Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 39
Úr lokaorðum
Vals Arnþórssonar
stjórnarformanns:
Framundan er
varnarbarátta
Hér á þessum fundi hefur verið gerð ýtarleg grein
fyrir viðamiklum rekstri heildarsamtaka sam-
vinnumanna á liðnu ári. Okkur er Ijóst, að yfir
fjárhagslegum árangri hvílir skuggi óðaverðbólgu og efna-
hagslegra áfalla þjóðarbúsins. Við höfum hlýtt á mjög
fróðlegt og greinagott erindi Eggerts Á. Sverrissonar um
fjárhagsmál samvinnuhreyfingarinnar og krufið þau til
mergjar í umræðuhópum og á fundinum sjálfum. Við
skynjuni því betur ástæðurnar að baki tapreksturs síðasta
árs og sjáum ljóslega þá brýnu þörf, sem er fyrir þær að-
haldsaðgerðir, sem eru hafnar og þarf að fylgja eftir með
festu og mikilli ákveðni í Sambandinu og í samvinnufél-
ögunum, hverju og einu. Pað verður okkar hlutverk,
okkar, sem höfum fengið það mikla ábyrgðarhlutverk að
sitja þennan fund, að flytja skilning á þörfinni fyrir þessar
aðgerðir heim í félögin og þroska þann skilning á þörfinni
fyrir þessar aðgerðir þannig að aðgerðirnar megi vera
gerðar með fólkinu en ekki í andstöðu við það. Okkur er
ljóst, að framundan er varnarbarátta meðan efnahagsþ-
rengingarnar ganga yfir. Okkur er jafnframt ljóst, að
meðan varnarleikur er spilaður þarf að hyggja að hverju
skynsamlegu sóknartækifæri og við samvinnumenn
megum því ekki gefa eftir miðju leikvallar efnahagslífsins,
þar sem vörn og sókn tengjast saman og hver ný sóknar-
lota hefst. Við megum ekki leggja árar í bát. Við verðum
að vera minnug þess, að lífið heldur áfram sinn gang,
hvað sem líður skini eða skuggum í litrófi efnahagsmál-
anna. Við verðum að vera minnug þess mikla hlutverks,
sem samvinnuhreyfingin er sett til að gegna fyrir alþýðu
manna til sjávar og sveita, ekki síst þegar á bjátar í efna-
hagslegu umhverfi. Við verðum að vera minnug þess sér-
staka stefnumarks okkar að standa vörð um atvinnuöryggi
eftir því sem geta hreyfingarinnar framast leyfir og stefnu-
miðs okkar um áframhaldandi atvinnuuppbyggingu til
hagsbóta fyrir land og þjóð. Pessi stefnumið leyfa okkur
ekki að gefa eftir á miðju leikvallarins, meðan varnarspil-
ið fer fram. Þvert á móti verðum við að treysta innviði
rekstursins og stæla vöðva hans til nýrra átaka við fyrsta
skynsamlegt tækifæri. Arðbær uppbygging, sem fjár-
mögnun er tryggð fyrir, er áfram á dagskrá. Nýjar starfs-
greinar, sem hafa heilbrigðan grundvöll og geta nýtt orku
íslensks hugvits og íslenskra handa, verða áfram að vera
á dagskrá til athugunar og framkvæmda, þegar aðstæður
leyfa.
Tugir þúsunda ungra karla og kvenna koma á vinnu-
markað fram til aldamóta og verða að fá skipsrúm á fleyi
íslensks efnahags- og atvinnulífs upp á heilan hlut. Sam-
vinnuhreyfingin þarf að beita afli sínu til þess að stækka
fleyið og fjölga skipsrúmum. Pessu skulum við ekki
,gleyma þótt hitt sé ljóst, að nú er þörf virkra aðhaldsað-
gerða og gætilegrar siglingar framhjá boðum og blind-
skerjum. Það gagnar ekki að fjölga skipsrúmum á strönd-
uðu fleyi, en við ætlum ekki að láta fley okkar stranda.
Þess vegna þarf mjög gætna siglingu á næstunni þar til
élin ganga yfir og glöggt sér til átta fyrir framtíðar sigl-
ingu. Með þetta í huga hverfum við héðan eftir ágætan
fund með ýtarlega ályktun í vegarnesti sem áttavita fyrir
hina vandasömu siglingu. +
39