Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 8
SAMVINNAN 3. HEFTI Steypið steina — byggið góða bæi Eftir ÞÓKI B ALDVINSS O'IV í síðasta hefti Samvinnunnar birtist grein eftir Klemenz Kristjánsson, kornræktarfræðing á Sáms- stöðum, undir nafninu Steypum steina, byggjum bæi. Ég geri ráð fyrir, að margir lesendur hafi veitt grein þessari eftirtekt. Klemenz Kristjánsson er einn af okkar fáu vísindamönnum. Starf hans er engin akta- skrift. Hann er þrautreyndur í því að fylgjast af vís- indalegri nákvæmni með hverju því starfi, sem hann vinnur eða lætur vinna. Orð hans eru því ekki fleipur. Þau eru byggð á staðreyndum, sem óhætt er að treysta. Steypum steina, byggjum bæi, segir Klem- enz á Sámsstöðum. Það hefur tekið íslendinga langan tíma að komast upp á það að hlaða veggi úr steinum, gerðum af manna höndum. Við vorum vanir að hlaða veggi úr torfi og grjóti, en þegar hætt var að nota þau bygg- ingaefni, virðist eðlilegt, að skyldar aðferðir um veggjagerð hefðu tekið við, úr því að þeirra var völ. Svo varð þó ekki, enda var munurinn meiri en í fljótu bragði mætti virðast. Þegar býggður var torf- og grjótveggur, voru hnausarnir oft stungnir á bygg- ingarstaðnum jafnóðum og hlaðið var, en grjót ekki ósjaldan við hendina í gömlum veggjarústum. Hér þurfti því litla fyrirhyggju, og kom það sér vel, því að fyrirhyggjan hefur aldrei verið okkar sterka hlið, hvorki til sjós né lands. Það er hins vegar of seint að ræmi, sem hann afmáði, þegar gamli torfbærinn var rifinn, en í fullkomnari mynd eftir kröfum tímans, með auknum þægindum og hentugra fyrirkomulagi. Eins verður kaupstaðarbúinn jafnan að minnast þess, um leið og hann byggir sér íveruhús í þéttbýlinu, að hvert slíkt hús er steinsteyptur minnisvarði um menningarstig og þroska hinnar ungu íslenzku kaup- staðamenningar, en hvort tveggja á að bera samtíð- inni vitni, er aldir líða. H. B. steypa steinana, þegar tími er kominn til að hlaða vegginn. Klemenz Kristjánsson skýrir frá því, hvernig hann steypir steina í afgangsstundum frá öðrum störfum. Hann bendir á, að jafnvel einyrkinn hafi að jafnaði dálítinn tíma afgangs á vetrum. Þessar stundir getur hann notað til steinasteypu, ef hann kemur sér upp torfkofa með þykkum veggjum og hlýju torfþaki, þar sem hann getur unnið að þessari framleiðslu, án þess að hún eyðileggist af frosti fyrsta sólarhringinn, sem steinarnir eru að harðna. Fjöldi húsa er nú reistur árlega úr hlöðnum steini. Stórvirkar verksmiðjur, sumar með mjög fullkomn- um vélum, framleiða steina þessa í tugþúsundatali. Þess háttar framleiðsla hæfir vel bæjum og miklu þéttbýli. En í dreifbýli sveitanna verður flutnings- kostnaður þessa varnings óþarflega mikill og bæja- framleiðslan of dýr. Þar verður sjálfs höndin hollust. Þar hentar aðferð hins góða bónda og vísindamanns, Klemenz á Sámsstöðum. Hér á landi er aðallega um þrjár tegundir st’eyptra veggjasteina að ræða. Eru það einfaldir steinar úr venjulegri steinsteypu, R-steinar úr sama efni og hol- steinar úr vikursteypu. Hinir síðast töldu eru mest notaðir og hafa ýmislegt sér til ágætis. En þeir hafa einnig sínar veiku hliðar, og gæta verður vissra ör- yggisráðstafana, ef vel á að fara. Því miður verða oft mistök í þessum efnum, og eru því mörg þessara húsa köld og rakasöm. Til þess að vikurhús geti lánast, er það fyrsta skil- yrðið, að vikurinn, sem notaður er í steinana, sé nægi- lega traustur, en vikur er mjög misjafnt efni af nátt- úrunnar hálfu. Ef vikurinn er mjög smágjör, verður að nota meira sement, svo að steypan verði nægilega sterk. Aukið sement rýrir hins vegar einangrunar- hæfni steinsins, og er því betra, að vikurinn sé ekki 76

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.