Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 10

Samvinnan - 01.04.1983, Blaðsíða 10
z. orK u SAMBANDSIÐNAÐURINN Á AKUREYRI 60 ÁRA 1923 -20. AGÚST - 1983 í ársbyrjun 1969 eyðilagðist hluti verksmiðjunnar í eldi. Var hún þá strax endurbyggð, og auk þess byggt nýtt verksmiðjuhús með vélum og öðrum búnaði til framleiðslu á pelsverkuðum gærum - aðallega mokkaskinnum til notkunar í fataframleiðslu ýmiss konar, en það var nýjung í íslenskum iðnaði. Skinnasaumastofa framleiðir tískufatn- að á karla og konur úr mokkaskinni. Meginhlúti framleiðslu sútunarverk- smiðjunnar er nú fluttur út, annað hvort sem fullunnin pelsvara, eða for- sútuð skinn til fullvinnslu erlendis. Að- stoðarframkvæmdastjóri skinnaiðnaðar er Jón Sigurðarson, verkfræðingur. • Gífurleg aukning í ullariðnaði Ullarvinnsla byrjaði í smáum stíl á Gleráreyrum árið 1897, þegar Tóvinnu- félag Eyfirðinga hóf þar starfsemi sína. Síðan tók þar við rekstri Verksmiðju- félagiö á Akureyri Ltd., sem seldi Sambandinu eignir sínar árið 1930. Gíf- urleg aukning hefur orðið síðan á öllum sviðum þessa ullariðnaðar. Fullvinnsla hefur aukist og framleiðslueiningum fjölgað stórlega. Einnig hafa viðskipti við fyrirtæki utan Akureyrar aukist, og má þar nefna Gefjun í Reykjavík og Ylrúnu á Sauðárkróki ásamt Dyngju á Egilsstöðum, sem er sameign Kaupfé- lags Héraðsbúa og Sambandsins. Fram- leiðsluvörur eru aðallega fatnaður, ull- arband ýmiss konar fyrir prjónaskap óg vefnað, ullarteppi, húsgagnaáklæði, gluggatjöld og fataefni. Stærsti hluti þessarar framleiðslu er seldur til útflutnings, og fer hann vax- andi. Eftirtaldar framleiðslueiningar eru undirstaða ullariðnaðarins: Loðbandsdeild sem framleiðir ullar- band fyrir prjónaskap, vel'nað og handprjón. Vefdeild sem framleiðir fataefni, gluggatjöld, húsgagnaáklæði og ullar- teppi. Prjónadeild sem framleiðir fatnað ýmiss konar. Hönnunardeild sem hefir náið sam- starf við framleiðsludeildirnar og mark- aðsdeildina. Umboðsverslun er einnig, sem sér urn innkaup á fatnaði og samskipti við aðrar prjóna- og saumastofur víðs veg- ar um land. Það er síðan hlutverk markaðsdeildar ullariðnaðarins að sjá um sölu þessa framleiðsluvara. Ullariðnaður Sambandsins er þannig byggður upp, að hann hefir alla þætti ullarvinnslunnar til meðferðar, allt frá ullarlitun, þar til varan er komin í hendur umboðsmanns eða í hillur versl- unar hérlendis eða erlendis. Því er markaðshlutinn einnig stór þáttur í þessari starfsemi. Aðstoðarframkvæmdastjóri ullariðn- aðar er Sigurður Arnórsson, tækni- fræðingur. • Fatnaður, skór og margt fleira A Akureyri eru til húsa þau fyrirtæki Iðnaðardeildar, sem framleiða fyrir innanlandsmarkað og verslanirnar Torgið og Herraríkin í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Stærsta fram- leiðslueiningin er vinnufatadeild Heklu og þær deildir sem framleiða prjónles til innanlandssölu. A þessum sviðum hefur Hekla gegnt forystuhlutverki í ís- lenskum iðnaði um áratuga skeið, en Sambandið hóf rekstur hennar 1948. Skóverksmiðjan Iðunn var stofnuð 1936, en það ár var verksmiðjuhúsið byggt og sænskar vélar keyptar til fram- leiðslunnar. Um langt skeið var veru- legur hluti framleiðsluvara unninn úr 10

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.