Fréttablaðið - 01.08.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er laugardagurinn 1. ágúst
2009, 213. dagur ársins.
4.35 13.34 22.31
4.02 13.19 22.32
Þegar ég var strákur langaði mig óskaplega mikið til að
verða skáld þegar ég yrði stór. Sú
list að geta með fáum, vel völdum
orðum haft djúp áhrif á fólk, jafn-
vel látið það fá gæsahúð, heillaði
mig alveg upp úr skónum. Á meðan
félagar mínir dáðu poppstjörnur,
knattspyrnumenn og leikara fann
ég mínar fyrirmyndir í Skólaljóð-
um, bókinni sem sennilega hafði
mest áhrif á menningarlega mótun
mína í uppvextinum.
ÞEGAR ég varð unglingur og fór
að kynna mér ævi þessara karla og
þann hluta kveðskapar þeirra sem
ekki rataði í Skólaljóðin ágerðist
þessi áhugi minn. Það sem einkum
heillaði mig þá var drykkjuskapur-
inn og kvensemin sem nánast virt-
ist vera hluti af starfslýsingu þjóð-
skálds. Eymdin, ógæfan og volæðið
sem einnig virtist vera skilyrði
var í augum mínum rómantískt og
eftirsóknarvert hlutskipti.
AF ÞESSUM sökum tók ég ungur
að reyna að temja mér drykkju-
skap og kvensemi. Ég vona að ég
hljómi ekki sjálfbirgingslega þótt
ég leyfi mér að fullyrða að mér
hafi bara tekist allvel upp, einkum
við drykkjuskapinn. Ég læt liggja
á milli hluta hvort kvensemin hafi
skilað jafnmiklum árangri og erf-
iði.
AFTUR á móti varð minna úr því
að kveðskapur minn væri sú tæra
snilld sem stefnt var að. Ljóðin
sem breyta áttu því hvernig Íslend-
ingar hugsuðu um sjálfa sig, upp-
runa sinn og gildismat létu á sér
standa. Aldrei tókst mér að toppa
Bjössa litla á Bergi, Bikarinn eða
Ef. Steinn Steinarr var auðvitað
með öllu ósnertanlegur. Eftir á að
hyggja var þetta kannski vegna
þess að einhvern veginn hafði sú
hugmynd læðst að mér að ef ég
bara væri nógu iðinn við drykkju-
skapinn og kvensemina sæi restin
um sig sjálf.
ÞAÐ kom mér því verulega á
óvart þegar ég komst að því löngu
síðar að hægt væri að yrkja ljóð
fyrir hádegi á virkum degi. Áður
hefði ég getað svarið fyrir það að
skapandi hugsun væri möguleg á
hefðbundnum skrifstofutíma. Að
sitja við yrkingar eins og hverja
aðra vinnu var eitthvað sem ekki
hafði hvarflað að mér að skil-
að gæti neinu sem varið væri í.
Þó var það nákvæmlega það sem
Halldór Laxness hafði gert með
góðum árangri og reyndar fleiri
skáld líka. Mér hafði bara láðst að
kynna mér þau. Þau voru nefni-
lega ekki eins spennandi. Kannski
af því að drykkjuskapinn og kven-
semina vantaði.
„Við það augun
verða hörð …
195,-/m.
JORUN púði B35×L35cm.
Marglitað 995,- 695,-