Fréttablaðið - 21.07.2009, Side 6
6 21. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
SAMGÖNGUR Bílprófsaldurinn verð-
ur hækkaður í átján ár, og leyfi-
legt áfengismagn í blóði ökumanna
lækkar um meira en helming nái
breytingar sem nefnd samgöngu-
ráðherra vill gera á umferðar-
lögum fram að ganga.
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra skipaði nefnd til að endur-
skoða umferðarlögin í nóvember
2007, og hefur hún nú skilað til lög-
um sínum til ráðherra. Tillögurn-
ar eru á formi frumvarps, og geta
áhugasamir gert athugasemdir við
frumvarpið, sem finna má á vef
ráðuneytisins, til 15. september.
Eitt af því sem nefndin leggur
til er að bílprófsaldurinn verði
hækkaður úr sautján árum í
átján. Leggur nefndin til að það
verði gert í áföngum. Árið 2012
verði ökumenn að hafa náð sautján
ára og þriggja mánaða aldri, árið
2013 sautján ára og sex mánaða,
árið 2014 sautján ára og níu mán-
aða aldri, og að átján ára aldurs-
takmarkið verði komið að fullu til
framkvæmda árið 2015.
Í greinargerð með frumvarps-
drögum nefndarinnar segir að
slysatíðni þeirra sem taki bílprófið
sautján ára sé talsvert hærri en
hjá þeim sem taki prófið átján ára.
Búast megi við því að þeir sem
taki prófið átján ára valdi sex pró-
sentum færri slysum en þeir sem
taki prófið sautján ára.
Þá er einnig bent á að einstak-
lingar verði lögráða við átján ára
aldur. Núverandi fyrirkomulag
valdi vanda þegar ólögráða öku-
menn lendi í slysi sem valdi þeim
eða öðrum fjárhagslegu tjóni.
„Auðvitað eru skiptar skoðan-
ir innan okkar stéttar,“ segir Jón
Haukur Edwald, formaður Öku-
kennarafélags Íslands, sem átti
sæti í nefnd samgönguráðherra.
„Við stöndum ekki á móti þessu
ef þetta stendur til bóta,“ segir Jón
Haukur. Hann segir mikilvægt
að breytingin verði gerð í fjórum
áföngum. Verði bílprófsaldurinn
hækkaður um eitt ár í einu vet-
fangi myndi það „ganga af stétt-
inni dauðri“.
Almenna reglan í Evrópusam-
bandinu er sú að bílprófsaldurinn
sé átján ár, segir Kjartan Þórðar-
son, sérfræðingur hjá Umferðar-
stofu. Heimildir séu fyrir því að
lækka bílprófsaldurinn í sautján ár,
en sér vitanlega hafi aðeins Bret-
land, Írland, Pólland og Austurríki,
auk Íslands, leyft sautján ára fólki
að taka bílprófið.
Kjartan segir að umræða hafi
verið um að hækka bílprófsaldurinn
í átján ár í Bretlandi fyrir rúmum
áratug. Niðurstaðan hafi verið sú
að gera það ekki. Rannsóknir hafi
sýnt að nýir átján ára ökumenn hafi
verið alveg jafn reynslulausir og
nýir sautján ára ökumenn. Því hafi
verið hætt við að hækka bílprófs-
aldurinn. brjann@frettabladid.is
NOTAÐU
FREKAR VISA
TÖFRASTUNDIR
VISA Í SUMAR
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ Á HVERJUM DEGI!
100 stórglæsilegir ferðavinningar
að verðmæti yfir 4.000.000 kr.
fyrir alla sem
www.gottimatinn.is
góðir með grillmatnum
– Tilbúnir til notkunar! Þarf í mesta lagi að setja þá í skál.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
0
9
7
fituminnstagrillsósan!
loksins fáanlegiraftur!
Vilja bílprófsaldur í
átján ár í áföngum
Nefnd samgönguráðherra leggur til viðamiklar breytingar á umferðarlögum.
Ísland er eitt fárra Evrópulanda með sautján ára bílprófsaldur. Mikilvægt að
hækka aldurinn ekki í einu stökki segir formaður Ökukennarafélags Íslands.
SAMRÆMA HRAÐA Nefnd samgönguráðherra leggur meðal annars til að hámarkshraði á þjóðvegum landsins verði 90 kílómetrar
á klukkustund fyrir öll ökutæki. Í dag er hámarkshraðinn 80 kílómetrar á klukkustund hjá stórum bílum og bílum með tengivagn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ekki er fýsilegt að tekjutengja umferðarsektir, eins og gert er í Finnlandi, að
mati nefndar samgönguráðherra sem fjallað hefur um breytingar á umferðar-
lögum. Slík tekjutenging myndi hafa ýmsa ókosti í för með sér, til dæmis þyrfti
mun umfangsmeiri útreikninga en nú tíðkast til að ákvarða sektir.
Þá bendir nefndin á að tekjutengingin geti reynst þungbær þeim sem verði
fyrir mikilli tekjuskerðingu, til dæmis vegna atvinnuleysis, séu sektir miðaðar
við skattframtal síðasta árs. Einnig geti verið erfitt að ákveða upphæð sekta
fyrir erlenda ökumenn.
Tekjutenging virðist ekki hafa teljanleg áhrif á almennt umferðaröryggi í
Finnlandi, að því er fram kemur í greinargerð með drögum að frumvarpi sem
nefndin hefur sent samgönguráðherra. Þar segir að tíðni umferðarlagabrota í
Finnlandi sé áþekk því sem gerist hjá hinum Norðurlandaþjóðunum.
FINNSKA LEIÐIN EKKI TALIN FÝSILEG
Meðal þess sem nefnd sem unnið hefur að endurskoðun umferðarlaga
leggur til eru eftirfarandi breytingar á umferðarlögum:
■ Bílprófsaldurinn hækki úr sautján árum í átján í áföngum.
■ Leyfilegt áfengismagn í blóði við akstur lækki úr 0,5 prómillum í 0,2 prómill.
■ Hámarkshraði á þjóðvegum verði 90 kílómetrar á klukkustund fyrir öll
ökutæki, ekki lægri fyrir stór ökutæki og bíla með tengivagna eins og er nú.
■ Allir eftirvagnar verði skráningarskyldir, ekki bara þeir sem eru yfir 750
kílógrömmum eins og í dag.
■ Fangelsisrefsingum verði beitt í ríkari mæli við alvarlegum umferðarlaga-
brotum, til dæmis hraðakstri, ölvunarakstri og akstri án ökuréttinda.
■ Sviptingartími vegna alvarlegra brota verði að jafnaði lengdur.
FANGELSISREFSINGUM VERÐI BEITT OFTAR
SJÁVARÚTVEGUR Fjögur skip
HB Granda voru á síldveið-
um um 100 sjómílur norður af
Melrakka sléttu um helgina.
Mikið var um síld, makríl og
loðnu auk þess sem fjöldi hnúfu-
baka sást.
Það vakti athygli skipverja á
skipinu Lundey NS að makríll,
sem veiddist með síldinni, var
ýmist fullur af loðnu eða síld.
Skipverjarnir halda úti heima-
síðu þar sem þetta kemur fram.
Maginn í makrílnum var skoð-
aður og var mikill meirihluti
hans með loðnu í maganum og
margir með rauðátu og síldar-
hreistur líka. - þeb
Skipverjar á Lundey NS:
Makríllinn étur
loðnu og síld
Ertu hrædd(ur) við
svínaflensuna?
Já 37,8%
Nei 62,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga lífeyrissjóðirnir að hlaupa
undir bagga með Landsvirkjun
við fjármögnun?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
KJÖRKASSINN
FILIPPSEYJAR, AP Maður frá Sádi-
Arabíu giftist filippseyskri konu
til þess eins að hún gæti gefið
honum annað nýra sitt. Talið er
víst að maðurinn hafi ætlað að
kaupa nýrað og giftingin hafi
verið yfirhylming.
Lög um líffæragjöf eru mjög
ströng á Filippseyjum til þess að
reyna að koma í veg fyrir sölu á
líffærum. Undantekningar eru
gerðar þegar líffæragjafi er
tengdur fjölskylduböndum eða
öðrum tilfinningalegum böndum.
Sádi-Arabinn sótti um ígræðslu
og skráði eiginkonu sína sem
gjafa. Upp komst um svikin
þegar í ljós kom að þau voru
nýgift og maðurinn talaði hvorki
ensku né filippseysku, og konan
talaði ekki arabísku. - þeb
Sádiarabískur maður:
Giftist til að fá
nýra konunnar
Lítil vandræði í kosningum
Engin stórvægileg vandamál komu
upp við framkvæmd kosninga í Már-
itaníu, samkvæmt franska utanrík-
isráðuneytinu. Ráðuneytið viður-
kenndi þó ekki meintan sigurvegara
kosninganna, Mohamed Ould Abdel
Aziz. Andstæðingar hans hafa sagt að
kosningasvindl hafi átt sér stað.
MÁRITANÍA
Ómerkja ekki tímamótadóm
Hæstiréttur í Indlandi ætlar ekki að
ómerkja dóm dómstóls í Delhi þess
efnis að kynlíf samkynhneigðra sé
ekki refsivert. Dómurinn var tíma-
mótadómur fyrir samkynhneigða,
en hefur einnig vakið mikla reiði
trúarleiðtoga. Dómurinn mun fá að
standa þangað til hæstiréttur dæmir
í málinu.
INDLAND
ÍRAN, AP Æðsti leiðtogi Írans, Aya-
tollah Ali Khamenei, varaði stjórn-
arandstöðu landsins í gær við því
að halda áfram mótstöðu sinni. Við-
vörunin kom í kjölfar þess að fyrr-
verandi forseti Írans, Mohammad
Khatami, kallaði eftir þjóðarat-
kvæðagreiðslu um lögmæti ríkis-
stjórnarinnar. Það sé eina leiðin út
úr því ástandi sem nú ríki í land-
inu.
Khatami gagnrýndi klerka-
stjórnina óbeint með því að segja
að óháðir aðilar, sem almenning-
ur gæti treyst, yrði að annast slíka
kosningu. Klerkastjórnin hafði
umsjón með forsetakosningunum.
Annar fyrrum forseti, Akbar
Hashemi Rafsanjani, hefur gagn-
rýnt æðsta leiðtogann og forset-
ann. Á föstudag krafðist hann þess
að öllum þeim sem voru handteknir
í mótmælum eftir forsetakosning-
arnar yrði sleppt. Rafsanjani er
hátt settur meðal æðstu klerka
landsins og stuðningur hans því
mikilvægur fyrir stjórnarandstöð-
una. Leiðtogi hennar, Mir Hossein
Mousavi, lét hörð orð falla í garð
stjórnarinnar og Khamenei sjálfs
í gær. Hann sagði að íranska þjóð-
in hefði verið móðguð með ásök-
unum um að mótmælin eftir for-
setakosningarnar í landinu hefðu
verið skipulögð af útlendingum.
Þá sagði hann klerkastjórnina nú
þurfa að takast á við nýjan hlut;
þjóð sem hefði verið vakin og ætl-
aði að verja afrek sín. - þeb
Æðsti leiðtogi landsins varar stjórnarandstöðuna við mótstöðu:
Áframhaldandi spenna í Íran
ÆÐSTU LEIÐTOGAR Ayatollah Ali
Khamenei hélt ræðu í Teheran í gær, og
Ahmadinejad forseti og aðrir embættis-
menn sátu við hlið hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP