Samvinnan - 01.08.1958, Qupperneq 4
Guðni Þórðarson:
DELFI
þar sem guðirnir
gáfu mönnunum ráð
í Delfi var miðpunktur heimsins samkvæmt trú Forn-Grikkja, og þar reistu
þeir hof guðunum til dýrðar. Súlnahöfuðið á myndinni hér að ofan stendur við
Appollonshofið á liinum helga stað. Að neðan til vinstri er þorpið Nýja Delfi,
sem byggt var utan við rústirnar. — Á myndinni til hægri sjást tröppur, sem
virðast úr lagi gengnar, og það er stígurinn upp að hofi Véfréttarinnar.
Einn er sá staður á Grikklandi, sem
öðrum fremur á að baki dularfulla og
sérstæða helgisögu í trúarbrögðum hinna
fornu Grikkja. Sá staður er Delfi, þar
sem voi-u hin helgu vé og Grikkir gengu
á fund guða sinna við tæra fjallalind og
leituðu ráða og véfréttar, þegar vanda
bar að höndum. Enn er hægt að sjá
margar minjar á hinum forna og fagra
helgistað, sem stendur hátt í hlíðum
fjalla.
Landleiðin frá Aþenu til Delfi liggur
um hrikalegt og fagurt fjallalandslag.
þegar sléttunum nær Aþenu sleppir. Veg-
urinn liðast um grænar fjallshlíðar. en
víða gnæfa gráir klettar við himin, hátt
í fjöllum, þar sem lítill er gróður. Á aðra
hönd eru oftast gróðursælir dalir. Öðru
hvoru er ekið um sveitaþorp, þar sem
múldýrin silast áfram á mjóum götum,
ýmist með húsbændur sína eða konur
og börn þeirra á bakinu. Á brunntorg-
inu er oftast mesta fjölmenni, þar sem
konur, unglingar og börn safnast sam-
an með leirbrúsana, ræða um landsins
gagn og nauðsynjar og ávirðingar ná-
granna.
En við kveðjum brátt byggð, þar sem
lágreist hús standa undir sýprusviðn-
um og höldum hærra í fjöllin um sann-
kallaða fjallvegi og fjallaskörð, þar sem
vegurinn liggur í meira en þúsund metra
hæð yfir sjó. Leið okkar liggur um sögu-
frægar byggðir, þó að í fjöllum sé. Hér
er Þeba og handan fjallanna í suðaustri
er sléttan mikla og sögufræga, þar sem
Hellenar sigruðu loks Persa eftir tví-
sýna viðureign og tryggðu upphaf mik-
illa grískra landvinninga. Þeir atburðir
gerðust árið 479 fyrir Krists burð, og
um þessa sögufrægu sléttu liggur leið
okkar á heimleið frá Delfi til Attiku. En
það er önnur saga.
Eftir langa leið um fjallshlíðar og
þrönga dali kemur loks þar, sem þorp
stendur hátt í bröttum hlíðum undir
klettum. Þar er Delfi, eða öllu heldur
hin nýja Delfi. Nokkru innar í hlíðinni