Fréttablaðið - 01.08.2009, Blaðsíða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI1. ágúst 2009 — 181. tölublað — 9. árgangur
Stjórnskipulegt
hlutverk forseta
UMRÆÐAN 10
Þjónar Guði í byggð
og óbyggð
VIÐTAL 14
SÉRBLAÐ
Hestvagnaferðir
eins og á 19. öld
INNI OG ÚTI
inni&úti
LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2009 Sumarblað Fréttablaðsins
● SINDRI ÞÓR HANNESSON
Upprennandi siglingakappi
● HESTVAGNAFERÐIR Á AKUREYRI
Í anda Jane Austen
● NÁTTÚRA ÍSLANDS
Við þjóðveginn
KONUNGLEGT
Flora Danica-
borðbúnaðurinn
á rætur sínar að
rekja til átjándu
aldar. SÍÐA 6
ENGAR
GEIM MYNDIR
Ólafur Egill Egils son
mælir með drama-
tískum bíómyndum í
bústaðinn. SÍÐA 2
VERSLUNARMANNA-
HELGIN ÁÐUR FYRR
ÚTIHÁTÍÐIR 16
SKOÐANAKÖNNUN 12
HVAÐA FLOKKSLEIÐTOGI NÝTUR MESTS TRAUSTS?
EGILL KENNIR
MANNASIÐI
FÓLK 30
LÖGREGLUMÁL Grunur leikur á að
fjórir ungir fjársvikarar, sem nú
sitja í gæsluvarðhaldi, hafi tekið
svikin að sér til að fjármagna
skipulagða glæpastarfsemi sér
eldri manna sem fengu þá til
verksins. Þeir hafi verið viðbúnir
því að taka skellinn fyrir brotin og
sitja inni. Féð, nokkrir tugir millj-
óna, er enn ófundið og er alls óvíst
hvort það finnst nokkurn tíma.
Svik mannanna voru afar flók-
in og er það samdóma álit heim-
ildarmanna blaðsins að menn um
og undir tvítugu geti tæpast hafa
átt frumkvæðið að þeim. Rann-
sókn lögreglu hefur meðal ann-
ars beinst að því hverjir kunni að
standa á bak við þá.
Piltarnir tóku yfir stjórn
tveggja fyrirtækja með því að
falsa tilkynningar til fyrirtækja-
skrár um breytingar á stjórnum
og breytta prókúruhafa. Síðan
stungu þeir undan fé í eigu félag-
anna.
Þá fölsuðu þeir kaupsamninga
að fasteignum í eigu félaganna,
létu þinglýsa þeim hjá sýslumanni
og tóku tugmilljóna lán fyrir kaup-
unum hjá Íbúðalánasjóði, sem þeir
stungu einnig undan. Svikin nema
minnst fimmtíu milljónum, og er
talan enn talin geta hækkað.
Tveir mannanna voru hand-
teknir þegar þeir reyndu að leika
sama leik með þriðja félagið en
voru gómaðir. Hinir tveir voru
handteknir í vikunni við komuna
frá Malaga á Spáni. Fjórmenn-
ingarnir sitja í einangrun fram í
næstu viku hið minnsta. Frekari
handtökur eru ekki útilokaðar.
Heimildarmenn blaðsins segja
athyglisvert að svikin eru þess
eðlis að nær útilokað hefði verið
fyrir mennina að komast upp með
þau án þess að nást. Þeir hafi ekki
haft sérstaklega fyrir því að hylja
slóð sína, bættu til dæmis sjálf-
um sér á lista yfir stjórnarmenn
félaganna og færðu hið svikna fé
í fyrstu á eigin reikninga. Ómögu-
legt hefði verið fyrir raunverulega
forsvarsmenn félaganna að yfir-
sjást svikin. Þá hafa sumir þeirra
þegar játað brotin að hluta.
Því er talið að mennirnir ungu
hafi vitandi vits tekið skellinn
fyrir raunverulega höfuðpaura í
málinu, en ekki fyrr en þeim tókst
að koma fénu undan. Málið þykir
til marks um þrepaskipt kerfi í
glæpaheiminum, þar sem menn
ávinna sér virðingu með því að
vinna skítverk möglunarlaust. - sh
Peð í íslenskri mafíu
Fjórmenningar um tvítugt, sem sitja í varðhaldi vegna stórfelldra fjársvika,
taldir starfa fyrir hærra setta glæpamenn. Taldir viðbúnir að taka út refsingu.
HANDBOLTI Íslenska nítján ára
landslið karla í handknattleik hafn-
aði í öðru sæti á heimsmeistara-
mótinu í Túnis eftir tap gegn Kró-
ötum í úrslitaleik, 40-35.
Þrátt fyrir tapið í gær er þetta
besti árangur íslensks liðs á heims-
meistaramóti. -óój / sjá síðu 25
Íslenska nítján ára liðið:
Tap í Túnis
SILFUR Arnór Stefánsson markvörður íslenska 19 ára landsliðsins getur ekki leynt vonbrigðum sínum eftir tap á móti Króatíu í úrslitaleik HM í Túnis í gærkvöldi.
M
YN
D
/M
IC
H
A
EL H
EU
B
ER
G
ER