Fréttablaðið - 04.07.2009, Side 80

Fréttablaðið - 04.07.2009, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans Í dag er laugardagurinn 4. júlí 2009, 185. dagur ársins. 3.12 13.32 23.50 2.11 13.16 0.19 Síðasta sunnudag var úrslitaleik-ur svokallaðrar álfukeppni í knattspyrnu leikinn. Þar áttust við lið Bandaríkjamanna og margfald- ir heimsmeistarar Brasilíumanna. Leikurinn var hin besta skemmt- un. Bandaríkjamenn komu veru- lega á óvart með frækilegri fram- göngu og í hálfleik var staðan 2-0 þeim í vil. Þá bitu Brasilíumenn í skjaldarrendur. Þeir skoruðu þrjú mörk í síðari hálfleiknum og fóru með sigur af hólmi. Leikurinn var skólabókardæmi um flest það sem gert hefur knattspyrnu að vinsæl- ustu íþrótt í heimi. Sjónvarpið á heiður skilinn fyrir að sýna leik- inn í beinni útsendingu. LEIKURINN fór fram á hefð- bundnum fréttatíma hérlendis. Fyrir vikið varð að hliðra frétta- tímanum til, eins og áralöng hefð er fyrir þegar heimssögulegir atburð- ir eða Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva eiga í hlut. Þrátt fyrir þetta sáu einhverjir ástæðu til að fjargviðrast yfir því að frétt- irnar skyldu ekki vera á réttum tíma. Einn fór mikinn á blogginu sínu, fannst nú sem Icesave væri mikilvægara en einhver fótbolti og óafsakanlegt að taka afþreyingar- efni í hæsta gæðaflokki fram yfir nýjasta þvargið í stjórnmálaleið- togunum okkar um það viðkvæma mál. Fréttirnar eiga að hans mati að vera klukkan sjö en ekki sex og allt annað að víkja á þeim tíma. Á honum var að skilja að kreppan hans dýrmæta myndi seyrna og skemmast ef hann fengi ekki nýj- ustu eymdarfréttirnar stundvís- lega á hverjum degi. AUÐVITAÐ ætti Sjónvarpið fyrir löngu að vera búið að koma sér upp sérstakri rás til að sýna frá merki- legum viðburðum, sem einhverjir kynnu ekki að hafa áhuga á, í stað þess að dagskráin fari alltaf öll á ská og skjön með reglulegu milli- bili, til dæmis í kringum HM eða EM í fótbolta og Ólympíuleika. En í raun er þessi tilfærsla dagskrár- liða fyrir löngu orðin rótgróinn hluti af íslenskri sjónvarpshefð og engum ofraun að fylgjast með því hvenær fréttirnar eru þegar þannig ber undir. Kreppufréttir og Icesave-umræða eru vita- skuld bráðnauðsynlegar lýðræð- inu í landinu. En kreppan er ekki að fara neitt. Hún verður hér enn eftir að næsti fótboltaleikur er búinn og líka sá þarnæsti. ALLT hefur sinn tíma. Og stund- um er einfaldlega tími til að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða – þótt það sé kreppa. Fréttir og fótbolti BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.