Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 35

Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 35
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Það stendur til að fara upp í Húsa- fell þar sem við konan mín eigum sumarbústað sem við byggðum á gamals aldri. Við fengum lítinn skika og byggðum bústað í mjög notalegu rjóðri. Þar er yndislegt að vera auk þess sem svæðið býður upp á mikla útivist,“ segir Valdi- mar Örnólfsson íþróttafrömuður um helgarplön sín. Þó að ferðin í Húsafell sé til- hlökkunarefni vill hann þó held- ur segja frá því sem hann ætlar að gera næstu helgi. „Þá ætla ég í Kerlingarfjöll að fylgjast með starfseminni þar og líta eftir gamla skíðaskólanum mínum sem er nú hættur,“ segir Valdimar sem rak ásamt fleirum geysivinsælan skíðaskóla í Kerlingarfjöllum í fjöldamörg ár sem lognaðist út af vegna snjóleysis. Hann á þó enn lítið hús í fjöllunum þar sem hann dvelur annað veifið með konu sinni og fjölskyldu. „Húsið heitir Valda- stóll og vísar bæði til nafnsins míns og kannski þeirrar stöðu sem ég gegndi hér áður sem skólastjóri skíðaskólans,“ segir Valdimar glað- lega. Hann segir gaman að fylgjast áfram með þróun og uppbyggingu svæðisins. „Nú er til dæmis verið að setja nýja rafstöð eða vatnsafls- stöð í staðinn fyrir þá gömlu. Það eru mikil forréttindi fyrir staðinn að geta unnið rafmagn úr bæjar- læknum,“ segir Valdimar, sem rak skíðaskólann frá árinu 1963 og var aðstaðan byggð upp hægt og rólega. Í upphafi var þar aðeins gamli skáli Ferðafélags Íslands en með tímanum voru byggð ein sautján hús í Kerlingarfjöllum sem mynda nokkurs konar smá- þorp inni á miðju hálendi. „Skólinn starfaði allt til ársins 2000 og flest sumrin var maður þarna því sem næst allan tímann, frá júníbyrjun til ágústloka,“ segir Valdimar, sem telur að um fimmtíu þúsund manns hafi lært á skíði í skólanum á þessum fjörutíu árum. „Það er ekki lítið innlegg í heilsu- ræktarsjóð þjóðarinnar,“ segir Valdimar, sem á enn dálítinn hlut í fyrirtækinu sem sér um starfsem- ina í dag. „Ég styð það eins vel og ég get en annars eru það ungir og drifmiklir menn sem eru að byggja þetta upp.“ Inntur eftir því hvað hann geri sér til dundurs í fjöllunum svar- ar hann: „Þá fer ég í fjöllin og hef skíðin með mér, labba eins hátt og ég get og renni mér og hef svaka- lega gaman af. Svo er ég í stöðugu sambandi við túristana, rabba við þá og syng kannski með þeim á kvöldin,“ segir Valdimar og bætir við að sér þyki Kerlingarfjöllin einhver dýrðlegasti staður á jörð- inni. solveig@frettabladid.is Dýrðarstaður jarðar Valdimar Örnólfsson nýtur náttúrunnar í Húsafelli um helgina en næstu helgi stefnir hann upp á hálendið, nánar tiltekið í Kerlingarfjöll þar sem hann ætlar að dvelja ásamt fjölskyldu sinni í húsinu Valdastól. Valdimar á margar góðar stundir í garðinum sínum. Um helgina ræktar hann annan garð við sumarbústað sinn í Húsafelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR VOLCANO OPEN -golfmótið stendur yfir í Vest- mannaeyjum þessa dagana. Um 240 kylfingar taka þátt í mótinu, sem er eitt það stærsta á landinu. Í Eyjum stendur einnig yfir Goslokahátíð um helgina þar sem margt er um að vera. SUMARHÚS OG FERÐALÖG Gaskæliskápar 100 og 180 lítra Gashellur Sólarrafhlöður og fylgihlutir. 10-80w Coolmatic 12v ísskápar m/ kælipressu Gas vatnshitarar 5 - 14 l/mín Kælibox gas/12v/230v Gas eldavélar og helluborð Sólarrafhlöður fyrir húsbíla og fellihýsi. Þunnar 75 - 130w B Reykja k Opið virka daga frá kl. 8.15 til 17.30 Gasofn Gashelluborð Olíuofn Dúnmjúkar BRÚÐARGJAFIR Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is Við hjá Lín Design erum í essinu þegar kemur að brúðkaupsgjöfum. Vörulína okkar er hönnuð á Íslandi þar sem íslensk náttúra spilar stórt hlutverk. Allt okkar efni er sérvalið svo úr verð- ur vara sem gefur mýkt og hlýju. Brúðhjón sem eru með gjafalista hjá Lín Design fá gjöf frá versluninni ef keypt er af listanum. Hlý og persónuleg þjónusta BRÚÐARGJAFIR Lin Design

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.