Samvinnan - 01.03.1951, Síða 11
:
, iU □□ □ □ □t ] □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □□
r fP □ >! | □□
Hér er bráðabirgða tillöguuppdráttur af hinni
fyrirhuguSu umferðamiðstöð, gerður af Herði
Bjarnasyni skipulagsstjóra, en aðstoðararkitekt
var Gunnlaugur Pálsson. — Flugvélar verða
framan við stöðina og afgreiðsla i vinstri álmu.
Langferðabifreiðar verða i básunum hægra meg-
in á aflurálmu, en vinstra megin við hana kern-
ur umferð úr bœnum. Byggja má hverja álmu
fyrir sig, eina og eina hrcð i einu, og er pað gert
til að gera framkvœmd viðráðanlegri.
Á efri hæðum hinna álmanna verða
skrifstofur bifreiðaeigenda og hvíldar-
stofur flugmanna og bifreiðastjóra,
ferðaskrifstofan og veðurstofan. I
turninum verður loks hluti af veður-
stofunni og flugumferðastjórnin sjálf,
sem þarf að vera í nokkurri lyftingu
til að sjá vel yfir allan flugvöllinn.
Þannig verður þessi stöð í stórum
dráttum. Hún mun verða til mikilla
þæginda, þegar allir þessir aðilar, sem
vinna náskyld störf við hin mikilvægu
samgöngumál, komast undir eitt þak.
En þótt aðeins neðsta hæðin eða hluti
hennar rísi á næstu árum, munu þær
þúsundir manna, sem farartækin nota,
hafa mikil þægindi að. Hefur verið
(Framh. á 23. siðu)
11