegar ekkert boð vald yfir slitastjórninni og getum ekki skipað henni að borga laun. Ef það er eitthvað annað sem við gætum gert myndum við hjálpa með það,“ segir Gylfi. Að mati Gylfa er sérstaklega óheppilegt hversu seint tilkynn- ing slitastjórnarinnar kom um að hún myndu ekki greiða launin. Sú tilkynningin kom daginn áður en greiða átti launin. - vsp Gylfi Magnússon um SPRON: Hafa heimild til útborgunar STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Ef samning- urinn verður felldur mun allt annað stranda, segir Steingrímur. Vegna ummæla Kristjáns Möller samgönguráðherra í Kastljósi á fimmtudagskvöld er rétt að ítreka eftirfarandi: Kristján sagði í samtali við blaðamann Fréttablaðsins síðast- liðinn miðvikudag að lífeyrissjóðir, þar á meðal lífeyrissjóðurinn Stapi, hefðu sýnt áhuga á fjármögnun Vaðlaheiðar- ganga. Orðrétt sagði ráðherra: „Það er lífeyrissjóður fyrir norðan sem heitir Stapi, þeir komu til mín öðru hvoru megin fljótlega, ég held fyrir áramót frekar en strax eftir áramót, og lýstu áhuga á að fjármagna Vaðlaheiðar- göng ef út í þau er farið.“ Fréttablaðið áréttar þetta vegna þess að af Kast- ljóssviðtalinu við ráðherra mátti draga þá ályktun að frétt Fréttablaðsins af málinu hefði verið röng. ÁRÉTTING BESSASTAÐIR Dorrit Moussaieff for- setafrú hefur verið stefnt fyrir dóm- stól í London af nágranna sínum, innanhússhönnuðinum Tiggy But- ler. Samkvæmt frétt Daily Mail um málið voru málsatvik með þeim hætti að hinn 23. apríl síðastliðinn tók að leka vatn úr íbúð Butler í íbúð Dorritar sem er á næstu hæð fyrir neðan. Í ákærunni á hendur Dorrit er því haldið fram að í kjölfar lek- ans hafi hún farið ólöglega inn í íbúð Butler ásamt tveimur mönnum og neitað að yfirgefa íbúðina. Dorrit var einnig sökuð um að hafa ausið svívirðingum yfir Butler og hús- hjálp hennar. Í stefnunni er að finna fleiri ásakanir en síðan málið hófst fyrir nokkru hefur Butler dregið tölu- vert af ásökunum sínum til baka. Auk þess hefur Butler verið fyrir- skipað að greiða áttatíu prósent af þeim skaða sem vatnslekinn olli á íbúð Dorritar. Í samtali við Daily Mail segir Dorrit að ásakanir Butler eigi sér ekki neina stoð í raunveruleikan- um. „Hún hélt því fram að ég hefði stokkið yfir tveggja metra háan vegg jafnvel þótt ég hafi verið á hækjum daginn sem það átti að hafa gerst,“ segir Dorrit. Einnig er haft eftir Dorrit í frétt Daily Mail að margt í lögsókninni hefði hún ómögulega getað framið þar sem hún var í útlöndum dag- ana sem það átti að hafa átt sér stað. - bþa Innanhúshönnuður lögsækir Dorrit Moussaieff forsetafrú: Forsetafrú lögsótt af nágranna FORSETAHJÓNIN Dorrit Moussaieff ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SAMGÖNGUR Á tíu ára tímabili, frá 1999 til 2008, hefði mátt forða 36 banaslysum í umferðinni hefðu þeir sem létust notað öryggisbelti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umferðarstofu. Umferðarstofa og VÍS boða til herferðar vegna mikils fjölda alvarlegra slysa sem hefði mátt fyrirbyggja með notkun öryggis- belta. Í tilkynningu segir að enn sé töluverður hópur fólks sem taki þá áhættu að ferðast með bílum án þess að nota beltin. Í herferð- inni verður bent á að það að lenda í árekstri á 55 kílómetra hraða án bílbeltis geti verið svipað og að falla niður af tíu hæða húsi. - bj Herferð vegna öryggisbelta: Beltin hefðu bjargað lífi 36

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.