Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 23

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 23
Fólk hefur best staðið af sé ólög og harðindi, þegar samvinna er í heiðri höfð. með mismunandi bakgrunn og mismun- andi menntun og með ólíkar lífsskoðan- ir. Ef allir hinir 43.000 meðlimir sam- vinnuhreyfingarinnar væru aldir á sömu pólitísku jötu mættu andstæðingarnir fara að vara sig. Margir láta í ljósi andúð á því sem þeir kalla „óhófleg útþensla og veldi" samvinnuhreyfingarinnar. Eysteinn Jónsson bar engan kvíð- boga fyrir þeirri þenslu eða því veldi þegar hann sagði: „Pegar stórbrotnar hugsjónir rætast er ekki við öðru að búast en niikið fari fyrir árangrinum". Gegn þeim áróðri sem haldið er uppi gegn samvinnufélögunum vitnar best starfsemi þeirra. Auk hinnar ákveðnu starfsemi standa samvinnufélög oftlega að öðrum framfaramálum í þjóðfé- laginu. Þau hafa lagt fram fé og annan mikilsverðan stuðning við ýmis mikil- væg mál sem þá heyra á engan hátt undir starfsemina. Samvinnuhreyfingin hefur sýnt stuðn- ing mörgum minnihlutahópum, þeim sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Mörg íþrótta- og æskulýðsfélög hafa hlotið mikilvægan stuðning. Margvísleg menningarstarfsemi hefur einnig notið góðs af stuðningi samvinnufélaga víða um land. Á Akureyri hefur K. E. A starfrækt kostnaðarsama heimsendingarþjónustu fyrir hrevfiskerta. Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum reisti tjaldstæði og aðstöðu fyrir ferða- menn þar á staðnum sem þó heyrir trú- lega frekar undir sveitarfélagið. Víða í smærri byggðarkjörnum halda kaupfé- lögin uppi sumarvinnu fyrir unglinga. Þá halda kaupfélögin oft uppi viða- mikilli þjónustu við sveitir og hinar dreifðari byggðir sem oft er fjarri því að vera arðbær. • Kaupfélögin og sveitirnar Vegna þeirrar sérstöðu sem kaupfé- lögin hafa í viðskiptum bænda og í sveitaverslun er ástæða til að minnast á þann þátt. Svo til öll framleiðsla bænda er seld kaupfélögum, öll mjólk, meirihluti ullar, skinna og kjöts. En hvaða þjón- ustu fá þeir sem í sveitum búa hjá kaupfélögum? Þeir fá mikla þjónustu, en stendur hún undir sér? Það er mjög vafasamt. í fámennum byggðarlögum, þar sem verslun er lítil reka kaupfélög oft útibúsverslanir. Það liggur í augum uppi að þar sem verðbólga blómstrar með þvílíkum ágætum og hér á landi hlýtur að vera allt að því útilokað að halda uppi vörulager þar sem fáir versla og veltuhraði er lítill. Því hlýtur sveitaverslunin að standa því verr sem byggðin er fámennari. Og - sveitir landsins eru sífellt að verða fámennari. Hvað geta kaupfélögin gert til að hafa áhrif á þá þróun? I stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar segir: „Samvinnuhreyfingin vill að gæði og auðæfi landsins séu notuð til þess að efla byggð og búsetu sem víðast til far- sældar íbúum þess“. í stefnuskránni segir einnig: „Samvinnuhreyfingin vill stuðla að því að tækniframfarir verði til þess að auka almenna farsæld og vel- megun, en leiði ekki til aukinnar mis- skiptingar lífsgæða eða atvinnuleysis“. Samkvæmt stefnuskránni er það hlut- verk samvinnuhreyfingarinnar að efla byggð og búsetu, stuðla að því að tækniframfarir leiði til almennrar far- sældar og velmegunar. Á fyrstu árum kaupfélaganna var allt frumkvæði um bætt lífskjör í þeirra höndum. Þessu frumkvæði eiga kaupfé- lögin að halda a. m. k. í sveitum landsins, þar sem þau eru fædd og upp- alin. Það yrði lítil reisn yfir 100 ára af- mæli Sambandsins, eftir tæp tuttugu ár, ef það yrði haldið á einhverju eyðibýli í Þingeyjarsýslu, væntanlega í órækt og niðurníðslu. Samvinnuhreyfingunni ber að stuðla að aukinni byggð í sveitum landsins. Þau gætu staðið fyrir uppbyggingu iðn- aðar í sveitum, annað hvort með iðn- fyrirtækjum á vegum kaupfélaga eða í samstarfi við aðra með þátttöku í hluta- félögum og eða sanieignarfélögum. Auknir atvinnumöguleikar í sveitum eru líklegasta leiðin til að viðhalda eða auka byggð þar. Vaxandi og öflug byggð í sveitum landsins með tryggar atvinnugreinar að bakhjarli, hlýtur að vera hreint hagsmunamál kaupfélag- anna og myndi stuðla að hagkvæmari rekstri þjónustunnar. • Eftirmáli Hér á undan hefur verið drepið á helstu samtök manna, þau sem fyrst Iétu verslunarmál til sín taka. Þó er fleira ósagt en sagt og er hér aðeins sýnishorn af þeirri félagsvakningu sem varð meðal landsmanna á liðinni öld. Ekki er minnst á mörg af helstu félög- unum, t. d. Gránufélagið og Félags- verslunina við Húnaflóa. Ekki er held- ur getið verslunarfélaganna á Aust- fjörðum sem þó eiga sér merkilega sögu. Þess í stað hef ég reynt að segja frá þeirri félagsvakningu sem varð í Þingeyjarsýslu, þar sem árangurinn varð áþreifanlegastur og fyrstu form- legu félögin, sem náðu verulegum ár- angri, voru stofnuð. Það eru félögin sem urðu grunnurinn að stofnun fyrsta kaupfélagsins. Þá er ekki getið um starfsemi eða stöðu samvinnufélaga á fyrri hluta þessarar aldar, á tímum sem þau stóðu af sér mestu efnahagskreppu sem yfir hefur riðið. Aðeins er leitast við að skoða stöð- una nú, - á tímum sem margir nefna einnig krepputíma. Að lokum: Ljóst er, að í gegnum aldirnar hefur fólk best staðið af sér ólög og harðindi þegar samvinna er í heiðri höfð. ♦ Heimildir: Saga Kaupfélags Þingeyinga (Jón Gauti Péturs- son 1942) Frelsisbarátta Þingeyinga og Jón á Gaut- löndum (Gunnar Karlsson 1977) Islensk samvinnufélög hundrað ára (Arnór Sig- urjónsson 1944) Árbók F. I. (Sigurður Björnsson frá Kví- skerjunt 1979) Islandssaga (Einar Laxncss 1974) Fundargerðir Búnaðarfélagsins í syðri hluta Þingcyjarsýslu (1854-1S88) Samvinnuhreyfingin á Islandi (Eysteinn Sig- urðsson 1978) 23

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.