Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1953, Side 12

Samvinnan - 01.01.1953, Side 12
Veftu mí, ýbqa! INDRIÐI G ÞORSTEINSSON minnist nokkurra daga á Balaríeyjum Þessari Miðjarðarhafsferð er lokið. Minnisstæðust úr för minni er dvöl mín á eynni Ibiza. Ibiza er ein af Balaríeyjunum, fámenn, láglend og byggð fólki, sem maður gæti fundið við störf í bæjum hérlendis, prúðu og hæglátu, og reiðubúnu að vísa ókunn- ugum til vegar og leggja jafnvel á sig krók til þess. Á eyjunni er saltvinnslu- stöð og stönzuðum við þar til þess að taka salt. Snemma morguns sigldum við inn í lítinn vog, eftir að hafa haft landsýn um nokkurn tíma. Landsýnin er ekk- ert frábrugðin því, sem maður á að venjast, þegar komið er suður að Portúgal. Þetta er sami móbrúni lit- urinn, dekktur grænku skógar, hvít strönd og fremur lítið brim í þessu kyrra hafi, sem ber bláma himinsins í allri dýpt sinni og fegurð. Fyrst siglum við í gegnum þröngt sund, milli Ibizu og systureyjar, sem ég man ekki nafnið á, þar sem nöfn skipta aðeins máli, standi maður í þrögli. Á þessum morgni hef ég alls ekki ætlað mér að spyrja að nöfnum, siglandi milli tveggja vita, sem eru hvítir í skærri birtunni, og með brim- ið hvítt á gröndum til beggja handa. Maður spyr ekki mikils, þegar maður sér nýja jörð, býst ég við. Skipið er sveigt inn í voginn og það er lagzt fyrir akkeri, því engin bryggja er til að leggjast upp að og framskipunin á saltinu er unnin með bátum. Nokkrir skipverjanna eru komnir í sjóinn um hádegið; þeir svamla fram með skipinu og tveir þeirra leggja í langferð upp í fjöruna, þar sem haf- meyjar liafa í sporðaköstum, uppi í heitum sandinum við sjómenn, sem komnir eru úr langri siglingu; eða kannski mér hafi missézt og þessar haf- meyjar séu ekki annað en nokkur lauf- mikil tré, sem eiga nær engan skugga nú í hádeginu. En sandurinn er hvít- ur og heitur og nokkrir ákveða að fara þangað bráðum að gera í hann slóðir og láta heita ölduna \ elta sér fram og aftur í flæðarmálinu. Og við stöndum við þessa ákvörð- un, þrátt fyrir leti og syfju, að lokn- um hádegisverði, sem aldrei bregzt að vera svo lystilegur, að maður kynnist honum meir en góðu hófi gegnir. Þeg- ar ég er að fara niður í bátinn, ríður undir hann alda, svo liann kemur á fleygiferð á móti mér og bókstaflega gleypir mig flatan, í sundbol einum klæða og skólausan af vangá og með- fæddri gæfu, svo að ein táin sér sér færi á að bögglast margföld undir mér með þeim ósköpum, að hún blánar litlu síðar. Ég er að vafra um í sand- inum, eftir að komið er í land, með bláa tá og bölvandi, þegar aðrir hafa skó á fótum í bátsferðinni oa: fá ekki Saltuppskipun við Ibizu. (l.jósm. Sverrir Þór, skipstjóri). bláar tær, en synda fram í ölduna og láta hana skáfleyta sér í land, eins og bátsmaðurinn, sem kann ráð undir rifi hverju. Maður verður undarlega heitur af sæstorkunni; það er líklegast saltið; hér er sagt að mikið saltmagn sé í sjón- um og hinum megin hæðarinnar, í hvarfi frá La Canal, þar sem við er- um að svamla nú í fjörunni, eru stór- ar sjóveitur, sem saltið er unnið úr. Það er Hollendingur á undan okkur í La Canal, og því verðum við að bíða eftir afgreiðslu í einn dag. Uppi í kránni við bátabryggjuna sjáum við Hollendingana af skipinu; þeir eru að kaupa nautabana úr gleri, sem ekki þarf annað en skrúfa heilabúið af, svo úr þeim streymi líkjör. Þetta eru mjög stoltir nautabanar. Þarna eru líka sennorítur með líkjör. Þarna í kránni læri ég fyrstu orðin í spænsku. Unó koníakk, dos koníakk. Akva mínerale. Þvílík blanda. Mútsja bono. Síðan kærar þakkir. Einhver t ill meira og segir otra koníakk. F.g veit, að ég get bjargað mér í spænsku nú. Þetta er mjög gott læri, þegar maður er saltur á bakinu og sundbolurinn er stamur af seltu og ein táin er blá. Síðan förum við um borð og Jónas stýrimaður gefur mér blývatn á tána, áður en ég sofna. Svo ég sofi vel, segir Jónas. Hann er mesti prýðismaður, hann Jónas, og gefur okkur af með- ulum skipsins, ef okkur verður mis- dægurt. Hann hefur líka gott vit á bókum og ég er stundum að tala við hann um þær. Mér þykir vænt um að fá blývatnið, því ég hef verk í tánni. Nú er kominn morgunn aftur. Bjartur, eins og hinir allir, og Stefán kemur í dyrnar og segir: Það er mat- ur, gjörið þið svo vel, eins og hann hefur gert í allri ferðinni. Og nú er nýr dagur framundan, gjörið þið svo vel, segja sólin, hafið og himininn. Þarna uppi í landi eru mjúkar hæðir, ávalar og skógi þaktar. Það kom að því síðar, að tveir af skipshöfninni gátu ekki stillt sig um að ganga upp á eina þeirra. Við förum í bæinn eftir hádegið. Bærinn heitir Ibiza, eins og eyjan. Okkur er róið í land af Spánverja, sem ráðinn er til starfans; hann er mjög sólbrenndur og í hálfermaskyrtu grárri. Hann er með mjög vinsamlegt andlit og ég er ekkert smeikur við að 8

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.