Fréttablaðið - 21.07.2009, Side 14
21. júlí 2009 ÞRIÐJU-
DAGUR
2
SNYRTIVÖRUFRAMLEIÐANDINN MÁDARA
var nýverið valinn umhverfisvænasta fyrirtækið árið 2009
í Lettlandi. Alls kepptu 150 fyrirtæki um titilinn. Vörur frá
Mádara fást í Heilsuhúsinu og Lyfju Smáralind.
„Þetta eru Norður landa sumar-
búðir fyrir hjartveika unglinga á
aldrinum fjórtán til átján ára sem
hafa verið í gangi í tuttugu ár í
Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Dan-
mörku,“ segir Guðrún Bergmann,
formaður Neistans, styrktarfélags
hjartveikra barna, en sumarbúð-
irnar eru haldnar í fyrsta sinn á
Íslandi og standa frá 19. til 26. júlí
á Laugarvatni. Íslendingar taka
þátt í fjórða sinn í ár.
Þegar Guðrún er innt eftir því af
hverju ákveðið hafi verið að halda
sumarbúðirnar á Íslandi segir hún:
„Það er meira samstarf á milli
Norðurlandanna núna og við kom-
umst allt í einu að því að við eigum
fullt af hjartveikum unglingum,“
segir Guðrún og bætir við að þegar
Neistinn frétti af þessum norrænu
sumarbúðum hafi verið ákveðið að
fara í samstarf og íslenskir ungl-
ingar sendir í búðirnar.
Guðrún segir að staðsetning
búðanna gangi á milli Norður-
landanna. Nú taka 45 unglingar
þátt og eru fjórtán fararstjórar
með í för. Aðspurð segir Guðrún að
flestir unglingarnir séu að koma
til Íslands í fyrsta skipti. „Það er
voða gaman hérna og ekki skemm-
ir veðrið fyrir. Við erum aðallega
í leikjum til að kynnast og eigum
eftir að skoða landið í vikunni, fara
á Gullfoss og Geysi og Bláa lónið.
Þeim finnst ekkert mál að fara frá
Laugarvatni í Bláa lónið,“ upplýs-
ir hún.
„Margir lifa fyrir búðirnar og
finnst ómetanlegt að hitta krakka
sem eru í sömu stöðu og þeir sjálf-
ir. Ég tek eftir því að í búðunum eru
allir jafningjar,“ útskýrir Guðrún.
Er ekki mikill undirbúningur að
baki? „Jú, það var flókið að koma
þessu saman en sem betur fer tókst
það á endanum. Við fengum hjálp
frá Norðurlöndunum og gátum
spurt þau eins og við vildum. Svo
fengum við aðstoð frá ýmsum fyrir-
tækjum á Íslandi og lánaði Toyota
okkur til dæmis tvo bíla til afnota
og Neistinn þakkar fyrir það.“
Eru læknar og hjúkrunarfræð-
ingar með í för? „Það er hjúkrunar-
fræðingur með okkur alla vikuna
sem fer hvert sem er með okkur.
Nokkrir unglinganna eru á lyfjum
og það þarf að fylgjast með að þeir
taki þau. Svo létum við hjartalækn-
inn okkar vita þannig að það er fullt
af fólki á bakvakt til öryggis ef eitt-
hvað kemur upp á.“
martaf@frettabladid.is
Hjartveikir unglingar í
sumarbúðir til Íslands
Norðurlandasumarbúðir fyrir hjartveika unglinga eru haldnar í fyrsta sinn á Íslandi í vikunni en alls taka
45 börn frá fimm löndum þátt. Sumarbúðirnar hafa verið haldnar á Norðurlöndunum síðastliðin 20 ár.Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Á dagskrá Norðurlandasumarbúða fyrir hjartveika unglinga eru leikir, kynningar og Ísland verður skoðað. MYND/MIKKO NIIPALA
Í sumarbúðunum eru 45 unglingar frá
fimm löndum og fjórtán farastjórar.
Auglýsingasími
– Mest lesið