Fréttablaðið - 21.07.2009, Side 30

Fréttablaðið - 21.07.2009, Side 30
22 21. júlí 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Grænmeti og klósettpappír. 2 40 ár. 3 Stewart Cink. LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. kofi, 6. frá, 8. líða vel, 9. þrí, 11. klaki, 12. tólf, 14. kál, 16. bardagi, 17. púka, 18. bók, 20. á fæti, 21. á kökur. LÓÐRÉTT 1. mælieining, 3. mun, 4. eingyð- ingur, 5. flan, 7. kælir, 10. strá, 13. skáhalli, 15. steintegund, 16. rölt, 19. drykkur. LAUSN LÁRÉTT: 2. skúr, 6. af, 8. una, 9. trí, 11. ís, 12. tylft, 14. salat, 16. at, 17. ára, 18. rit, 20. il, 21. krem. LÓÐRÉTT: 1. vatt, 3. ku, 4. únítari, 5. ras, 7. frystir, 10. íla, 13. flá, 15. talk, 16. ark, 19. te. „Ég er að vinna á bíl svona á daginn þannig það er frekar misjafnt, til dæmis FM957, Bylgjan, Rás 2 og Gull 909.“ Halldór Óskarsson, rafvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur. „Síðast voru það Cannes- verðlaunin, sem Vínbúðarmynd- in tók og síðan eru það þessi, þannig að þetta gengur vel,“ segir Samúel Bjarki Pétursson auglýs- ingaleikstjóri. Þeir Gunnar Páll Ólafsson unnu nýverið hin virtu Telly Awards fyrir Samsung- auglýsingu sína með Michael Ballack í aðalhlutverki. Aug- lýsingin hefur áður unnið til verðlauna, en hún var valin ein af fimmtíu bestu auglýsingum í Bretlandi á síðasta ári, af auglýsingastof- um Bretlands. „Sá sem framleiddi auglýs- inguna sendi hana inn í keppn- ina. Þannig að við vissum ekki einu sinni að við værum þátt- takendur. En það er gaman að því. Maður verður að reyna að safna einhverjum verðlaun- um til að koma sér áfram.“ Telly Awards eru mjög virt amerísk verðlaun og eru veittar viðurkenningar fyrir allt frá sjón- varpsþáttum til auglýsinga og er keppt í mörgum flokkum. Sam- sung auglýsingin fékk verðlaun í flokki auglýsingaherferða, „Bus- iness-to-Consumer“. Verðlaunin eru í formi styttu sem er gerð af þeim sömu og g e r a Ó s k a r s - verðlaunastyttuna og Emmy-verð- launin. „Ég held að það sé ekk- ert sem heit- ir gullverð- laun í þessari keppni, maður vinnur silfrið, sem er þessi verðlaunagripur.“ En eins og Íslendingum er alkunnugt er silfrið best. „Já, við erum í silfurliðunum. En það var voða skemmtilegt að sjá þessi verðlaun detta inn,“ segir Samúel. En hvað er næst hjá drauma- teyminu? „Það eru einhverjar íslenskar auglýsingar fram undan og jafnvel einhverjar erlendar, en það er allt á vinnslustigi. Við vorum að klára auglýsingar fyrir Samtök iðnaðarins sem koma fyrir sjónir Íslendinga bráðum. Það er smá stund milli stríða núna, aðeins að endurhlaða batteríin. Við erum búnir að vera yfirbókaðir síðan um áramót þannig að það er sem betur fer ekki búin að vera mikil kreppa í þessu.“ Meðal verkefna má nefna risaauglýsingu í Tékk- landi fyrir Kozel bjór sem er í eigu SAB Miller, framleiðanda Miller og Grolsch, en Fréttablað- ið sagði frá því í maí. Samúel vill ekki staðfesta nein risaverkefni að þessu sinni; „en það er hitt og þetta á borðinu.“ kbs@frettabladid.is GUNNI OG SAMMI: HLUTU VIRT VERÐLAUN FYRIR SAMSUNG-AUGLÝSINGU Ballack færir þeim silfrið VIRT ERLEND VERÐLAUN Auglýsingaleikstjórarnir Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson hlutu nýverið hin virtu Telly Awards fyrir auglýsingu sem þeir gerðu fyrir Samsung raftækjarisann. SILFURDRENGUR Michael Ballack, fyrirliði þýska landsliðsins í knattspyrnu, lék í auglýs- ingu íslensku leikstjóranna. Poppstjarnan Birgitta Haukdal og Bene- dikt Einarsson, eiginmaður hennar, skírðu frumburð sinn á föstudaginn. Hlaut sonurinn nafnið Víkingur Brynj- ar. Drengurinn er skírður í höfuð föður Birgittu og föðurafa. Sumarið er viðburðaríkt hjá knattspyrnukonunni Katrínu Jónsdóttur. Ekki einasta fer hún fyrir íslenska landsliðinu á Evrópu- mótinu í Finnlandi heldur ætlar hún líka að ganga í hjónaband um verslunar- mannahelgina. Tilvonandi eigin- maður hennar er Þorvaldur Makan Sig- björns- son knatt- spyrnu- maður. Tökum er nú lokið á gamanmynd- inni Jóhannesi sem Laddi leikur aðalhlutverkið í. Vegfarendur um Reykjanesbraut urðu sannarlega varir við tökuliðið á föstudaginn var. Þá var hluta brautarinnar lokað um tíma þegar rúmlega 20 tonnum af vatni var sprautað yfir þau Ladda og Unni Birnu Vil- hjálmsdóttur. Var þar verið að skjóta upphafsatriði myndarinnar, þegar hremm- ingar Jóhann- esar byrja. Myndin verður frumsýnd í haust. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI „Hann líkti mér við Yvonne Elli- man, sem söng lagið upphaflega. Hann sagði að ég minnti hann á hana og hljómaði eiginlega alveg eins og hún, sem mér fannst geð- veikt,“ segir Katrín Ýr Óskarsdótt- ir söngkona um masterclass nám- skeið sem hún tók hjá Tim Rice, einum frægasta söngleikjahöfundi allra tíma. Katrín söng lagið I Don‘t Know How to Love Him, úr Jesus Christ Superstar sem Rice samdi ásamt Andrew Lloyd Webber. Hún segir söngleikinn í uppáhaldi. „Ég þurfti að sannfæra kennarann minn um að fá að syngja þetta lag, ekki eitt- hvað annað. Hann kom upp í skóla til að segja frá lífi sínu og hvernig hann hefði komist áfram í bransan- um. Við vorum nokkur sem feng- um að syngja fyrir hann og fá til- sögn frá honum. Hann er rosalega jarðbundinn miðað við hvað hann er frægur.“ Katrín Ýr stundar nám í Ins- titute of Contemporary Music Per- formance og á ár eftir. Meðfram námi hefur hún kennt og sungið með ýmsum böndum, auk þess að gera eigin tónlist. „Það er búið að vera frekar mikið að gera í sumar. Ég er í einhverjum fimm eða sex hljómsveitum í augnablikinu, ég kvarta ekki.“ Áhugasamir Íslend- ingar í London geta kíkt á Katrínu á The Good Ship í Kilburn átjánda september. Er stefnan sett á söngleikina? „Ég ætlaði í söngleikjanám, áður en ég fór í námið sem ég er í núna. Ég veit það ekki. Ég er búin að vera að vinna með stelpum sem hafa unnið mikið á West End. Ég hef verið að spjalla við þær og önnur ætlar að láta mig vita ef hún veit af einhverjum prufum, þannig að það er aldrei að vita. Það væri ekkert leiðinlegt, þó ég sé meira í popp- og rokk-geiranum.“ -kbs Hrós frá kóngi söngleikjanna UPP MEÐ SÉR Katrín Ýr var ánægð með gagnrýni Tims Rice á söng hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Listamaðurinn Kristjan Zaklynsky varð fyrir barðinu á óprúttnum aðila um helgina þegar tölvunni hans var rænt af honum á skyndi- bitastað í miðbæ Reykjavíkur. „Ég og kær- asta mín vorum að fara að borga fyrir pitsu- sneiðar sem við höfðum keypt þegar einhver rífur af mér tölvutöskuna mína og hleyp- ur burt. Við fengum að skoða upptökur úr öryggis myndavél staðarins en þar sést ekki í þjófinn heldur,“ segir Kristjan. Tölvan var af gerðinni MacBook Pro, með fimmtán tommu skjá og var búið að líma Gogoyoko-límmiða yfir eplið, vörumerki framleiðandans. Tjón- ið er talsvert því í tölvutöskunni var einnig harður diskur og myndavél. „Harði diskur- inn og myndavélin mín voru einnig í töskunni þannig að öll vinna mín síðustu tvö árin er að mestu horfin, en meðal þess var tónlistar- myndband fyrir Pál Óskar, tónlist sem ég hef samið með hljómsveitinni Company B og teikningar sem ég var að vinna fyrir nokkrar auglýsinga stofur.“ Kristjan segist vera tryggður en að hann fái tjónið ekki bætt þar sem honum var hvorki hótað af þjófnum né hlaut líkamleg meiðsl. „Ég er bæði með heimilistryggingu og tækja- tryggingu hjá TM, en þeir segjast ekki bæta tjón sem þetta nema að mér hafi verið hótað eða ef ráðist hafi verið á mig, sem er bæði skrítið og skítt. Starfsmaðurinn sem afgreiddi okkur sagði einnig að þau fengju mörg sam- bærileg mál inn til sín en að þau séu sjald- an bætt.“ Kristjan, sem flytur til New York eftir mánuð, vonast til að tölvan komi í leitirnar og hefur lofað fundarlaunum endurheimti hann gripinn. „Það er hægt að ná í mig í síma 869- 6844 eða senda mér póst á kristjanz@gmail. com. Ég væri mjög þakklátur fengi ég tölvuna aftur,“ segir Kristjan að lokum. - sm Tryggður en fær tjónið ekki bætt RÆNDUR Á ALMANNAFÆRI Kristjan Zaklynsky segir það vera mikinn missi að hafa tapað tölvunni og lofar fundarlaunum komi hún í leitirnar. smyrja bílinn hjá Max1 Max1 verðdæmi á ódýrri smurþjónustu Toyota Yaris 1,3 Olía, olíusía og vinna: 9.095 kr. Nissan Almera 1,5 Olía, olíusía og vinna: 9.092 kr. Mazda3 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.370 kr. Ford Focus 1,6 Olía, olíusía og vinna: 9.688 kr. Sparaðu, láttu Smurþjónusta Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Skoðaðu www.max1.is Innifalið 2 lítrar af Max1 rúðuvökva

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.