Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 36

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 36
Frá aðalfundi Sambandsins: Við búum að upp- byggingu fyrri ára Aðalfundur Sambands ísl. sam- vinnufélaga, hinn 81. í röðinni, var haldinn að Bifröst 9. og 10. júní. Formaður Sambandsstjórnar, Val- ur Arnþórsson, setti fundinn og minnt- ist í upphafi látinna samvinnumanna. Til fundar mættu 110 fulltrúar, þar af 25 konur, sem er mesti fjöldi kvenna á aðalfundi Sambandsins til þessa. Fundarstjórar voru kjörnir Bjarni Ara- son, Borgarnesi, og Gísli Konráðsson, Akureyri, en fundarritarar þau Sigurð- ur Jóhannesson, Akureyri, Kristín Tryggvadóttir, Hafnarfirði og Gunn- steinn Karlsson, Reykjavík. • Nauðsyn aðaldsaðgerða Valur Arnþórsson flutti síðan skýrslu stjórnar, og að því loknu flutti Er- lendur Einarsson forstjóri ýtarlega skýrslu um rekstur Sambandsins á árinu 1982. I skýrslu sinni minntist Valur Arnþórsson sérstaklega afmælishátíða- halda samvinnuhreyfingarinnar á síð- asta ári. í>á gerði hann grein fyrir fjár- festingum Sambandsins á liðnu ári, en þær námu 90,8 milj. kr., og öðrum eignabreytingum á árinu. Af einstökum viðfangsefnum stjórnarinnar ræddi hann m.a. um fjárfestingaráætlun Sam- bandsins, væntanlegan stórmarkað í Holtagörðum, stofnun Samvinnusjóðs Islands hf. á síðasta ári, fjárhagsmál samvinnuhreyfingarinnar og aðhaldsað- gerðir í rekstri, skipulagsmál, ýmis fræðslu- og félagsmál, aðstoð við nokk- Ályktun um fjármál samvinnuhreyfingarinnar Stöndum vörÖ um hagsmuni félagsmanna Islenska þjóðin stendur nú frammi fyrir miklum efna- hagsvanda. Þjóðartekjur munu annað árið í röð drag- ast saman, erlend skuldasöfnun er komin á hættulegt stig og verðbólguvandinn meiri en nokkru sinni. Því vill 81. aðalfundur Sambands íslenskra samvinnufélaga leggja áherslu á eftirfarandi. Atvinnurekstur samvinnuhreyfingarinnar hefur ekki frekar en önnur atvinnustarfsemi farið varhluta af þessari öfugþróun. Fjámagnsmyndun hefur farið hraðminnkandi og erfiðleikar í rekstri að sama skapi vaxandi. Samvinnuhreyfingin er mikilvægt afl í íslensku þjóðlífi, og skiptir því almenning miklu máli hvernig rekstur fyrir- tækja hennar gengur, ekki síst þegar að þrengir í efna- hapslífinu. I stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar segir að rekstur hennar skuli byggjast á traustum fjárhagslegum og félags- legum forsendum og miða að aukinni hagkvæmni í rekstri, enda er heilbrigður rekstur styrkasta stoð hennar til framfara. í núverandi efnahagserfiðleikum ber að leggja þunga áherslu á að standa vörð um hagsmuni fé- lagsmanna, og því verður samvinnuhreyfingin að aðlaga rekstur sinn breyttum aðstæðum. Á sama hátt sé haldið uppi kaupmætti eftir því sem þjóðfélagsaðstæður frekast leyfa, og stuðlað verði að sem mestri markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu. Innan samvinnuhreyfingarinnar eru þegar hafnar að- haldsaðgerðir sem aðalfundurinn styður, en leggur jafn- framt ríka áherslu á að unnið verði áfram að eftirfarandi stefnu á samræmdan hátt innan hreyfingarinnar: • Áframhald verði á markvissum aðgerðum sem leiða til sparnaðar og hagræðingar í rekstri. í því skyni verði aukin fjárhags- og rekstrarráðgjöf til samvinnufyrir- tækja. • Stefnt skal að minnkun fjárbindingar í vörubirgðum og auknum veltuhraða þeirra. • Minnka þarf fjárbindingu í útlánum til eflingar lausa- fjárstöðu og lækkunar fjármagnskostnaðar. • Mörkuð verði fjárfestingarstefna innan hreyfingarinnar með hliðsjón af eðlilegri arðsemiskröfu og fjármögn- unarmöguleikum. Núverandi fjárfestingaráform verði tekin til endurskoðunar með tilliti til breyttra að- stæðna. • Unnið verði að því að efla fjármálastofnanir hreyfing- arinnar og stuðla þar með að því að gera hana fjár- hagslega sjálfstæðari. • Lögð verði áhersla á að auka innbyrðis viðskipti innan hreyfingarinnar. • Bæta þarf fjármálastjórn í samvinnuhreyfingunni með traustri áætlanagerð og rekstrareftirliti, og jafnframt stuðla að aukinni samræmingu í fjárhagslegum ákvörð- unum. • Sérstaklega verði unnið að því að stofnsjóðir félags- manna, sem voru hornsteinar uppbyggingar samvinnu- hreyfingarinnar en hafa rýrnað að verðgildi síðustu ára- tugina, verði verðtryggðir. Leitað verði nýrra leiða til að auka innstreymi fjár í stofnsjóðina. • Þótt fjárhagserfiðleikar steðji nú að samvinnufyrirtækj- um hafa þau áður gengið í gegnum mikla erfiðleika og staðist þá með samtakamætti sínum. • Fundurinn skorar á alla félagsmenn og starfsmenn að snúa bökum saman í aðsteðjandi vanda, tryggja þar með afkomu sína og láta ekki efnahagsvanda líðandi stundar hindra nýtingu þeirra miklu möguleika sem öflugt samvinnustarf býður upp á. • Fundurinn vill að lokum leggja áherslu á að traustur atvinnurekstur og efling innlends sparnaðar er grund- völlur þess að þjóðin geti aukið hagsæld sína og tryggt atvinnuöryggi. ♦ 36

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.