Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.03.1944, Blaðsíða 17
3. HEFTI SAMVINNAN ekki svo lengi, því að hann tekur sér kaffidrykkju frá af þeim tíma. Skrifstofumaðurinn telur þetta of langan vinnudag fyrir sig og fær hann víða styttan. Barnakennarinn þarf að lögum ekki að kenna, nema 5—6 stundir á dag. En barnið er látið vera í skólanum 5—6 stundir á dag suma vetur skölaskyldunnar, og þar að auki eru því sett fyrir heimaverkefni, sem geta orðið því jafn- vel þriggja tíma starf á dag til viðbótar. Sé áður nefndur vinnudagur fullorðna mannsins hæfilega langur, —- eða jafnvel helzt til langur eins og sumir halda fram, — hvaða vit er þá í því að leggja þetta á barnið? Reynslan mun líka vera sú, að aðeins óvenjulega glaðar og góðar námsgáfur barna — samfara líkam- legri hreysti — þola þessa meðferð í langsetuskólum. Eftir 7 ára skólaskyldu, í 9 mánuði á ári sum árin, er svo komið hjá alltof miklum hluta barnanna, að námsgleði þeirra er dauð, námsáhuginn liðinn undir lok, en námsleiðinn kominn í staðinn. Og þessu fylg- ir svo, á mismunandi háu stigi að vísu, það sem skáld- ið nefnir „voða vatnssýki í minni og visnun á skynj- un.“ — Ég skal taka annað dæmi: Mér skilst, að frá því hafi meira og meira verið horf- ið í skólunum upp á síðkastið að hlýða hverju og einu barni yfir. Aftur á móti er hópurinn allur spurður, þegar spurt er. Eða þeir nemendur, sem telja sig geta svarað, látnir gefa merki og einhver þeirra svarar. Með þessu fyrirkomulagi verður handleiðsla kenn- arans ekki fyrir einstaklinginn svo sem skyldi. Máttar- minni og gálausari nemendur missa af hendi hans. t>eir verða aftur úr. Tækifæri er gefið til undan- bragða frá því, að nemendur fylgist með. Hinn veiki barnsvilji fær ekki þann stuðning, sem hann þarfn- ast og lærifaðirinn á að geta veitt honum. Skólinn leyfir einstaklingnum að hverfa í skugga hópsins — eða lætur hann gera það, — og þar verður hann skuggaplanta gul og guggin. Hvað verður um fræ samviskuseminnar og sjálfs- viröingarinnar í sálum bamanna, sem lenda í skugga hópsins? Hvernig þroskast persónuleiki þeirra? Hvers virði er langt skólauppeldi fyrir þau? ■— og fyrir þjóðfélagið, sem elur þau á þennan hátt upp handa sér? Ég ætla ekki að þessu sinni að nefna fleiri dæmi eða taka fleiri atriði skólanna til umræðu. Þessi tvö dæmi sýna, að mínu áliti, tvö megin-„glappaskot,“ sem gerð eru, og valda miklu um það, að ekki tekst Síökur eftir Pál á Hjálmsstöðum LOFTUR STÝRIMAÐUR. Sœr þá spillist, lœrist Loft lipurð snillihanda. Stýrir Gylli œrið oft öruggt milli landa. Skúm þótt breiði á borðin dröfn, og bylgjur freyði háar, ratar skeiðin rétt í höfn Ránarleiðir bláar. FLUGVÉLAR í LOFTI. Heyrist gnýr í háloftum, hljóðið skýrist mesta. Flokkur nýr af flugvélum fœlir kýr og hesta. Þœr eru að gœgjast geimnum á að glœpahrœfuglunum. Þœr eru að bœgja þjóðum frá þýzku sœuglunum. Sindrar um stafna sólin gljá, seigur og jafn er gangur. Nœr mun safnast Fróni frá fjandans hrafnaslangur? vel fyrir barnaskólunum að annast uppeldið að því leyti, sem þeir hafa verið látnir taka það að sér. Börnunum er ofboðið með of löngum námstima. Það er of litil rœkt lögð við einstaklinginn. Þannig er „máttur og megin úr menningu dregin.“ Þeta er svo alvarlegt, að um það má segja, að barnssálin sé borin út á klakann. 85

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.