Samvinnan - 01.08.1958, Page 2
Útgefandi: Samband ísl.
samvinnufélaga.
Ritstjóri: Benedikt Gröndal.
Blaðamaður: Gísli Sigurðsson.
Ritstjórn og afgreiðsla í
Sambandshúsinu, Reykjavík.
Ritstjórnarsími: 17080.
Kemur út mánaðarlega.
Verð árgangsins kr. 90.00
Verð í lausasölu kr. 9.00
Prentsmiðjan Edda.
Efni:
Sannleikurinn um stóreigna-
skattinn .................... 3
Delfi, eftir Guðna Þórðarson 4
Þýzkt fiskiðjuver............ 7
Tvær eins — tveir eins, saga
eftir Guðný Sigurðardóttur 8
Ertu sólginn í sykurinn, eftir
Ingólf Davíðsson ......... 10
Michail Botvinnik, eftir Svein
Kristinsson................ 12
Upphaf Sláturfélags Austur-
Húnvetninga, eftir Bjarna
Jónsson ................ 14
Evrópumeistaramótið 1950,
eftir Brynjólf Ingólfsson .. 17
Litlakaffi, framhaldssaga eft-
ir Kristmann Guðmundsson 19
ÁGÚST 1958
Lll. árgangur 8.
Brezka samvinnuhreyfingin er braut-
ryðjandi slíkra hreyfinga um heim allan.
Frá kaupfélagsstofnun í Rochdale 1844
hafa slík félög breiðzt um allar Bret-
landseyjar, stofnað með sér samband,
sem nú er mesta heildsölufyrirtæki Stóra-
Bretiands. Hvarvetna um England, Skot-
land, Wales og írland má sjá kaupfélags-
búðir. Saman eiga félögin miklar verk-
smiðjur og margvísleg mannvirki.
Þessi mikla hreyfing hefur þó ekki
verið ánægð með árangur starfsins á síð-
ari árum. Brezkir samvinnumenn hafa
óttazt, að starfið væri tekið að staðna,
kaupfélögin að dragast afturúr í sam-
keppni við ný stórfyrirtæki kaupmanna,
sem opnuðu svokallaðar keðjuverzlanir
um allt landið. Sumar verksmiðjur sam-
vinnumanna unnu við hálf afköst.
Þetta ástand varð tilefni þess, að kos-
in var óháð nefnd til að kanna málið.
Formaður nefndarinnar var ekki valinn
af verri endanum. Hann var Hugh Gait-
skell, formaður brezka Verkamanna-
flokksins, sem vel gæti orðið næsti for-
sætisráðherra Breta. Með honum voru
ágætismenn og konur, nákunn hreyfing-
unni. Nefndin starfaði í tvö ár og skilaði
nú fyrir skömmu miklu áliti, — heilli
bók. Hefur skýrslan vakið mikla athygli,
ekki aðeins í Bretlandi, heldur meðal
samvinnumanna um allan heim
Hér er ekki tími til að rekja efni skýrsl-
unnar, sem er stórfróðleg. En þar er að
finna margvíslegar tillögur um breyt-
ingar og endurbætur á verzlunarstarf-
seminni, er allar hníga í þá átt að fylgj-
ast betur með breyttum tímum, láta
kaupfélögin ekki sofna á verðinum, held-
ur þroskast og breytast eftir þörfum
hverrar nýrrar kynslóðar. Fordæmi Bret-
anna með þessari óháðu nefnd sinni er
merkilegt og gefur samvinnumönnum
um heim allan áminningu um að vera sí
og æ opnir fyrir breytingum tímans,
fylgjast með og beita samvinnuhugsjón-
inni á nýjan hátt gegn nýjum vanda-
málum.
Þýzkalandsbréf.
Ungur starfsmaður hjá iðnaðardeild
SÍS, Steinar Magnússon, dvelst um þess-
ar mundir í Hamborg í Vestur-Þýzka-
iandi og starfar hjá þýzka samvinnu-
sambandinu. Er hann að kynna sér
starfshætti og annað þar ytra. Steinar
hefur skrifað starfssystkinum sínum hér
heima um dvöl sína og hefur HLYNUR,
hið ágæta starfsmannablað, birt bréfin.
Hér fer á eftir fróðlegur kafli úr einu
bréfanna:
„Grosseinkaufs-Gesellschaft Deutsch-
er Konsumgenossenschaften“, skamm-
stafað GEG, var stofnað af 47 kaupfélög-
um 16. marz 1894. GEG hefur verið og er í
stöðugum vexti. Félagið hefur þó átt
mjög erfitt uppdráttar í tveim heims-
styrjöldum, og eftir síðari heimsstyrjöld-
ina missti það nokkrar verksmiðjur í
hendur kommúnista í Austur-Þýzka-
landi.
GEG starfar aðeins á grundvelli inn- og
útflyjenda, framleiðenda og heildsölu.
Öll önnur mál viðkomandi kaupfélögun-
um lúta handleiðslu ZDK (Zentralver-
band Deutscher Konsumgenossenschaft-
en). GEG hefur umfangsmikil viðskipti
og er nú stærsti innflytjandi V.-Þýzka-
lands. Verksmiðjur á GEG 32 víðsvegar
um landið, þar af 7 þeirra staðsettar í
Hamborg. Nokkrar verksmiðjanna eru
meðal þeirra stærstu sinnar tegundar.
Skrifstofuhúsnæði er mikið, enda vinna
hér um 1400 manns. Vinna hefst hér kl.
7.45 að morgni og unnið til kl. 4.45 e. h.
nema laugardaga til kl. 1 e. h. og svo frí
annan hvorn laugardag. Frá og með
næsta hausti verður líklega ekkert unn-
ið á laugardögum.
Ungt fólk, venjulegast 16 ára, er hefur
störf hér, verður að vinna sem lærlingar
og stunda jafnhliða skóla í þrjú ár. Að
þriggja ára námi loknu og verklegri
vinnu í ýmsum deildum, er tekið loka-
próf, en að því afstöðnu eru unglingarn-
ir liðtækir til skrifstofustarfa. Þetta er
strangur skóli og kaupið mjög lítið þessi
þrjú ár, en þetta fyrirkomulag er hjá
öllum verzlunar- og viðskiptafyrirtækj-
um í Þýzkalandi.
Aðalstöðvar GEG eru í stóru og glæsilegu
húsi eins og mörgum þeim, sem Þjóð-
verjar hafa byggt eftir stríðið.
2 SAMVINNAN