Samvinnan


Samvinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 12

Samvinnan - 01.02.1947, Blaðsíða 12
UNDANFARIÐ hefur verið sýningaröld hér á landi, eða í Reykjavík að minnsta kosti, og ekki er útlit fyrir, að hún taki skjót- an enda. Hver sýningin hefur rekið aðra, og má nefna sem þær helztu Byggingasýninguna, Sjávarútvegssýninguna og Tónlistarsýning- una, sem nú nýlega er lokið, auk málverka- sýninga, sem eru töluvert annars eðlis en hin- ar. í undirbúningi er svo Landbúnaðarsýn- ing, sem vænta má að verði stórkostlegust af þeim öllum, og er hún mikið tilhlökkunar- efni öllum þeim, sem unna íslenzkri atvinnu- sögu í fortíðinni og því framhakli hennar, sem hulið er í skauti framtíðarinnar. Sýningar eru ekki nýtt fyrirbrigði. Flest söfn eru t. d. sýningarsögn og hlutverk þeirra er öðrum Jiræði að gefa yfirlit yfir allt það, sem upp á er boðið á sérsýningunum. Þegar sérstök atvinnugrein eða listgrein er tekin fyrir á sérsýningu, er allri athyglinni beint um stund að henni einni, það er brugðið yfir liana miklu sterkara ljósi en unnt er að gera á yfirgripsmiklum þjóðmenningarsöfnum og því ólíkt meiri líkur til, að hægt sé að gera hana skiljanlega og áhugaverða öllum al- menningi. Sýningar þessar eru haldnar í fróð- leiksskyni á þann hátt, að lögð er stund á að kynna sýningargestinum þróunarferil við- Dr. Páll ísólfsson heldur reeðu uið opnun tonlistarsyningarinnar. Boðið upp á þegnrétt í ríki tónanna Með Tónlistarsýningunni í Reykjavík hafa tón- listarmenn gert tilraun til þess að ávarpa þjóðina ,,á máli hins ólýsanlega“ komandi málefnis eða menningargreinar um aldaraðir og sýna honum svart á hvítu, hvern- ig sá áfangi, sem hún er nú stödd á, hefur náðst. í áróðursskyni þannig, að brýnt er fyr- ir mönnum menningargildi greinarinnar, út- skýrð áhrif hennar á þjóðlífið og bent á veg- inn, sem iðkendur hennar hyggjast fara, hið menningarlega mark sem hún setur sér. Sýn- ingarnar eru undantekningarlaust áróður fyrir íslenzka menningu og mun ekki af veita. Sjón er sögu ríkari, segir máltækið og í krafti þessa gamla, viðurkennda sannleiks eru sýningarnar haldnar. Maður er orðinn svo langþreyttur á hrókaræðum og útlistunum, að maður verður dauðfeginn að geta tekið við dálitlum fróðleik með öðru skilningar- viti en heyrninni. Það er stundum talað um sýnikennslu. Sýningar þessar eru einmitt sannkölluð sýnikennsla, og þær vekja mann til hugsunar um þá feikna möguleika, seni það kennsluform hlýtur að búa yfir. Hugsa sér sýnikennslu í sumum námsgreinum, t. d. landafræði með kvikmyndum, er sýndu líf og háttu fólks úti um víða veröld! Eða náttúru- fræði, jafnvel sögu. Þetta er raunar útúrdúr, en það væri meira gaman að era skólapiltur, er maður ætti þess kost að sjá sjálfur eitthvað af því, sem blessaðir kennararnir eru að lýsa. 12 Tónlistina verður maður að meðtaka með heyrn sinni og margan mundi því gruna, að erfitt væri að kynna þá list með sýningu. Nú er bað raunar satt, að á þessari sýningu er miklu fleira fyrir eyrað heldur en á þeim öðrum sýningum, sem hér hafa verið haldn- ar. Hér eru flutt ágæt tónverk ýmissa meist- ara og tónlist margra landa kynnt á sérstök- um tímum með dæmum og fyrirlestrum. Er þetta fróðlegt fyrir alla og unaðslegt fyrir þá, sem svo eru af guði gerðir, að þeim er unnt að njóta þessarar listar, sem snjall maður hef- ur kallað „mál hins ólýsanlega". En þó að þessu sé sleppt og aðeins talað um jjað, sem hér er sýnt, sýninguna sjálfa, þá verður mað- ur að viðurkenna með aðdáun, að það hefur tekizt að bregða hér upp sjónmynd, sem vak- ið getur hinn ósöngvasta hljómleysingja til umhugsunar um hag og hlutverk þessarar list- ar. Ríki tónanna er honum ef til vill ekki opnara að heldur, en það má mikið vera, ef honum eykst ekki löngun til að vinna sér Jiar borgararétt, og Jtar með er honum strax farið að miða í rétta átt. Ætli það sé ekki öllu öðru fremur þetta, sem vakað hefur fyrir hin- um góðu mönnum, sem beittu sér fyrir sýn- ingunni, að ýta við þeim sljóu og kveikja Jrrá eftir hlutdeild í þeirri list, sem þeir hafa helgað líf sitt. Tónlistarsýningin var opnuð við sterkan og annarlegan þyt hinna fornu dönsku brons- lúðra, ,^m eru fornastir allra norrænna hljóð- færa og skipa veglegan sess í hljómlistarsögu heimsins. Þeir voru smíðaðir á bronsöld hinni nýju, um 800 f. Kr., meðan glórulaust siiguleysi hvíldi enn yfir Norðurlöndum. A sínum tíma hafa þeir sennilega verið þeyttir við guðsþjónustur þeirra tíðar manna, er þeir tignuðu sólguðinn, hvernig sem þær rnessur hafa nú annars verið. í sambandi við það a eg einkennilega og skemmtilega minningu. Vorið 1938 fór eg með nokkrum dönskurn stúdentum til Langalands í heimboði gamals kaupmanns, sem Winther hét. Hafði sá áhuga mikinn á fornleifafræði og eyddi bæði fé °S kröftum henni til framgangs. Ekkert sparaði hann til að gera okkur dvölina sem skemmti- legasta og sýndi okkur allar þær fornmenjar, sem hann þekkti á eynni, og þær voru ekki fáar. Eitt sem hann sýndi okkur, var sólve bronsaldarmanna, eða helgistaður, þar sem sólarguðinn hefur tignaður verið. Var þa® gríðarmikill aflangur hóll vaxinn kjarrskogt með stórum trjám innan um. Ekki voru Jtar mannaverk utan steinahrúgald allmikið, sem mun hafa verið það allra helgasta meðan það var og hét. En ef el var að gáð, mátti greina fornlegan götusneiðing skáhallt upp vestur- lilið hólsins og upp á hann nyrzt, en síðan beygði liann til suðurs og stefndi þá á grjot- hrúguna, sem þá var í hásuðri, horfði við sól, er hún var hæst á lofti. Allt Jretta útskýrði Winther með logandi fjöri og umlifnun: „Hugsið ykkur,“ sagði hann, „bronsaldar- fólkið safnazt saman hvaðanæva og halda i

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.