Samvinnan - 01.08.1958, Qupperneq 26
!
!
Orðsending til eigenda Massey-Harris-
dráttarvéla og -verkfæra
Þar sem HARRI FERGUSON- og MASSEY-HARRIS-fyrirtækin hafa
nú verið sameinuð í eitt fyrirtæki, sem ber nafnið MASSEY-FERGUSON,
fellur það í okkar hlut að sjá um og útvega varahluti í Massey-Harris-
dráttarvélar og -verkfæri. Þar sem mörg af þessum verkfærum eru orðin
gömul, er erfitt að gera sér grein fyrir, hvaða varahluti vantar. Er það því
ósk okkar, að bændur sendi okkur upplýsingar um, hvaða vélar þeir eiga
af Massey-Harris-gerð.
Eftirfarandi þarf að taka fram: Nafn tækis, serial-númer, mótor-númer
og hvaða ár flutt til landsins. Þessar upplýsingar eru mjög áríðandi, svo að
hægt sé að byggja upp nauðsynlegan varahlutalager í vélarnar.
Að sjálfsögðu tökum við á móti varahlutapöntunum í þessar vélar strax,
þó að nokkur dráttur verði, unz hægt verður að afgreiða varahlutina í þær.
Z)/uti£a/uAéZo^t Á /
Snorrabraut 56, Reykjavík, sími 17080
í
KIENZLE bókhaldsvélar eru fáanleg-
ar í f jölmörgum stærðar- og verðflokk-
um. Sérhvert fyrirtæki á því að geta
fundið vél við sitt hæfi.
KIENZLE bókhaldsvélar hafa um langt
skeið verið notaðar með góðum ár-
angri við bókhald ýmiss konar fyrir-
tækja s. s. verzlunar- og iðnfyrirtækja,
banka, sparisjóða og opinberra stofn-
ana.
Innan hvers fyrirtækis má nota sömu
vélina við hin margvíslegustu verk-
efni s. s. viðskiptamannabókhald,
kostnaðarbókhald, birgðabókhald,
launabókhald og skýrslugerðir ýmiss
konar.
BÓKHALDSVÉLAR
M. a. útbúnaðar KIENZLE bókhaldsvéla má nefna:
1. Sjálfvirk dagsetning.
2. 10—12 „standard“ textar.
3. Fullt textaborð.
4. íleggsútbúnaður fyrir bókhaldskort („forntfeed device“).
5. Sjálfvirk dálkastilling.
6. Sjálfvirkur flutningur vagnsins milli dálka og í byrjunarstöðu að
lokinni hverri færslu.
7. Sjálfvirk prentun á öllum niðurstöðum.
8. Svonefndar stjórnskífur (,,controlbars“), sem hægt er að skipta
um að vild, stjórna hinum sjálfvirku hreyfingum vélarinnar við
ýmis verkefni.
9. Tvöfaldur eða klofinn vals, fyrir sérstök verkefni.
10. Vélarnar geta skrifað tvö frumrit í einu, annað hvort samtímis (eru
þá tveir blekborðar í vélinni) eða með því að endurtaka sérhverja
færslu á sjálfvirkan hátt.
11. Dagbókin færist sjálfkrafa, með gegnumskrift, um leið og hinir
ýmsu reikningar eru færðir.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
é^incir L
aáon
S KRIFSTOFU VÉLAVERZ L.U N OG VERKSTÆÐI
Sími 2-41-30 — Brbttugötu 3B — Box 1188
26 SAMVINNAN