Samvinnan - 01.01.1964, Blaðsíða 20
^llllltllll>lllllllllllll(lllllllllllllllllllllllllllllll>lllllllllllflflllllllllllllllllllllllltllltllllllllltlllllllllllll|ll|lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllisrlllllllllllllllllllllll*lllllllllllllltllllltll***ll*lil(ltllllllllllllllll*llll(llllllllll*l«llllllllll*lllllllllllllltlllll*llllllltlli Illlllllllltllttlllllllllllllllllllllllllllliailllllllllllllllll^
Aðalbjörg Jónsdóttir:
Er menn leggja lífs á ceginn
lánifi misjafnt reynist,
einum gengur allt i haginn,
öðrum mceðan treinist.
Glöð ég lagði á löginn kalda
láni treysti mínu,
hátinn litla hálgin alda
heygði af réttri línu.
Við J)að má ég alltaf una
aldrei hlaut þá snilli
að geta látið hátinn hruna
báru og skers á milli.
IJkna þeim, sem líður neyð,
leiðhein þeim, sem villtur gengur,
rétt Jyeim hönd, sem hrösun heið,
hjálpaðu öllu á rétta leið,
J)á mun verða gatan greið
gcefu hlotnast ceðstur fengur.
Líkna J)eim, sem líður neyð,
Leiðhein þeim, sem villtur gengur.
Grcettu aldrei gamlan mann,
gakk þú ei á hlut hins snauða
segðu cetíð sannleikann,
svertu aldrei náungann,
láttu drottins hoð og ba in
henda þér í lífi og dauða.
Grcettu aldrei gamlan mann
gakk þii ei á hlut þess snauða.
Systir skáldsins
Aðalbjörg Jónsdóttir, húsfreyja á Stekkjarflötum
í Eyjafirði, var systir Páls J. Árdals skálds. Páll var
vinsælt ljóðskáld og leikrit hans eru leikin enn í dag.
Ljóð eins og „En hvað það var skrítið“, vitnar um
hagmælsku hans og skáldlega skynjun, svo dæmi
sé nefnt, og er ómetanlegur dýrgripur fyrir börn,
sé þeim flutt það af vörum ljóðelskrar ömmu eða
mömmu.
Hitt vita færri, að systur hans, Aðalbjörgu, hafði
einnig hlotnazt skáldhneigð og hagmælska. Hún
varð háöldruð kona og húsfreyja var hún í einni
fegurstu sveit landsins. Henni hlotnaðist snemma
það, sem Guðmundur Finnbogason nefnir „gáfu
sorgarinnar“ (gáfa = gjöf) í þýðingu á þætti úr
Kongsevnerne eftir Ibsen.
Dóttir Aðalbjargar, frú Þorgerður Sigurgeirsdóttir,
húsfreyja á Öngulsstöðum, hefur góðfúslega leyft
Samvinnunni að birta þessi tvö ljóð eftir móður
sína.
Aðalbjörg á Stekkjarflötum var fædd árið 1858
og dáin 1945.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiUJMiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiMiiiiiiiMummaiiiiiiiii'iiiiiMiiiiiai
IMIMIMIIIIMIIIIIMIIIMIIIIMMMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
iiiiimmmmimiiii
IMIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIlé'
16 SAMVINNAN