Samvinnan - 01.12.1947, Blaðsíða 18
„BORNIN ÞJAST AF HUNGRI“ „DRENGUR LEITAR SER TRAUSTS“
Þessar teikningar eru eftir kiinna, pýzka lislakonu, Kaethe Kollwitz; teikningar henhar lýsa vel harmsögulegum atburðum nútimans.
BÖRNIN I EVRÖPl); HIN ÞÖGULA, ÞJÁDA SVEIT
ANNARS STAÐAR í þessu hefti er sagt frá
jólahaldi á íslandi að forntt og nýju og frá
jólasiðum í ýmsum löndum. hcssi frásögn er af
hamingjuríkum minningum, jafnvel þótt oft hafi
skort allsnægtir. Enginn stóð þó svangur upp frá
jólaborðinu, og fáir eru þeir, sem hafa klætt
jólaköttinn á landi hér á liðnum áratugum.
Nú ganga jólin enn í garð. Þatt verða enn
hamingjuhátíð, andleg og líkamleg uppörvun
fyrir nnga og aldna, liátíð fjölskyldunnar og
hins góða heimilislífs víðast í byggðum landsins.
Borð hlaðin af krásum og góðar gjafir handa
flestum, jafnvel þótt ekki verði nú jafn mikið
í þær borið og oft áður. Við höfum því vissulega
Jólahaldið í ár verður gleðiríkara, ef
hver þegn vinnur það heit með sjálfum
sér, að leggja fram sinn skerf.
ástæðu til að vera þakklát ættjörðinni og for-
sjóninni fyrir hið góða fóstur liðinna ára, og
minnast þess, að í okkar sporum mundi margur
vilja standa á þessum jólum. Það er hollur lær-
dómur nú, að rifja það upp, að í mörgum lönd-
um Evrópu og Asíu ríkir hin sárasta neyð á þess-
um jólum, og að á sama tíma og börnin okkar
ganga prúðbúin í kringttm jólatrén sín — jafnvel
þótt trén verði með fátæklegasta móti — búa 30
—60 milljónir barna í þessum heimsálfum við
hungur og klæðleysi, eiga naumast þak yfir
höfuðið annað en hellisskúta eða hálfhrunda
kjallaraholu. Þúsundir þessara barna bera rninjar
stríðsins í sál og á líkama og munu bera þær til
æviloka. Mikill fjöldi varð fyrir stórslysum í
loftárásum styrjaldarinnar, hökta um á öðrum
fæti eða mega sig tæpast hræra, og þó eru e. t. v.
dýpri sárin, sem ástvinamissir og upplausn lieim-
ilisins hafa markað í sál þeirra.
„Þessi börn kvarta ekki.“ segir bandarísk hjúkr-
unarkona, sem hefur kynnt sér ástandið, í grein
í amerísku tímariti nú nýlega. „Enginn hefur séð
þau fara kröfugöngur til bústaða sendiherra,
ríkisstjórna eða hernámsvelda, eða bera kröfu-
spjöld. Þau eru liin þögla sveit í veröldinni í dag,
og það er furðulega hljótt um þau rneðal þeirra,
sent heilir eru og við allsnægtir búa.“
Erfiðasta viðfangsefni þeirra, sem láta sig
þessi mál nokkru skipta nú, er sulturinn. Hann
stafar frá styrjöldinni, sent eins og allar styrjaldir
fyrr og síðar, lagði í rústir bændabýli og borgir,
eyddi bústofni og skildi við sviðið land, en að-
eins í miklu stærri stíl en áður. Stríðið eyddi
fjölskyldulífinu að meira eða minna leyti og
upprætti möguleika barnanna í mörgttm lönd-
um til hamingjuriks heimilislífs og tók frá þeim
næringuna, sem þau þarfnast mest af öllu á
þroskaskeiði.
18