Samvinnan - 01.08.1958, Side 16
Blönduósi á þeim tíma, sem kaupfélags-
fundurinn stóð yfir, hinn 26. febrúar.
Á fundinum um sláturhússmálið mættu
alls 8 fulltrúar úr þeim 4 hreppum, sem
höfðu myndað deildir og kosið sér
starfsmenn. Fulltrúarnir voru þessir:
Engihlíðarhreppsdeild : Jónatan J. Lín-
dal og Frímann Björnsson, Hvammi.
Svínavatnshreppsdeild: Jónas B. Bjama-
son, Litladal og Guðm. Tómasson, Ljóts-
hólum. Sveinsstaðahreppsdeild: Jón Kr.
Jónsson, Másstöðum og Jónas Björnsson,
Geirastöðum. Áshreppsdeild: Björn Sig-
fússon, Kornsá og Jón Hannesson, Þór-
ormstungu.
Aðeins einn fulltrúanna, Björn Sigfús-
son, var ekki einnig fulltrúi á kaupfélags-
fundinum, en þar mætti Guðmundur Ól-
afsson í Ási fyrir Áshrepp ásamt Jóni
Hannessyni.
Þær upplýsingar komu fram á fundin-
um, að í sumum hreppunum hefðu undir-
tektir verið mjög daufar og tillögur sund-
urleitar. Það voru því ekki góðar horfur
á, að hægt væri að mynda félag og ráð-
ast í byggingarframkvæmdir af eigin
ramleik. Fundurinn tók það ráð að kjósa
þriggja manna nefnd, til þess að taka
málið til athugunar. Kosningu hlutu:
Jónatan J. Líndal, Jónas B. Bjarnason
og Jón Hannesson. Þessir 3 menn voru úr
hópi helztu ráðamanna kaupfélagsins.
Jónatan formaður þess og þeir Jónas og
Jón endurskoðendur. Nefndin varð sam-
mála um eftirfarandi tillögur:
1. Fundurinn lýsir því yfir, að hann sjái
eigi framkvæmanlegt að koma upp
sláturhúsi á Blönduósi, án stuðnings
annars staðar frá, og vegna vantandi
fjárloforða og stofnbréfaloforða.
2. Fundurinn skorar á Kaupfélag Hún-
vetninga að taka að sér byggingu og
yfirstjórn á sláturhúsi á Blönduósi,
er byggt verði með hlutafé, sam-
kvæmt þegar framkomnum loforðum,
en að öðru leyti leggi það til fé, sem
á vantar. Sláturhúsfélagið hafi sér-
stök lög fyrir sig samþykkt af hlut-
höfum eða fulltrúum þeirra, og öllum
reikningum sláturhússfélagsins sé
haldið stranglega aðgreindum frá
reikningum Kaupfélags Húnvetn-
inga.
Fyrri tillagan var samþykkt með 7:1
atkvæði, en sú síðari með 8 samhljóða
atkvæðum.
Fundi var nú frestað og málið íór fyrir
aðalfund kaupfélagsins, er samþykkti
með samhljóða atkvæðum að verða við
þessari áskorun. Á kaupfélagsfundinum
áttu setu 10 menn. Átta þeirra hefur
verið getið áður, en hinir tveir voru:
Guðmann Helgason, Snæringsstöðum
(Svínavatnshreppur) og Þorsteinn Egg-
ertsson, Vatnahverfi (Engihliðarhrepp-
ur).
Fulltrúar á sláturfélagsfundinum luku
svo fundi sínum daginn eftir, 27. febr.; og
var þar gengið frá félagslögum. Fékk fé-
lagið nafnið: Sláturfélag Austur-Hún-
vetninga, skammstafað S.A.H.
Við undirbúning málsins var hið fyrir-
hugaða félag jafnan nefnt „sláturhúss-
félag“, og þvi nafni hélt það meðal al-
mennings fyrstu árin. í framkvæmda-
nefndinni kom og fram tillaga um að
nefna það „slátrunarfélag“, en styttra
nafnið, „sláturfélag", sigraði, og var það
vel farið.
Samkvæmt fyrstu lögum félagsins var
stjórn kaupfélagsins jafnframt stjórn
sláturfélagsins, en það hafði algerlega
sérskilinn fjárhag. Hvort félagið fyrir
sig hafði sína deildaskipun með sérstök-
Núverandi stjórn Sláturfélags Austur-Húnvetninga. Frá vinstri: Guðjón Hall-
grímsson, Marðamúpi, Ólafur Magnússon, Sveinsstöðum, Jón Baldurs, Blöndu-
ósi, formaður, Lárus Sigurðsson, Tindum og Jón Stefánsson, Kagaðarhóli.
um fulltrúum og sinn eigin aðalfund, en
stjórn var kosin á sameiginlegum full-
trúafundi.
Meðan þetta skipulag hélzt um stjórn
félaganna var að sjálfsögðu meiri sam-
vinna á milli þeirra, og á hinum sameig-
inlega fundi voru oft tekin fyrir ýmis
mál, er snertu bæði félögin.
„Sláturhússmálinu" var nú loks far-
sællega til lykta leitt fyrir atbeina kaup-
félagsins.
III. Starfið hafið.
Útbreiðslu- Fyrsti fundur hinnar sam-
starfsemi. eiginlegu stjórnarnefndar
var 19. marz 1908. Var þar
gerð ráðstöfun til þess að fá menn til að
boða til funda í þeim hreppum sýslunn-
ar, sem enn stóðu utan við félagið. Jónat-
an J. Líndal kvaddi til fundar í Bólstað-
arhliðarhreppi, en heimamenn í hinum.
Bar þetta þann árangur, að deildir voru
þegar stofnaðar í Vindhælishreppi og
Torfulækjarhreppi. í Bólstaðarhlíðar-
hreppi tókust að vísu þegar örlítil við-
skipti, en ekki er hægt að telja, að deild
hafa komizt þar á fót fyrr en árið eftir.
Viðskipti Bólstaðarhlíðarhrepps við
Kaupfélag Skagfirðinga stóðu enn föst-
um fótum, og var það að sjálfsögðu í vegi
fyrir þátttöku.
Þátttakan. Ekki hefur tekizt að afla
upplýsinga um, hve mikið
hafði safnazt af loforðum um stofnbréfa-
kaup og sláturfé, þegar félagið er stofn-
að, en 24. ág. 1908 eru fyrstu 100 stofn-
bréfin undirrituð fyrir 2060 krónur.
í árslokin var þátttakan þessi: (Talan
í sviga, stofnbréfaeignin í krónum):
Vindhælishreppur
Engihlíðarhreppur
Bólstaðarhlíðarhreppur
Svínavatnshreppur
Torf alækj arhreppur
Sveinsstaðahreppur
Áshreppur
20 (200 kr.)
24 (440 kr.)
(50 kr.)
(710 kr.)
(185 kr.)
18 (335 kr.)
30 (550 kr.)
20
32
15
Samtals 141 félagsm. með 2470 kr.
Bygging Stofnfundurinn tók ákvörð-
sláturhúss. un um að byggingu slátur-
húss yrði hraðað svo, að það
gæti komið til afnota þegar haustið 1908.
Þetta tókst. Teikningu gerði Ingimar Sig-
urðsson á Hólum. Vel tókst til með bygg-
ingu, þó að lítil sem engin kunnátta væri
þá hér í sýslu á steinsteypu. Jónatan
hafði kynnzt í Noregi hinum venjulegu
blöndunarhlutföllum á steypu, en ekki
þekkti hann annað en að hafa mulið
grjót. Engum datt þá í hug að nota ár-
mölina. Jónatan lét því veturinn 1907—
08 þrjá og fjóra menn mylja grjót, þeg-
ar gott var veður. Sandurinn var nær-
tækur i fjörunni. Benedikt Sigfússon á
Bakka í Vatnsdal hafði steypt kringum
leiði í kirkjugarðinum á Undirfelli, aðra
æfingu hafði hann ekki. Hann var feng-
(Framh. á bls. 25)
16 SAMVINNAN