Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 24

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 24
Nýtt húsnœði Landflutninga Séð yfir vörugeymslu nýja hússins. Bygging Landflutninga hf. að Skútuvogi 8, í næsta nágrenni við Holta- garða, hefur nú verið tekin í notkun, en Landflutningar er félag um afgreiðslu á flutningabílum, sem allmörg kaupfélög eiga aðild að, og stofnað var árið 1966. Lóð fyrirtækisins er um 10.000 fermetrar, en húsið sjálft er 1829 fermetrar. Aðstaða til lestunar og losunar bíla er öll hin fullkomnasta, m. a. eru í húsinu rafknúnar vökvalyftur og allar afgreiðsludyr eru einnig rafknúnar. Landflutningum var úthlutað lóð við Skútuvog árið 1976, en hún var ekki byggingarhæf fyrr en á síðastliðnu ári. Byggingarframkvæmdir gengu fljótt og vel fyrir sig, og er aðstaða fyrirtækisins nú öll önnur og stórum betri en áður var. + I V* . 24

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.