Fréttablaðið - 04.07.2009, Side 18

Fréttablaðið - 04.07.2009, Side 18
18 4. júlí 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Sigrún Elsa Smáradóttir skrifar um borgarmálin Nú er tæpt ár til borgarstjórnarkosn-inga. Ekki verður annað sagt en að kjörtímabilið hafi verið býsna skrautlegt. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynduðu meirihluta eftir kosningar og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson varð borgar- stjóri. Teknar voru upp nýjar úthlutunar- reglur lóða, til að kynda undir lóðasölu og framkvæmdum í Reykjavík. Borgin seldi hlut sinn í Landsvirkjun á undirverði, án þess að losa borgina undan ábyrgðum á lánum Lands- virkjunar og Orkuveitan keypti hlut í Hitaveitu Suðurnesja á yfirverði. Bjórkælir var bannaður í ÁTVR í Austurstræti en að öðru leyti réði frjálshyggjan ríkjum og hug- myndum um fyrirtækjarekna leikskóla, Glitnis og Kaupþings leikskóla, var hampað auk þess sem tillaga um hlutafélagavæðingu Orkuveitunnar leit dagsins ljós. Það var svo REI málið sem sprengdi fyrsta meirihluta kjörtímabilsins. Fyrsta sprengjan REI málið olli stigvaxandi vandlætingu, eftir því sem kvarnaðist úr þeirri glansmynd sem fulltrúar meirihlutans í stjórn REI drógu upp af samruna REI og GGE, en stærsti eigandi GGE var FL- Group. Endalok fyrsta meirihluta kjörtímabilsins urðu þegar sundurtættur borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins boðaði til blaðamannafundar eftir 3 tíma sáttafund með sjálfum sér. Þar var til- kynnt um þá niðurstöðu að Orkuveitan ætti alfarið að selja REI, með 20 ára einkaréttarsamningi en GGE hefði þá notið forkaupsréttar. Sjálfstæðismönnum láðist að bera þessa niður- stöðu undir samstarfsflokkinn, sem ekki vildi ganga að þessum afarkostum og því var samstarf- inu slitið og vinstri meirihluti myndaður. Dagur B. Eggertsson varð borgarstjóri. Í tíð hundrað daga meirihlutans var skipaður þverpólitískur stýri- hópur borgarráðs til að fara ofan í saumana á REI- málinu. Þar var öllum steinum velt, í ljósi þeirra upplýsinga sem fram komu var samrunanum rift. Undið var ofan af hugmyndum fyrri meirihluta um einkavæðingu á grunnþjónustu og átak gert í starfsmannamálum borgarinnar en á þeim tíma glímdi borgin við mikla manneklu. Óforskömmuð valdagræðgi Þetta samstarf gekk ljómandi vel þar til sjálf- stæðis menn nörruðu Ólaf F. Magnússon, sem var þá nýkominn til starfa eftir veikindaleyfi, úr samstarfinu með því að lofa honum borgarstjóra- stólnum og uppkaupum á húsunum við Laugaveg 4 og 6. Þannig voru rúmar 500 milljónir af skattfé Reykvíkinga notaðar til að kaupa hús, sem algjör óþarfi var að kaupa, þar sem til stóð að friða þau eins og þáverandi menntamálaráðherra lýsti yfir. Einnig er ljóst að afdráttarlaus yfirlýsing um að borgin ætlaði að kaupa húsin og að á því byggðist heilt meiri- hlutasamstarf hækkaði verð húsanna til mikilla muna. Þetta samstarf Ólafs F. og sjálfstæðis- manna var ekki farsælt enda var ljóst strax í upphafi að sjálfstæðismenn voru tilbúnir að fórna því fyrir hvaða annan flokk sem opnaði á samstarf. Ekki leið á löngu þar til valdagræðgi Framsóknar losaði sjálfstæðismenn úr snörunni og núverandi meirihluti tók við. Hann kostaði borgarbúa líka sitt eða um milljarð í viðbótargreiðslur umfram samninga til verktaka. Fyrir skemmstu lak svo út að stjórn Gagnaveitu Reykjavíkur hefði látið vinna fyrir sig skýrslu þar sem fram koma hugmyndir um einkavæðingu á Gagnaveitunni, meirihlutinn sver af sér áform um sölu og lætur sem ráðgjafinn hafi óumbeðið viðrað þessar hugmyndir. Rétt er að taka fram að minni- hlutinn á ekki fulltrúa í stjórn Gagnaveitunnar, ekki frekar en hann átti í stjórn REI, í aðdraganda REI málsins. Þó að ýmislegt hafi gengið á í borginni hefur „Hrunið“ tekið athyglina frá borgarmálum undan- farið, auk þess sem styttast fer í kosningar og eina von sjálfstæðismanna í borginni er að treysta á gleymsku kjósenda. Nýtt leikrit Því hafa þau sig hæg núna, gera sem allra minnst og bæla niður sundurlyndið í eigin röðum. Þeim er tíðrætt um gott samstarf við minnihlutann, sátt og samstöðu. Þetta er nú samt sami Sjálfstæðisflokkur og ætlaði að afhenda FL-Group hlut Orkuveitunnar í REI, einkavæða leikskóla og er enn í laumi að láta kanna einkavæðingarmöguleika. Þetta er sami Sjálfstæðisflokkur og hefur látið borgar- búa borga á annan milljarð fyrir tvo meirihluta til að halda völdum. Sami Sjálfstæðisflokkur og hefur með óvönduðum vinnubrögðum sprengt þrjá meirihluta á þessu kjörtímabili. Það er til marks um flærð borgarstjórnarflokks Sjálfstæð- isflokksins að fyrstu varamenn einmennings- flokkanna F-listans og Framsóknar hafa neitað, samvisku sinnar vegna, að taka þátt í meirihluta með borgarstjórnar flokki sjálfstæðismanna. Hafa fremur kosið að segja sig úr flokkunum og ganga í Samfylkinguna. Brosandi og í lopapeysu býður Sjálfstæðis- flokkurinn nú upp á nýtt leikrit. Þau halda að sér höndum, forðast erfiðar ákvarðanir og segj- ast vera breytt, í þeirri von að kjósendur gleymi hremmingum kjörtímabilsins, sem allar hafa verið í boði Sjálfstæðisflokksins. Því má ekki gleyma, þeim er ekki treystandi. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Friður í borginni? UMRÆÐAN Einar Magnús Magnússon og Ragnheiður Davíðsdóttir skrifa um notkun bílbelta Umferðarstofa og VÍS hafa hrint af stað auglýsingaherferð sem heitir „Notum bílbeltin – alltaf“. Maður myndi halda að það þyrfti ekki að brýna fyrir fólki að hafa öryggisbeltin ávallt spennt, en þó sýna rannsóknir að það hefði mátt forða að minnsta kosti 20% allra þeirra sem létu lífið í umferðar- slysum á árunum 1999 til 2008 frá dauða ef þeir hefðu einfald- lega notað öryggisbelti. Um er að ræða 36 mannslíf. Þá er ekki tal- inn með allur sá fjöldi einstakl- inga sem voru án bílbelta og slös- uðust alvarlega á sama tímabili. Þeir voru samtals 235 og margir þeirra lifa við ævarandi örkuml vegna þess eins að öryggisbelti var ekki notað. Tiltölulega fáir nota almennt ekki öryggisbelti. Þeir eru hins vegar í mikilli lífshættu. Marg- falt sinnum meiri en þeir sem nota öryggisbeltin. Í einhverjum tilfell- um er um hugsanaleysi að ræða en í öðrum tilfellum er það meðvit- uð ákvörðun að nota ekki bílbelti. Ákvörðun sem studd er vægast sagt hæpnum rökum. Við skulum skoða það aðeins nánar. Ég er að fara svo stutt. Það kann- ast vel flestir ökumenn við þessa hugsun. Staðreyndin er hinsvegar sú að flest umferðarslys eiga sér stað innan við 3 km frá upphafstað ökuferðar. Ég fer svo hægt. Árið 2005 lenti 24 ára maður í árekstri við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Báðir bílarnir voru á innan við 50 km/ hraða. Ungi maðurinn sem yfir- leitt notar öryggisbelti sleppti því í þetta skipti – hann var að fara svo stutt. Eftir áreksturinn var hann í lífshættu í nokkra daga. Ósæð rifnaði og mjaðmagrindin brotnaði mjög illa. Hann er 75% öryrki í dag. Í hinum bílnum var 20 ára kona sem slasaðist nán- ast ekkert. Bíllinn hennar var á innan við 50 km hraða og hún var í öryggisbelti. Þetta er aðeins eitt dæmi af fjöldamörgum sem vitna um nauðsyn þess að nota öryggis- belti. Ég vil geta kastað mér út ef bíllinn steypist fram af veginum. Þessi röksemd stenst ekki nema ekið sé löturhægt og jafnvel í þeim tilfellum er það vart á færi annars en Íþróttaálfsins að henda sér út. Ef bíll veltur niður fjallshlíð þá er í flestum tilfellum betra að maður sé inni í honum í stað þess að kast- ast út með ógnarkrafti. Þeir kraft- ar valda í flestum tilfellum lim- lestingum, örkumli og dauða auk þess sem mörg dæmi eru þess að viðkomandi lendir undir bílnum á leið niður. Ég er miklu fljótari að koma mér út úr bílnum ef hann sekkur í sjó. Ef bíll steypist til dæmis fram af bryggju og út í sjó og þeir sem í honum eru nota ekki öryggis belti þá eru allar líkur á því að þeir missi meðvitund vegna höggsins sem verður við það að ökutækið skellur á haffletinum. Menn ná ekki að halda sér eða koma hönd- um fyrir sig við slíkt högg. Ekki einu sinni Íþróttaálfurinn. Með- vitundarlaus mun viðkomandi síðan tapa dýrmætum tíma sem hægt væri að nota í að smella beltinu af sér og koma sér út. Þeir einstaklingar sem verja ákvörðun sína um að nota ekki öryggisbelti með fyrrnefndum röksemdum hafa greinilega ekki lesið rannsóknir sem gerðar hafa verið á árangri og mikil vægi öryggisbelta. Þeir hafa ekki séð allan þann fjölda slysaskýrslna sem eru til vitnis um það að öryggisbeltin skipta sköpum. Þótt hægt sé að finna örfá til- felli þar sem hugsanlega myndi borga sig að nota ekki öryggis- belti þá er ekki mikil skynsemi í því að láta þau örfáu tilfelli leiða til þess að öryggisbeltum er sleppt. Það væri líkast því að nota ekki björgunarvesti við sigl- ingar vegna þess að maður óttast að reka einhverstaðar á land þar sem hugsanlega er mannýgt naut sem gæti laðast að rauðum lit björgunarvestisins. Hafðu skyn- semina með í för og notaðu bíl- beltin – alltaf. Einar Magnús er verkefnastjóri umferðaráróðurs og fjölmiðlunar hjá Umferðarstofu. Ragnheiður er yfirmaður forvarna hjá VÍS. Bjarga hefði mátt 36 mannslífum EINAR MAGNÚS MAGNÚSSON RAGNHEIÐUR DAVÍÐSDÓTTIR SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.