Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 26

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 26
Jón Sigurðsson skólastjóri Hvað er orðið afviskunni? Með nemendum skólans berst þekking á málefnum sam- vinnuhreyfingarinnar og skilningur á högum hennar út um gervallt samfé- lagið. Eins og boðað var í síðasta hefti birt- ast hér nokkrir kaflar úr skóla- slitaræðu Jóns Sigurðssonar skólastjóra á Bifröst, sem hann hélt er hann sleit Samvinnuskólanum að Bif- röst. Þá lauk 65. skólaári Samvinnu- skólans og 28. ári skólans í Bifröst í Norðurárdal. Veturinn var einnig 9. starfsár fullmótaðrar framhaldsdeildar Samvinnuskólans í Reykjavík og 6. ár starfsfræðslu og símenntanámskeiða Samvinnuskólans í þeirri mynd og þeim umsvifum, sem þeirri starfsemi hefur verið sniðin á síðari árum: • Þjónar samvinnuhreyfingunni á margan hátt A síðastliðnu ári komu 10% nem- enda, sem þá voru í 2. bekk, úr störf- um á vegum hreyfingarinnar; í fjöl- skyldu 44% nemendanna voru félags- menn í samvinnufélögum og í fjöl- skyldu 28% þeirra voru samvinnustarfs- menn. Hitt er þó ekki síður athyglisvert að 76% þeirra nemenda, sem brautskráð- ust frá Samvinnuskólanum í Bifröst á árununt frá 1973 til 1981 og Ieituðu sér ekki frekari skólagöngu héðan, hafa um lengri eða skemmri tíma starfað á vegunt samvinnuhreyfingarinnar að námi loknu, og um 44% þeirra munu nú í starfi hjá hreyfingunni. Jafnvel um 57% þeirra sent samvinnuskólaprófi luku á þessu árabili og leituðu sér frek- ari skólagöngu hafa meira eða minna' starlað fyrir hreyfinguna samhliða námi eða í skólaleyfum. Þessu fólki til viðbótar er sá fjöldi samvinnustarfsmanna og félagsmanna sent sækir starfsfræðslu og símenntun- arnámskeið skólans. A síðastliðnu vori voru þátttakendur alls á einstökum námskeiðum Samvinnuskólans orðnir um hálft sjötta þúsund manna frá 1977 og nú í vetur eru þátttakendurnir orðn- ir unt hálft fimmta hundrað. En skerfur Santvinnuskólans til sam- vinnuhreyfingarinnar verður ekki að- eins veginn á þessa reislu. Hitt skiptir ekki minna ntáli eins og reynsla hefur margsýnt að rneð nemendum skólans berst þekking á málefnum samvinnu- hreyfingarinnar og skilningur á högum hennar út um gervallt samfélagið. I þessu gildir einu hvort menn starfa hjá opinberum aðilum, einkafyrirtækjum, hlutafélögum eða hjá samvinnuhreyf- ingunni sjálfri. • Hvað hefur orðið af viskunni? Kæru vinir sem nú kveðjið þennan skóla eftir tveggja vetra námsdvöl hér í Bifröst: Nú er runnin langþráð stund á ferli ykkar hvers og eins og það kemur í minn lilut að þakka samveruna og fylgja ykkur út göngin með nokkrum orðum. Tómas hét maður Eliot og var eitt- hvert merkasta ljóðskáld á enska tungu á þessari öld. Einhverju sinni spurði hann: „Hvað hefur orðið af viskunni sem við glötuðum í þekkinguna? Hvað er orðið um þekkinguna sem týndist í upplýsingunum?” Þessar spurningar virðast orðaleikir og gamansemi ein, en þó er í þeim speki sem á svo brýnt erindi við okkur að skipt getur sköpum lífs og dauða. Hvarvetna flæða á okkar dögum hvers kyns upplýsingar um hvaðeina. Við lifum á tímum mikillar þekkingar. Þó er það deginum ljósara að okkur skortir visku til að lifa og hegða okkur eða notfæra okkur þær gjafir sent okk- ur er gefnar. Þessa gætir hvarvetna á heimsbyggð- inni og þess gætir ekki síður í samfélagi íslendinga yfirleitt. Ég veit að það hef- ur ekki farið fram hjá ykkur þrátt fyrir annir liðinna daga og vikna að nú er mikið harðindatal hér á landi. Unt leið 26

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.