Samvinnan - 01.09.1956, Blaðsíða 33
Olympíuleikar að fornu og nýju
ÓLYMPÍULEIKARNIR eru mesta og
virðulegasta íþróttahátíð, sem haldin er í
heiminum og eiga þeir sér langa sögu að
haki. Er fróðlegt að skyggnast um spjöld
sögunnar í þeim efnum.
í góðum menningarlöndum standa
íþróttir jafnan með blóma, þar er vel bú-
ið að líkamsrækt, vegna þess að menn
gera sér ljóst, að bústaður andans er veg-
legt musteri og andinn bíður tjón, sé
musterinu ekki við haldið.
Hellenar hinir fornu voru ein frægasta
menningarþjóð, sem sagan getur um og
hvergi hafa íþróttir skipað æðri sess en
þar. Þar eiga Ólympíuleikarnir upptök
sín, enginn veit hvenær. Þegar menningu
Hellena hnignaði, lögðust íþróttirnar
einnig niður. Eftir 1498 ár voru Ólympíu-
leikarnir endurvaktir. Síðan hafa þeir
fallið þrisvar niður sökum heimsstyrjalda.
Sá var munurinn, að Forn-Grikkir gerðu
hlé á styrjöldum sínum til að halda Ólym-
píuleika.
Ólympíuleikar Hellena.
FYRSTU ÓLYMPÍULEIKAR, sem skráð-
ir eru, voru haldnir árið 776 fyrir Krist.
Þeir voru haldnir þar sem Kladeos sam-
einast ánni Alfeios við rætur Kronos-
hæðarinnar í Elis-héraði í Grikklandi.
Ólympíuleikar Hellena voru að nokkru
leyti trúarlegs eðlis og þessvegna mik-
ilvægt atriði fyrir þjóðina. Leikarnir
voru helgaðir guðinum Seifi og stóðu yf-
ir í fimm daga fjórða hvert ár. Hellanar
miðuðu tímatal sitt við leikana og ára-
bilið milli þeirra var nefnt Olympiad.
Hetjur á helgum stað.
Á Ólympíu var fagurt um að litast. Þar
voru hof til dýrðar guðunum og líkneski
af þeim eftir frægustu listamenn Hellena.
Þar úði og grúði af listaverkum og stytt-
um af ólympiskum sigurvegurum.
Aðeins Grikkjum af hreinu þjóðerni var
heimil þátttaka. Konur voru útskúfaðar
frá þátttöku og eins sem áhorfendur.
Sigurvegarar fengu lárviðarsveiga að
launum. Ættborgir þeirra tóku á móti
þeim eins og þjóðhetjum og listamenn
voru fengnir til að gera myndir af þeim.
Stundum voru þeim gefin hús og sérlega
vinsælir sigurvegarar fengu lífstíðar-
uppihald.
Stadion-kapphlaupið.
í FYRSTU HEIMILDUM um Ólympíu-
leikana er aðeins getið um eina keppnis-
grein: Spretthlaup eftir endilöngum vell-
inum. Sá hét Coroebus, sem vann og
spölurinn mun hafa verið tæplega tvö
hundruð metrar.
Eftir þrettán Ólympíuleika er getið um
tuttugu keppnisgreinar. Þar eru meðal
annars hlaup á ýmsum vegalengdum,
hnefaleikar, glíma, kappakstur og svo
drengjakeppni í ýmsum greinum.
Menningu Hellena hnignaði. Rómverj-
ar leystu menningu Grikkja og herveldi
af hólmi og úr því fara Ólympíuleikarnir
að losna í reipunum. Nú voru Rómverjar
einnig meðal þátttakenda, en þátttaka
þeirra var þeim ekki trúarlegt atriði. Með
tímanum urðu leikarnir aðeins sýningar
atvinnumanna og hættu að hafa trúar-
legt gildi, jafnvel fyrir Hellena. Þar kom,
að Þeódósíus I. keisari bannaði leikana
árið 394, eftir að þeir höfðu verið haldnir
hátíðlegir í meira en þúsund ár.
Endurvakning á 19. öld.
ÞAÐ ER EKKI fyrr en eftir 1850, að
menn fara að iðka frjálsar íþróttir að
nýju. Munu Englendingar hafa verið
brautryðjendur á þeim vettvangi. Á þeim
tíma átti rómantíska stefnan gengi að
fagna og er ekki ólíklegt, að hún hafi haft
nokkur áhrif. Menn dáðu hetjur og leit-
uðu þeirra gjarnan í fornöldinni. Hinar
ólympisku íþróttahetjur Hellena fengu
lif og lit í rómantíkinni.
Það var franskur barón, Pierre de Cou-
bertin, sem fyrstur barðist fyrir endur-
reisn Ólympíuleikanna. Hugmynd baróns-
ins komst í framkvæmd árið 1896, 1498
árum eftir að leikarnir voru síðast haldn-
ir meðal Hellena. Af skiljanlegum ástæð-
um varð Aþena fyrir valinu og síðan hef-
ur það verið þannig í orði kveðnu, að það
eru borgir, sem hljóta þá sæmd að standa
fyrir Ólympíuleikum.
Þrettán Ólympíuleikar.
ÞAÐ ÞÓTTI SJÁLFSAGT að halda
Ólympíuleika fjórða hvert ár eins og hjá
Hellenum. Frá 1896 hafa verið þrettán
leikar, en þrisvar hafa þeir fallið niður
sökum heimsstyrjalda, árin 1916, 1940 og
1944.
Á hinum fyrstu endurvöktu Ólympíu-
leikum í Aþenu mættu átta þjóðir til
leiks. Þar var keppt í tólf greinum og þar
af sigruðu Bandaríkjamenn í níu. Bretar
sigruðu í tveimur og Grikkir í einni. París
hlotnaðist heiðurinn árið 1900. Þar var
keppt í 22 greinum og nú sigruðu Banda-
ríkjamenn í 17. 1904 eru leikarnir haldn-
ir í St. Louis. Síðan koma einskonar auka-
leikir í Aþenu tveim árum seinna. 1908 er
það í London og 1912 í Stokkhólmi. Segja
má, að þar með verði Ólympíuleikarnir
fyrst alþjóðlegt íþróttamót. Þar mæta til
leiks 26 þjóðir og keppt er í 28 greinum.
En gullið úthlutast ekki jafnt fremur en
venjulega. Bandaríkjamenn ganga með
sigur af hólmi í 13 greinum.
Næst eru Ólympíuleikar í Antwerpen
Bandarikjamenn haja alltaf unnið 100 metra hlaupið á Ólympiuleikunum, nema tvisvar. Þessir
heiðursmenn hafa reynzt fótfráastir á fjórum siðustu Ólympiuleikum, en ólympiska metið á Jesse
Owens (annar frá vinstri) 10,2 sek.
33