Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 50

Fréttablaðið - 04.07.2009, Síða 50
„Það er heiður að reka starfsemi í þessu húsi og okkar sérhæfing felst í því að allt meðlætið er heimabak- að, bæði brauð og kökur,“ segir Gauti Árnason mat- reiðslumaður glaðlega. Hann og kona hans, Ragnheiður Rafnsdóttir, eiga og reka Kaffi Tulinius. Ásamt kaffi og öðrum drykkj- um bjóða þau hjón upp á þjóðlegt meðlæti á borð við flatkökur með hangikjöti, rúgbrauð með silungi eða eggi og síld, kleinur og pönnukökur með rjóma, líka tertur af ýmsu tagi. „Við einbeitum okkur að þessu íslenska, gamla og góða og fólk tekur því fagnandi,“ segir Gauti. „Sumir líkja komu sinni hingað við kaffi- boð hjá ömmu.“ Gamlar myndir taka á móti gestum í forstofunni á Kaffi Tuliniusi og á veggjum veitingasalarins eru málverk hornfirsku meistaranna Bjarna Guðmunds- sonar og Höskulds Björnssonar. Í ganginum þar á milli er svo ljósmyndasýning eftir ungan Hornfirð- ing, Hlyn Pálmason. „Við erum að reyna að vera svolítið menningarleg,“ segir Gauti kankvís. „Tókum þá ákvörðun að vera í stíl við húsið með það sem við bjóðum upp á, bæði fyrir auga og maga.“ - gun Eins og að koma í kaffiboð hjá ömmu ● Nýtt kaffihús var opnað í elsta húsi Hafnar í Hornafirði fyrir skemmstu. Það er skammt frá bryggj- unni og heitir Kaffi Tulinius eftir kaupmanninum Ottó Tuliniusi sem byggði húsið árið 1897. Kaffi Tulinius er í elsta húsi Hafnar, sem oft er kallað Kaup- mannshúsið. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN Vertarnir Gauti og Ragnheiður einbeita sér að þessu íslenska, gamla og góða. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN FORTÍÐARÞRÁIN N authólsvík hefur löngum haft mikið aðdráttarafl fyrir börn jafnt sem fullorðna. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því þessi mynd var tekin í júní árið 1975. Þar sitja tveir drengir í stígvélum á bryggjunni og bíða spenntir eftir því að taka þátt í siglinganámskeiði. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR 4. JÚLÍ 2009 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.