Samvinnan - 01.08.1958, Page 14
Sláturhús Sláturfélags Austur-Húnvetninga á Blönduósi.
Bjarni Jónsson
I. Undirbúningairinn.
Erindi Eggerts Levý Veturinn 1906 var
og því fyrst hreyft op-
Sigurðar Jónssonar. inberlega, að hún-
vetnskir bændur
tækju höndum saman um byggingu slát-
urhúsa. Húnavatnssýsla var þá enn eitt
sýslufélag. Fyrir sýslufundinum 1906 lágu
2 erindi „um stofnun sláturhúsa á verzl-
unarstöðunum Blönduósi og Hvamms-
tanga“. Kvöddu þarna sér hljóðs þeir
Eggert Levý á Ósum og Sigurður Jónsson
á Lækjamóti. Ekkert samráð var með
þeim um málabúnað og hvorugur vissi af
öðrum. Erindin eru nú glötuð, en þar
mun hafa veriö lagt til, að sýslunefndin
hefði forgöngu um félagssamtök til úr-
bóta í afurðasölumálunum.
Sýslufundurinn Erindi þeirra Eggerts
1906. og Sigurðar voru lögð
fyrir fundinn 13. marz.
Þriggja manna fundarnefnd var kosin í
málið: Björn Sigfússon á Kornsá, séra
Hálfdán Guðjónsson á Breiðabóistað og
séra Stefán M. Jónsson á Auðkúlu. Eftir
„all-langar og ítarlegar umræður“ af-
greiddi sýslunefndin málið með langri
tillögu í 4 liðum.
Milli funda. Ekkert varð úr fram-
kvæmdum að sinni. Und-
irbúningur að stofnun Sláturfélags Suð-
urlands hafði hafizt upp úr fundi, sem
Bogi Th. Melsteð hélt með Árnesingum
og Rangæingum við Þjórsárbrú 30. júlí
1905. En undirbúningur þess stórmáls tók
lengri tíma en sýslufundurinn í Húna-
vatnssýslu 1906 hafði vænzt. Stofnun
Sláturfélags Suðurlands dróst til 28. jan.
1907. Reynsla Sunnlendinga var því ekki
enn fyrir hendi. Sýslunefndarmennirnir
Jónatan Lindal, bóndi á Holtastöðum.
Forgöngumaður um stofnun Sláturfélags
A-Húnvetninga og fyrsti formaður þess.
Upphaf Sláturfélags
sögðu að sjálfsögðu sveitungum sínum
frá málinu, þá er heim kom af fundi, og
einhverjar orðræður hafa átt sér stað,
en engin almenn fundahöld fóru fram
um málið að sinni.
Sigurður En Sigurður á Lækjamóti
á Lækjamóti. lætur ekki málið niður
falla. Árið eftir sendir
hann sýslunefndinni nýtt erindi um
byggingu sláturhúss. Sigurður hafði áð-
ur komið töluvert við sögu Kaupfélags
Húnvetninga og var ákveðinn samvinnu-
maður. Hann hafði verið forustumaður
sinnar sveitar um langan aldur: hrepp-
stjóri, hreppsnefndaroddviti og sýslu-
nefndarmaður, en var nú tekinn fast að
reskjast (f. 1835) og átti ekki lengur sæti
í sýslunefnd. Kom hann þó til Blöndu-
óss til viðtals við sýslunefndina, þegar
erindi hans var tekið fyrir á fundinum
1907.
Sýslufundurinn Þriggja manna nefnd:
1907. Björn Sigfússon á
Kornsá, Páll Leví á
Heggsstöðum og Ámi Á. Þorkelsson
á Geitaskarði fjallaði um málið Sam-
kvæmt tillögum nefndarinnar af-
greiddi sýslufundurinn málið í einu
hljóði með svofelldri ályktun: „Sýslu-
nefnd skorar á sýslumann Gísla ísleifs-
son og alþingismann Þórarinn Jónsson
á Hjaltabakka að kveðja til fundar í vor,
þar sem mæti 1 fulltrúi fyrir hvem hrepp
sýslunnar, til að ræða um umbætur á
kjötsölu til útlanda, skýli til slátrunar og
samvinnufélagsskap. Enn fremur heitir
sýslunefnd allt að 200 króna styrk úr
sýslusjóði vel hæfum manni til að afla
sér þekkingar á samvinnufélagsskap og
slátrun í því skyni, að hann taki að sér
forstöðu slátrunarfélags hér í sýslu. Fel-
ur hún áður nefndum mönnum að leita
viðbótarstyrks hjá Búnaðarfélagi íslands
og leita eftir slíkum manni og gera samn-
ing við hann.“
Blöndudalshólum:
Austur-Húnvetninga
Sveinsstaða- Að sýslufundi loknum
fundurinn. heldur svo undirbúningi
áfram heima í hreppunum,
og hinn fyrirhugaði fulltrúafundur fór
fram að Sveinsstöðum 2. maí 1907. Þar
mættu auk fundarboðenda 10 kjömir
fulltrúar, einn úr hverjum hreppi. Þrír
hrepparnir sendu enga fulltrúa: Vind-
hælishreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur og
Torf ulækj arhreppur. Fundarboðendur
voru að vísu báðir úr Torfalækjarhreppi,
en þeir fóru með umboð sýslunefndar, en
ekki sveitunga sinna. Enginn þessara
þriggja hreppa hafði þá viðskipti við
Kaupfélag Húnvetninga. Kaupfélags-
deildin í Torfalækjarhreppi hatði lagst
niður, Vindhælingar höfðu stofnað sitt
eigið kaupfélag, og Bólstaðarhlíðarhrepp-
ur skipti við Kaupfélag Skagfirðinga sem
sérstök deild í því félagi.
Sveinsstaðafundinn sátu þessir full-
trúar: Jónatan J. Líndal fyrir Engihlíð-
arhrepp, Guðmundur Tómasson, Ljóts-
hólum fyrir Svínavatnshrepp, Bjöm Sig-
urðsson, Litlu-Giljá fyrir Sveinsstaða-
hrepp, Guðmundur Ólafsson, Ási fyrir
Ásahrepp, Sigurður Jónsson, Lækjamóti
fyrir Þorkelshólshrepp, Árni Árnason,
Hörghóli fyrir Þverárhrepp, Jónas Jónas-
son, Hlíð fyrir Kirkjuhvammshrepp,
Guðmundur Sigurðsson, Svertingsstöðum
fyrir Ytri-Torfustaðahrepp, Rögnvaldur
Líndal, Hnauskoti fyrir Fremri-Torfu-
staðahrepp og Jónas Þorsteinsson, Hrúta-
tungu fyrir Staðarhrepp.
Fundurinn varð sammála um svofellda
ályktun: „Fundurinn ályktar að komið
sé upp sem allra fyrst 2 sláturskýlum fyr-
ir sýsluna, öðru á Blönduósi og hinu á
Hvammstanga.
Til þess að afla sér þekkingar á slátr-
un og þess konar, ályktar fundurinn, að
af því fé, sem sýslunefndin hét á síðasta
fundi sínum, falli helmingurinn til þess
manns, sem 7 austustu hrepparnir fá til
þess, en hinn helmingurinn til þess, sem
vesturhreppamir kjósa. Enn fremur
skuldbinda hinir mættu fulltrúar sig til
14 SAMVINNAN