Samvinnan - 01.01.1964, Blaðsíða 16
FRA 22. ÞINGI ICA
Myndin er tekin í fundarsal og sýnir nokkurn hluta þess mikla fjölda fulltrúa, sem
þingið' sótti. Meðal annarra má þekkja Erlend Einarsson, forstjóra SÍS, og Carl
Albert Anderson, formann sænska samvinnusambandsins.
Talið frá vinstri: VV. P. Watkins, fyrrverandi framkvæmdastjóri ICA, M. Bonow, forseti
ICA, L. Cooke, forstjóri CWS og W. G. Alexander, sem nú nýlega hefur tekið við
störfum forstjóra hjá ICA.
Dagana 14.—17. október var 22. þing
Alþjóöasambands samvinnumanna
(International Co-operative Alliance)
há.ð í Bournemouth í Bretlandi, en
þing þessi eru háð þriðja hvert ár.
Koma þar saman forystumenn sam-
vinnusamtaka hinna ýmsu landa og
ráða ráðum sínum.
Á þinginu í Bournemouth voru
mættir um 500 fulltrúar frá 37 löndum,
ásamt nokkrum gestum, þar á meðal
frá. ýmsum stofnunum Sameinuðu
þjóðanna. Þrír . fyrrverandi forsetar
Alþjóðasambandsins voru og gestir
þingsins, þeirra á meðal Váinö Tanner,
fyrrverandi forseti Finnlands, sem nú
er háaldraður en þó við góða heilsu.
— Af hálfu Sambands ísl. samvinnu-
félaga ' sótti þingið Erlendur Einars-
son, forstjóri.
Þetta þing einkenndist mjög af
minnkandi spennu milli austurs og
vesturs, en þeirrar spennu hefur gætt
töluvert á undanfarandi þingum Al-
þjóðasambandsins. Fögnuðu þingfull-
trúar almennt þeim merka áfanga í
takmörkun á tilraunum með kjarn-
orkuvopn, sem náðist með Moskvu-
sáttmálanum. Var á þinginu einróma
samþykkt sérstök ályktun þar að lút-
andi.
Umræður uröu hvað mestar um
tæknilega og fjárhagslega aðstoð til
þróunarlandanna í Asíu, Afríku og
víðar. í þessum löndum ríkir, sem
kunnugt er, mjög alvarlegt ástand.
Milljónir manna búa þar við sult og
seyru, þrátt fyrir þá miklu aðstoð,
sem þessum þjóðum hefur á undan-
förnum árum verið veitt fyrir tilstilli
Sameinuðu þjóðanna, einstakra landa
og alþjóðasamtaka. Bilið milli lífs-
kjara fólks í þessum löndum og á Vest-
12 SAMVINNAN