Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1932, Side 12

Andvari - 01.01.1932, Side 12
8 Sigurður Stefánsson prestur í Ögurþingum. A»dv»ri frá eyjunni, en tveim sexæringum hélt hann út frá Bol- ungarvík, er var frá fornu mesta verstöð við Djúp. Á öðru búskaparári sínu í Vigur tók Sigurður að rétta við hús jarðarinnar. Reisti hann þau öll frá grunni á fáum árum, bæði bæjarhús og peningshús. Bætti hann jörðina stórlega að öðru leyti: sléttaði túnið og færði út um fullan þriðjung, gerði matjurtagarða og hlúði að æðarvarpinu. Var dúntekjan 80 pund, er hann setti bú í Vigur, en árið 1916 voru þar 160 pund æðardúns. Fyrstu hundruðin í Vigur keypti Sigurður árið 1889. Voru það 8 hundruð, en öll var jörðin 24 hundruð að fornu mati. Við erfingjaskipti komst jörðin í margra manna eigu, og keypti Sigurður hana smám saman, nokkur hundruð í senn, eftir því sem þau urðu föl. Síðustu hundruðin keypti hann árið 1909. Hafði hann þá eignast alla eyna fyrir 19300 krónur, en stórmikið fé annað hafði hann lagt til umbóta henni. Búskapur Sigurðar var með hinum mesta myndar- skap og þrifnaði. Hafði hann mannmargt á heimili, að jafnaði 5—6 karla og 6—7 griðkonur auk ungmenna og skuldaliðs. Var hann hinn mesti búhöldur, árrisull og eftirlitssamur, svo sem verið hafði faðir hans. Hann gekk jafnan um sýslur manna, bæði þeirra, er sjó sóitu, og þeirra, er unnu á landi, hafði á öllu reglu og góð skil og lét ekkert skorta, er til handargagns þurfti. Varð Vigur brátt eins konar forðabúr sveitarinnar. Skorti þar hvorki hey né mat, þótt seint voraði. Var þar athvarf sveitarmanna, er í þröng komust. Vigur liggur í ísafjarðardjúpi nær miðju, miðað við lengd þess mikla fjarðar, en nær miklu vesturströnd. Hún er kostajörð og hinn fegursti staður. Suðvestur- hluti eyjarinnar er jafnlendi, en um miðju norðurhlutans er hálent mjög, en þó nær hvergi sæbratt; er þar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.