Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1955, Page 28

Samvinnan - 01.03.1955, Page 28
! i í fárc#E/»tdfo Við höfum nú fengíb aftur hinar heimshekktu Kitchen- Aid hrærivélar. Einnig: Kæliskápa (Frigidaire) Ryksugur Bónvélar Þvottavélar Þvottapotta Brauðristar Vöfflujárn Straujárn Guf ustrauj árn o. fl. o. fl. Gjörið svo vel og lítið inn. Rfagkvæmir greiðsluskilmálar HAFNARSTRÆ.TI 23 R EYKJAV Í K - SIMI: 81395 - SIMNEFNI. ICETRACTORS voru í tætlum af eggjagrjótinu, fatn- aður þeirra var rifinn eftir frumskóg- inn og þeir sjálfir kaunum og rispum settir. Flugvél Jimmy Angels stendur enn á fjallinu, þar sem hún lenti 1937. Eins og margir aðrir brautryðjendur fékk Jimmy Angel engin laun, — nema þann heiður, að hæsta vatnsfall jarð- arinnar var nefnt eftir honum og að hann beindi athygli manna að land- svæðum, sem síðan hafa gefið af sér mikil auðæfi. Það er ekki langt síðan flutningavélar flugu yfir Auyán-Tepuí, Djöflafjallið, og settust á flugvelli í námunda við landamæri Brasilíu. Þær fluttu vélar handa demantanámunum, sem stjórn Venezúela nýtir þar. De- mantaframleiðsla Venezúela var árið 1953 yfir áttatíu og fjögur þúsund karöt, sem aðallega var unnið úr út- jaðri hálendisins. Austar í sama há- lendi er auðugasta gullnáma ríkisins. Mesta auðsuppspretta þar í há- lendinu er þó ef til vill Cerro-Bólívar- námurnar. Aðeins á örfáum stöðum á jörðinni finnst svo hreinn járnsteinn. Af þeim þrjátíu mönnum, sem hafa séð Angel-fossinn neðan úr gljúfrinu, voru flestir þátttakendur f leiðangrin- um 1949. Nokkrir ævintýramenn hafa stritað upp fljótin á bátum og hafa þeir allir komizt á sama stað og tekið myndir þaðan, — hálfan annan kíló- meter frá fossinum. Annars eru loft- myndir þær einu, sem geta gefið ein- hverja hugmynd um hæð Angelfossins, og aðeins ein gefur vel til kynna stærð hans. Hún sýnir DC-3 flugvél, sem flýgur framhjá fossinum fast upp við hann. Hin stóra vél verður rétt eins og fluga móti tign fossins. Charles Baughan er maður nefnd- ur og er hann frægur flugmaður og hefur lent flugvélum sínum á ólíkleg- ustu stöðum eins og Jimmy Angel. Hann hefur gert mikið til þess að auð- velda mönnum ferðir að fossinum. Hann lét ryðja flugvöll og kom upp strákofum á áfangastöðum og við og við flýgur hann með hópa af ferða- mönnum frá hótel Tamanaco í Cara- cas. Þess á milli flýgur hann með byggingarefni í háfjallahótel, sem á að standa á stað, sem jafnvel hinir ævintýraþyrstustu eru ánægðir með. Jimmy Angel fann að lokum gull- námu í Costa Rica, sem gefur vænleg- an arð. Þótt hann sé nær sextugu, hefur hann í hyggju að takast á hend- ur flugleiðangur til borgarrústa, sem hann einu sinni kom auga á í einni af flugferðum sínum. Rústirnar voru langt inni í hálendinu inn á milli risa- fjalla austan Auyán-Tepuí. Finni hann þar rústir afgamallar borgar, getur hann ef til vill sannað, að þar hafi verið menning, sem nú- tímanum er ókunnugt um. Og hvers- vegna ætti hann ekki að gera það? Hann er hvort sem er alltaf á flugi og lendir þar sem honum dettur í hug. 28

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.