Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1944, Page 26

Samvinnan - 01.03.1944, Page 26
SAMVINNAN 3. HEFTI Milli fjalls og fjöru Um nokkra mánuði hafa verið auglýstar fjárgróðaútgáfur af tveim frægum fornritum, Heims- kringlu og Flateyjarbók. Það er þjóðarminnkun að þessar bækur og mörg fleiri fornrit skuli ekki vera til á hverju heimili. Rándýr- ar útgáfur bæta ekki úr þeirri vöntun. Það kaupa ekki aðrir en peningamenn eða bókasafnendur bækur sem kosta 200—400 kr. Um Heimskringlu er það að segja, að fornritaútgáfan hefur gefið út fyrsta bindið af þrem, og heldur því verki áfram. Er það að öllu leyti hin eigulegasta útgáfa. Þá hefur verið mjög umtalað, að menntamálaráð gæfi Heims- kringlu út í heimilisútgáfu, og verður það væntanlega þrauta- lendingin. * Þessa dagana er að koma á markaðinn á vegum Menningar- sjóðs og Þjóðvinafélagsins Njála og Saga íslendinga í Vesturheimi, annað bindi. Njála er í fyrsta sinn í íslenzkri útgáfu prýdd lands- uppdráttum og myndum af sögu- stöðum. Er bókin hin eigulegasta. Áformað er að viðskiptamenn þjóðarútgáfunnar fái eitt bindi af íslendingasögum árlega um nokk- ur ár, þar til íslendingasögur eru á hverju heimili. * Frágangur og stafsetning Njálu frá hendi Magnúsar Finnbogason- ar og Björns Guðfinnssonar er nú þegar orðinn til eftirbreytni fyrir aðra útgefendur fornrita. Jónas Sveinsson gefur út Flat- eyjarbók undir yfirumsjón Sigurð- ar Nordal, en Ragnar Jónsson for- stöðumaður í smjörlíkisgerðinni Smári Heimskringlu, hvorttveggja mjög dýrar útgáfur. Er fullyrt, að þessi tvö dýru verk byggi á þeim grundvelli, sem lagður er í Njálu. Halldór Kiljan Laxness mun hafa lagt áherzlu á við Ragnar Jónsson, að höfð yrði á Heimskringlu sama stafsetning og útgáfuform eins og þeir félagar höfðu áður á Lax- dælu og Hrafnkötlu. En Ragnar mun hafa svarað því, að það borg- aði sig ekki fjárhagslega að halda lengur áfram þeirra fyrri tilraun. * Sigurgeir biskup Sigurðsson hefur farið mikla frægðarför til Ameríku. Var hann fyrst fulltrúi íslands á Þjóðræknisþingi íslend- inga í Winnipeg og fór síðan um flestar meiriháttar byggðir landa vestanhafs, þar á meðal eftir allri strönd Bandaríkjanna við Kyrra- hafið. í Bandaríkjunum var honum vel fagnað og veittur margháttað- ur sómi. Er sú sæmd að verulegu leyti sýnd íslenzku þjóðinni, vegna góðra kynna á undangengnum ár- um. Ferð biskups mun væntanlega fá sérstaka þýðingu, með því að tengja íslenzku kirkjuna og söfn- uði íslendinga vestan hafs nánari kynningarböndum heldur en áður. * Mikil breyting stendur til á hér- aðsskólunum, þegar unt verður að koma á fót rúmgóðum vinnustof- um fyrir pilta og stúlkur, eftir að friður kemst á í heiminum. Var sett löggjöf um þetta efni 1939, en ekki verið unt að koma henni i framkvæmd nema að litlu leyti. Er þá svo ráð fyrir gert, að náms- tíma verði skipt milli vinnu- kennslu, bóknáms og íþrótta. Gert er ráð fyrir eins konar framhalds- námi í bóklegum fræðum fyrir nemendur, sem eru rnjög vel að sér í móðurmálinu, málfræði og bók- menntum, þannig, að það nám verði brú yfir til annarra og erfið- ari bóknámsstofnana. * Einkennilegt atvik kom fyrir í brúðkaupsveizlu í einum af stærri kaupstöðum landsins. Embættis- maður var að mæla fyrir minni brúðarinnar og dró ekki úr hrós- yrðunum. Komst hann svo að orði, að sér hefði jafnan þótt foreldrar og frændfólk brúðarinnar standa einna fremst meðal „almúga- fólks“ í bænum. Brúðhjónunum og fólki þeirra öllu þótti þetta grálega mælt. Vissi, að þetta orð var eitt af algengustu niðrunar- heitum, sem dönsku selstöðukaup- mennirnir beittu við íslendinga. Þóttust menn, er í boðinu voru, tæplega hafa heyrt þetta óvirðu- lega orð haft um hönd síðan er- lendi verzlunarlýðurinn hvarf úr landi. Þótti boðsgestum þessi orð- ræða bera vott um óvenjulega grómtekna og grófa sál ræðu- manns, og takmarkalausa fyrir- litningu í garð borgaranna í land- inu. Nokkur önnur orð eru enn til í málinu, sem þörf er á að endur- fæða, í því skyni, að þau verði ekki til óþarfra leiðinda í landinu. Sums staðar vantar heppileg orð algerlega, t. d. um roskna ógifta stúlku. Þá eru orð eins og vinnu- kona og fjósamaður, sem heimskir menn hafa gert að niðrunarorðum, svo að ekki verður úr bætt, nema með nýju heiti. Nýlega hefur kom- ið fram í blaði bending um að nefna allar konur frúr, hvort sem þær eru giftar eða ógiftar, eins og allir karlmenn bera sama á- varpsheiti. Sú beiskja, sem lögð hefur verið í orðin vinnumaður, vinnukona og fjósamaður, hefur að miklu leyti eyðilagt þessar gagnlegu stéttir. í síðustu heims- styrjöld tóku Danir upp þann sið Framh. á bls. 97 94

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.