Samvinnan


Samvinnan - 01.01.1953, Page 15

Samvinnan - 01.01.1953, Page 15
vinnu- eða sameignarfélag, heldur að- eins félag með einstökum meðlimum, sem sjálfir taka tryggingar. Þannig ber hver meðlimur þá áhættu, sem hann trjrggir, en Lloyd’s er aðeins sá vettvangur, sem þeir allir starfa á. Venjulega skiptast meðlimir í 15-—20 manna flokka og er þá aðeins einn maður í hverjum flokki, sem undir- ritar tryggingarnar, en sérstök skrif- stofa gefur út tryggingarskírteinin, sem viðurkennd eru hin tiyggustu í heimi. Sérstakir miðlarar koma öllum tryggingum á Lloyd’s markaðinn, og er síðan safnað saman eins mörgum meðlimum eða flokkum og þörf er til að geta tekið að sér hverja tryggingu. Margt er einkennilegt og hefðbund- ið í Lloyd’s. Hvort sem það stafar af hjátrú eða trj^ggð við fortíðina, þá tíðkast enn sá siður að undirrita ttyggingaskírteini með fjaðrapenna, eins og gert var á kaffiborðunum hjá Edward Lloyd í gamla daga, og eitt stærsta ttyggingafélag Lundúna byrj- ar öll skírteini sín á þessari gömlu klausu: „I nafni guðs, amen, tökum vér hérmeð að oss.....“ SJÓTRYGGINGAR Á ÍSLANDI. Þegar Erlendur Einarsson hefur sagt þessa fróðlegu sögu um uppruna sjóttygginga erlendis, víkur hann að slíkum tryggingum hér á landi. Islendingar sigldu milli landa, með- an þeir áttu skip, og stunduðu fisk- veiðar í átta aldir án þess að njóta ör- yggis sjótrygginga. En um miðja nítj- ándu öld skutu sjótryggingar fyrst upp kollinum hér á landi, og var Báta- ábyrgðarfélag Vestmannaeyja stofn- að fyrir 90 árum. Mun það vera elzta tryggingafélag í landinu, og eru sjó- tryggingar því elztu tryggingar Is- lendinga, alveg eins og þær eru elztar allra ttygginga erlendis. Það er þó ekki fyrr en eftir síðustu aldamót, sem sjótryggingar breiðast um allt landið, og var Samábyrgð Islands á fiskiskipum stofnuð með lögum 1909. Alhliða sjótryggingar var þó enn varla hægt að tala um fyrr en eftir 1918. Þá var stofnað Sjóvátrygginga- félag Islands, enda var þjóðin þá smám saman að taka í sínar hendur verzlun og siglingar landsins. Síðan hafa sjótryggingarnar vaxið ört og risið upp mörg tryggingafélög í land- inu, sem hafa í vaxandi mæli flutt þessa starfsemi á íslenzkar hendur. Samvinnutryggingar eru meðal þeirra félaga, sem annast sjótrygging- ar í stórum stíl, segir Erlendur að lok- um. Félagið tekur að sér skipatrygg- ingar, vörutryggingar, stríðstrygging- ar, tryggingar á afla og veiðarfærum, tryggingar á farangri skipverja, ferða- tryggingar og farangurstryggingar. (Framh. á bls. 13) 11

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.