Fréttablaðið - 04.07.2009, Page 34

Fréttablaðið - 04.07.2009, Page 34
●inni&úti6 Stefán Svan situr við eldhúsborðið heima hjá sér á Þórsgötunni og vinnur í tölvunni. Í kringum hann má sjá marga af þeim fjöl- mörgu hlutum sem hann hefur sankað að sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Í notalegri risíbúð á Þórsgötunni hefur fatahönnuðurinn og náms- maðurinn Stefán Svan Aðalheiðar- son hreiðrað um sig. „Ég keypti þessa íbúð fyrir fjórum árum og sé ekki eftir því, enda hefur alla tíð verið afar góður andi hérna,“ segir Stefán. Hann hefur þó gert andann enn betri og íbúð- ina smám saman að sinni. „Ég er búinn að skipta ýmsu út. Meðal annars er ég búinn að setja upp nýja eldhúsinnréttingu og skipta um gólfefni. Íbúðin var sko ekki svona smart þegar ég keypti hana,“ segir Stefán og hlær eins og marbendill. Þrátt fyrir að hafa gert tölu- verðar endurbætur á heimilinu féll Stefán ekki í minímalísku 2007-gryfjuna heldur er íbúðin persónuleg og litrík. Svana hópur í glugganum vekur strax athygli gestsins. „Ég er sjúkur í svani, enda er ég sjálfur svanur. Svo finnst mér þeir bara svo fallegir. Nú eru mínir nánustu farnir að gefa mér svani við öll tækifæri svo ég á vonandi eftir að eiga þús- und stykki þegar ég verð gamall maður.“ Og dýrgripirnir eru fleiri á heimili Stefáns. Veggina prýða listaverk eftir vini hans og svo á hann tvo forláta eldhússtóla sem koma úr búi ekki ómerkari manns en Vilhjálms Vilhjálms- sonar tónlistarmanns. „Vilhjálm- ur leigði íbúð af manneskju sem tengist mér og skildi þessa stóla eftir þegar hann fór. Svo enduðu þeir hjá mér og mér þykir voða- lega vænt um þá.“ Stefán líkir lífinu á Þórsgöt- unni við það að búa í litlu þorpi úti á landi. „Hér í götunni þekkja allir alla. Allir eru vinalegir og góðir hver við annan. Svo er gatan svo róleg að maður gleymir því næstum að maður búi alveg í miðbænum.“ - hhs Svanir, mörgæsir og hreindýr í stofunni ● Stefán Svan Aðalheiðarson, fatahönnuður, starfsmaður í GK og áhugamaður um svani, býr í lítilli og fallegri risíbúð á Þórsgötunni í miðbæ Reykjavíkur. Ís eftir myndlistar- konuna Söru Riel. Græna ljósabarnið lýsir upp skenkinn og af því stafar fagurgrænni birtu. Það fer vel um svaninn og bambann. Stefán heldur mikið upp á bambusstólinn í stofunni, þrátt fyrir að vinum hans þyki hann ljótur. Stefán Svan elskar svani. 4. JÚLÍ 2009 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.