Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 14

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 14
SAMBANDSIÐNAÐURINN A AKUREYRI 60 ARA 1923 -20. ÁGÚST - 1983 Ég hafði skrifað Jóni Árnasyni frá Ameríku og sagt honum, hvernig mér litist á skinnaiðnaðinn, en það bréf hef- ur einhvern veginn misfarist. Og sem ég var nú kominn til Noregs, í allt öðr- um erindum en að læra skinnaiðnað, þá fékk ég allt í einu bréf frá Jóni, þar sem hann bað mig að halda áfram að kynna mér sútun skinna. Ég fór þá til Þýskalands og var þar á nokkrum nám- skeiðum. Meðal annars var ég á nám- skeiði í Frankfurt, þar sem framleiddar voru sútunarvélar, og námskeiðin voru að nokkru leyti haldin í því skyni að kynna vélarnar og reyna þær. Við vor- um þar nokkrir á námskeiði í þrjá eða fjóra mánuði, en um vorið bauð einn félaga minna mér til sín heim. Faðir hans átti verksmiðju í Rínarlöndum, skammt frá hollensku landamærunum, og þangað fór ég og var þar í nokkra mánuði til þess að kynnast þessu dálítið betur. • Starfsemin hefst á nýjan leik Og á meðan þessu fer fram, er hlé á þeirri starfsemi, sem þú hafðir byrjað á hér heima? Já, hún lá niðri þarna um þriggja ára skeið, eins og ég sagði áðan. En árið 1930 var tekið til á nýjan leik, og árið 1932 voru sútaðar gærur í verksmiðj- unni 1600 talsins. Á árinu 1934 var byrjað að reisa nýtt hús handa gæru- verksmiðjunni, áfast við ullarverk- smiðjuna, og var smíði þess lokið í febrú- ar 1935. Þá var líka bætt við vélum til sútunar. Næsta vetur var byrjað að súta sauðskinn og leður í verksmiðjunni, og voru þann vetur sútuð rúmlega 6200 skinn og húðir, en auk þess um 1150 gærur loðsútaðar. Það var fenginn norskur iðnaðarmaður til þess að vinna við sútunina. • Skóverksmiðja stofnuð Á aðalfundi Sambandsins, sem hald- inn var hér á Akureyri vorið 1936, var ákveðið að setja hér á stofn skóverk- smiðju. Jafnframt var byggð ný hæð ofan á hús gæruverksmiðjunnar, og vél- arnar komu um haustið, og skóverk- Þessar þrjár myndir frá mismunandi tímum gefa ofurlitla vísbend- ingu um vöxt og við- gang Sambandsverk- smiðjanna á Akureyri. Myndin hér efst til vinstri er af húsakynn- um Verksmiðjufélags- ins á Akureyri Ltd., sem seldi Sambandinu eignir sínar árið 1930. Neðri niyndin er tekin af Sambandsverksmiðj- unum árið 1942. Og stóra myndin hér til hægri sýnir okkur, hvernig þær líta út nú á dögum. 14

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.