Samvinnan - 01.09.1956, Page 37
meira til þess koma en að vinna allar
Mnar keppnisgreinarnar.
Hannes Kolehmainen frá Finnlandi
vakti einna mesta athygli í Stokkhólmi
1912. Eftir geysispennandi einvígi sigraði
hann franska hlauparann Bouin í 5 km.
Finnar hrifust mjög af Kolehmainen og
síðan hafa þeir jafnan átt langhlaupara
á heimsmælikvarða.
Á Ólympíuleikunum 1920, 1924 og 1928
har Finninn Paavo Nurmi höfuð og herðar
yfir keppinauta sína. Sennilega hefur
enginn íþróttamaður nokkurn tíma bor-
ið svo langt af samtíð sinni. Á þessum
leikum sigraði hann í 10 km. 1920, 1500
m. og 5 km. 1924 og 10 km. 1928. Hann
hljóp með stórum og sterklegum skrefum
og á andliti hans sáust aldrei svipbrigði.
Þegar Suðurlandabúar fengu sólsting og
gáfust upp í víðavangshlaupinu mikla í
París 1924, kom Nurmi langfyrstur í mark
og hann var eini maðurinn, sem hitinn
mæddi ekkert á.
Jesse Owens vann 100 m. hlaup, 200
m. hlaup, langstökk og hann hljóp i
4x100 m. boðhlaupssveitinni, sem setti
heimsmet og sigraði í Berlín 1936. Mörg-
um verður hann minnisstæðastur allra
ólympiskra sigurvegara. í öllum þessum
greinum setti hann ólympisk met, sem
standa enn og heimsmet hans, 8,13 m., er
ekki líklegt að falli í bráð. Framkoma
hans var eins og sönnum íþróttamanni
sæmir og stíll hans og mýkt á sér ekki
sinn líka. Jesse Owens var bandarískur
negri.
Emil Zatopek var „maður leikanna" í
London og Helsinki. Þótt hann fyrir
klaufaskap tapaði 5 km. í London, vann
hann 10 km. með geysilegum yfirburðum.
1 Helsinki lét hann skammt stórra högga
milli. Á endaspretti sigraði hann í 5 km.
og 10 km. með sömu yfirburðunum og í
London. Svo kórónaði hann sigurgöngu
sína til Helsinki með því að vinna mara-
þonhlaupið.
Margir af beztu íþróttamönnum heims-
ins áttu þess aldrei kost að keppa á Ólym-
píuleikum eins og t. d. Gunder Hagg. Leik-
arnir féllu niður um það bil sem hann
var á toppinum. Margir hafa enn ekki náð
hámarki afreksgetu sinnar, þegar Ólym-
píuleikar fara fram, en eru svo einhverra
orsaka vegna hættir eftir fjÖgur ár. Þetta
er sérlega algengt hjá Bandaríkjamönn-
um, þar sem toppmennirnir eru sjaldan
þeir sömu frá ári til árs.
Ólympisk afrek.
MENN BROSA að afrekum sigurvegar-
anna á Ólympíuleikum framan af. En
þá iðkuðu menn ekki íþróttirnar eftir
vísindalegum aðferðum og æfðu minna
en nú tíðkast. Nú er svo komið, að eng-
inn sigrar á Ólympíuleikum, nema að
hafa nær eingöngu helgað sig íþróttinni
í langan tíma, og hjá stórþjóðunúm er
þetta í rauninni atvinnumennská og lið-
ur í pólitískum áróðri. í orði kveðnu eiga
þó atvinnumenn í íþróttum ekki rétt til
keppni á Ólympíuleikum.
Árið 1900 unnust 800 m. á 2:11,0, en
1952 unnust þeir á 1:49,2 mín.
Árið 1904 vannst hástökk með 1,80, en
1952 vannst það með 2,04 m.
Árið 1900 vannst stangarstökk með 3,30,
en 1952 með 4,55 m.
Árið 1900 vannst kringlukast með 36.04,
en 1952 vannst það með 55,03.
Árið 1900 vannst kúluvarp með 14,10,
en í Helsinki vannst það með 17,41 m.,
og þannig mætti lengi telja.
Bandaríkjamenn hafa alltaf sigrað í
100 m. hlaupi nema tvisvar. Finnar hafa
sigrað fimm sinnum, bæði í 5 og 10 km.
110 m. grindahlaup hafa Bandarikjamenn
alltaf sigrað nema tvisvar, 4x100 m. boð-
hlaup hafa þeir alltaf sigrað nema einu
sinni; langstökk hafa þeir .alltaf sigrað
nema einu sinni, og þrisvar hafa þeir
misst af gullinu í hástökki. Stangarstökk-
ið hafa Bandaríkjamenn alltaf unnið ut-
an einu sinni og í kúluvarpi hafa þeir
tapað fyrstu verðlaunum aðeins tvisvar.
Aftur á móti hafa Finnar og Svíar sigrað
átta sinnum í spjótkasti.
Ólympíuleikar í Melbourne 1956.
ENN STANDA Ólympíuleikar fyrir dyr-
um. 1 þetta skipti fara þeir fram í Mel-
bourne og hefjast síðari hluta dags þann
22. nóvember. Þeim lýkur 16 dögum
seinna, þann 8. desember.
Ólympíueldurinn verður að vanda flutt-
ur frá Grikklandi og látinn brenna á alt-
ari við Ólympíuleikvanginn meðan á leik-
unum stendur. Eldurinn verður tendrað-
ur með sólargeislum á Ólympíu. en síðan
fluttur með flugvél til Cairns á norður-
strönd Ástralíu. Þá eru enn 2750 mílur ó-
farnar til Melbourne, en þann spöl munu
2750 hlauparar hlaupa boðhlaup með eld-
inn. Sá síðasti þeirra hleypur hring á
íeikvanginum á ákveðnum tíma og kveik-
ir síðan á altarinu. Fellur þetta inn í
setningarathöfn leikanna, svo að boð-
hlaupið verður að vera vel út reiknað.
Vandaður undirbúningur.
Á UNDANFÖRNUM ÁRUM hefur verið
um það skrifað og skrafað, að allur und-
irbúningur væri í hinum mesta ólestri
hjá Ástralíumönnum og að Melbourne
hefði engin skilyrði til að hafa Ólympíu-
leika. Enginn minnist nú á slíkt lengur,
enda Ijóst, að Ástralíumenn hafa vandað
mjög til undirbúnings, svo að allt mun
tilbúið á réttum tíma. Eitt er þó, sem
gerir fjölmörgum þjóðum erfitt um að
stuðla að fjölmennri keppni, og það er
fjarlægðin. Líklegt er, að margar þjóðir
renni á þátttökunni vegna þess. Samt
sem áður er Ijóst, að Ólympíuleikarnir' í
Melboume verða stórglæsileg íbróttahá-
tíð og ber margt til þess.
íþrótlasvæðið i Melbourne.
í ÚTJAÐRI BORGARINNAR er Krikk-
etvöllurinn og þar mun aðalíþróttakeppni
leikanna fara fram. Er það mjög glæsL
legur leikvangur og þegar endurbætur
hafa farið fram á áhorfendasvæðinu,
mun það geta rúmað 110 þúsund manns
í sæti. Áhorfendasvæðið rís 27 metra yf-
ir leikvellina, svo að útsýnið verður mjög
gott. Þar er aðsetursstaður fyrir 800
fréttamenn og íþróttaþuli. Þar er full-
komin sendimiðstöð og 50 bráðabirgða-
útvarpsstöðvar. Er miðað við, að frétta-
menn geti fylgzt eins vel með og kostur
er og útvarpað því, sem fram fer jafn-
harðan.
Ólympíugarðurinn nefnist nýtt íþrótta-
svæði skammt frá aðalleikvanginum.
Garður sá er um 10 hektarar að stærð.
Á þessu svæði eru alls konar keppnis--
brautir og knattspyrnuvellir. Það mann-
virki, sem mesta athygli vekur þar, er
geysimikil nýtízku sundhöll úr stein-
steypu, gleri og stáli. Ólympíugarðurinn
liggur á bökkum Yarrafljótsins. Frá þess-
um aðalíþróttasvæðum í Melbourne, er
aðeins um 20 mínútna gangur til aðal-
verzlunarhverfis borgarinnar, en meðan
á leikunum stendur, verða skipulagðar
ferðir á fárra mínútna fresti frá öllum
borgarhlutum.
Nýtt borgarhverfi fyrir
íþróttafólkið.
ÓLYMPIUBÆRINN svonefndi er nú
senn fullgerður og er hér um risamann-
virki að ræða. Um 10 km. frá borginni
hafa verið reist 837 hús og íbúðir úr
steinsteypu og tígulsteinum á mjög
stuttum tíma. Meðan olympiskir kepp-
endur dvelja i Melbourne við æfingar og
keppni, munu þeir hafa aðsetur þar.
Eftir leikana verður þessum íbúðum svo
úthlutað til borgarbúa, sem eru í hús-
næðishraki.
í Ólympíubænum verða þægindi eftir
fyllstu kröfum nútímans og þar eiga að
geta haft aðsetur 6380 íþróttamenn,
þjálfarar, fararstjórar og starfsfólk.
Sumar á Suðurhveli.
UM JÓLALEYTIÐ er miösumar á Suð-
urhveli jarðar, svo sumarið verður þar
ekki gengið til hálfs, þegar leikarnir fara
fram. Þá verður þar að venju hið ákjós-
anlegasta veður.
Sjötíu þjóðir hafa tilkynnt þátttöku
með alls um 5000 íþróttamenn. Að venju
ganga keppendur frá hverju landi fyrir
sig inn á völlinn undir þjóðfána sínum.
Það verður fríður flokkurinn sem fylkir
liði á Olympíuleikvanginum í Melbourne
þann 22. nóvember. Þar verða fagrar
konur og fræknir menn.
Fjöldi erlendra gesta.
ÞÓTT LANGT SÉ til Ástralíu úr flest-
um heimsálfum, er ekki liklegt að Ástra-
líumenn þurfi að kvíða áhorfendaleysi.
Mikið hefur verið gert til að laða er-
lenda gesti þangað, en forvígismenh
austur þar báru í upphafi nokkurn kvíð-
boga fyrir því, að vegalengdin kæmi í veg
fyrir heimsókn útlendinga. Aðgöngu-
37